Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 29

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 29
AF S TJÓRNARVETTVANGI Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Öryrkjabandalags íslands var haldinn á Hótel Loftleiðum hinn 16. desember á sl. ári. Hófst hann kl. 16,45. Alls voru 20 stjórnarmenn mættir, þar af voru þrjú ný andlit á stjórn- arfundum, þær Hafdís Gísladóttir aðalfulltrúi Félags heyrnarlausra og varamennirnir Jóhanna S. Einarsdóttir frá Heyrnarhjálp og Steinunn Gísla- dóttir frá Parkinsonsamtökunum. Formaður, Haukur Þórðarson, setti fundinn og stjórnaði honum. Hann bauð alla velkomna til fundar, en sér í lagi þó fyrrverandi formann, Ólöfu Ríkarðsdóttur. Hann minnti á hin ágætu störf hennar að málefnum fatl- aðs fólks um áratugaskeið, hún vann m.a. að stofnun Öryrkjabandalags Islands og í stjórn þess sat hún óslitið frá 1969 allt til ársins 1997. Formaður var hún samtals í sex ár. Haukur minnti m.a. á að Ólöf hefði verið tengiliður bandalagsins við Norður- lönd allt frá stofnun og ótalin væru þau nefndarstörf sem hún hefði innt af hendi fyrir bandalagið. Haukur sagði að bandalagið vildi færa henni þakklætisvott fyrir öll hennar óeigin- gjörnu og dýrmætu störf og bað Asgerði framkvæmdastjóra að afhenda henni blómvönd og forkunn- arfagra gullnælu fyrir ágæt störf áranna. Ólöf þakkaði fyrir sig með nokkr- um orðum og sagði að svona nokkuð gerði enginn nema hafa gaman af því og svo hefði verið um sig. Rakti tvö dæmi urn samvinnu þeirra Odds Ólafssonar á árum áður sem ágætum árangri hefði skilað, annars vegar í endurhæfingarmálum og hins vegar í ferlimálum. Fyrsta dagskrármálið var yfirlit formanns. Formaður gat fyrst um viðbrögð bandalagsins við frum- varpi á Alþingi um altækan eignar- skatt, sem myndi heldur betur við Hússjóð koma og leigjendur hans ef að lögum yrði. Hart brugðist við og mótmæli send þingnefnd, bæði með öðrum félagasamtökum sameiginlega og sér af hálfu bandalagsins. Sagði næst frá mótmælum við hinum miklu gjaldskrárhækkunum símans á innan- bæjarsímtölum og viðtali við Halldór Blöndal samgönguráðherra af því tilefni, sem raunar hefði litlu skilað. Greindi frá fundi með heilbrigðis- og tryggingaráðherra vegna ályktana aðalfundar. Þar hefði komið fram svo og í bréfi tryggingayfirlæknis til bandalagsins út af öðru máli að fyrir- hugað væri að ráðherra legði fram lagafrumvarp með breytingu á ör- orkumati þann veg að tekjur lækkuðu ekki örorkumat, heldur væri hið lækn- isfræðilega mat látið ráða. Haukur sagði því næst frá aðal- fundi Islenzkrar getspár, en þar kom fram að sala lottómiða hafði dregizt saman um 5,8% eða um 16 millj. kr. á síðasta starfsári. Þá sagði Haukur for- maður frá svarbréfi tryggingaráðs og tryggingayfirlæknis við mótmælum bandalagsins út af hækkuðum greiðsl- um vegna þjálfunar, sér í lagi sjúkra- þjálfunar. Þar kom ekkert fram um að hagur örorkustyrkþega yrði bættur en þeir greiða nú allir hærra gjaldið. Að lokum sagði Haukur frá hinni einkar velheppnuðu samstöðuhátíð í Stykkishólmi sem annars staðar er greint frá glögglega. Haukur vakti athygli á því hve sveitarstjórnarmenn þar vestra hefðu haft mikla fyrirvara og jafnvel borið ugg í brjósti vegna væntanlegrar yfirtöku sveitarfélaga á málefnum fatlaðra. mil Thóroddsen vakti athygli á vanda afar margra vegna hærri kostnaðarhlutdeildar sjúklinga í sjúkraþjálfun sérstaklega meðal örorkustyrkþega svo og ræddi hann lækkun örorkumats fólks í námi þar eð þaðjafngilti fullri vinnu. Þyrfti vel að athuga. Guðríður Ólafsdóttir kvað mikinn ótta og óvissu ríkja hjá mörgum sveit- arstjórnarmönnum vegna yfirfærsl- unnar, menn hreinlega ekki tilbúnir að taka við svo viðamiklum málaflokki. Minnti á samning félagsmálaráðu- neytis og Sambands ísl.sveitarfélaga um ferlimál, sem hefði ekki reynzt nógu vel í framkvæmd. Hafdís Gísladóttir minnti á sér- stöðu heyrnarlausra varðandi síma- mál. Kvað samnorræna nefnd um málefni heyrnarlausra nú án fulltrúa frá Islandi, þar sem Póstur og sími hf teldi það ekki í sínum verkahring að skipa fulltrúa í nefndina af íslands hálfu og samgönguráðuneytið gerði ekkert í málinu. Helgi Hjörvar ræddi um stór- hækkun burðargjalda sem þungan bagga fyrir félögin að bera. Minnti á það fyrirkomulag í Svíþjóð og Noregi að frjáls félagasamtök greiddu ekki virðisaukaskatt af prentun og annarri þjónustu varðandi þeirra félagsblöð og rit. Helgi Seljan talaði þessu næst um kjaramál. Ræddi fyrst um Framkvæmdasjóð fatlaðra, sem á lögum samkvæmt að fá allar tekjur FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 29

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.