Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 37
reiknuðum með, því þegar hinir írsku vinir okkar sáu Perluna, þá fannst þeim ekki annað hægt en skoða hana betur og fá sér ís. Ferðin endaði síðan út á Seltjamarnesi þar sem nokkrir félagar í Fólk með fullu viti búa og halda sjálfstætt heimili. Irarnir voru þar “trakteraðir” á kaffi (og auðvitað te) og kökum. Um kvöldið var síðan myndbandakvöld í Reykjadal. riðjudagsdagskráin fór nokkuð úr skorðum til að byrja með, því írarnir lentu í smáóhappi um leið og þeir voru að fara upp í rútu. Alls ekkert alvarlegt, en það tafði þá um klukkustund, þannig að fyrirhuguð heimsókn í Öryrkjabandalagið stytt- ist. Hins vegar bauð forráðafólk ÖBI upp á fínan hádegisverð og spjallaði þar um starfsemi og dreifði bækling- um bandalagsins. Að því búnu var haldið út í Starfsþjálfun fatlaðra þar sem Irarnir fengu rækilega kynningu og máttu síðan skoða sig um. Þeir voru mjög spenntir fyrir því og það reyndist erfitt að koma þeim þaðan út. Sjálfsbjörg landssamband og Sjálfs- björg félag fatlaðra á höfuðborgar- svæðinu, bauð okkur síðan yfir í sín húsakynni. Þar voru enn meiri veit- ingar og síðan var slegið upp balli og dansað fram eftir kveldi. Miðvikudagurinn hafði verið frá- tekinn fyrir ferðalag. Og auðvitað var það eini dagurinn sem rigndi, helli- rigndi. Við héldum hins vegar ótrauð í ferðina sem hófst á Nesjavöllum þar sem virkjunin var skoðuð (Irarnir trúðu því aldrei almennilega að hægt væri að hita upp hús með vatni sem kæmi heitt upp úr jörðinni). Við borðuðum súpu og silung í Nesbúð og héldum síðan til Þingvalla, og þaðan til Gullfoss og Geysis. Eftir á að hyggja, þá fór veðrið sjálfsagt meira fyrir brjóstið á okkur en írun- um, því það var sama hvar var stoppað og hversu mikið rigndi, alls staðar var allur hópurinn tekinn úr rútunni og skoðunarferðin farin eins og í sól og blíðu. Þeir voru þess vegna blautir, þreyttir en afskaplega ánægðir þegar þeir komu til Reykjavíkur. Fimmtudaginn hófum við með því að bjóða þeim í bíó klukkan ellefu um morguninn. Þá var farið í heimsókn til Vilhjálms Knudsen kvikmyndagerðarmanns,; sem sýndi okkur myndir af náttúruhamförum á Islandi. Þessi sýning spannaði allt frá eldgosinu í Heimaey að umbrotunum í Vatnajökli. I hádeginu fórum við á Kakóbarinn í Hinu Húsinu, þar sem þau fengu sér að snæða og gáfu sér tíma til að skoða sig um og kaupa minjagripi. Síðan var þeim boðið í sund í Arbænum, þar sem einstaklega vel var tekið á móti þeim og starfsfólk til mikillar fyrirmyndar. Við vorum meira að segja svo heppin að fá ljós- myndara frá Morgunblaðinu til að koma og taka myndir af sundferðinni. Hrein og strokin héldum við síðan til veislu á Hótel Islandi, þar sem við áttum einstaklega ljúfa stund. Föstudagurinn byrjaði á lögbund- inni ferð í Kringluna. Þeim fannst búðirnar mjög fínar en ansi hreint dýrar. Hard Rock Café vakti mikla lukku, ekki síst vegna þess að staður- inn var allur skreyttur í tilefni Allra- heilagramessu. Önnur lögbundin og langþráð ferð var farin í Bláa lónið, þaðan sem allir komu með bros á vör og hárgreiðslu sem endist fram á vor. Við fórum svo til Bessastaða og skoð- uðum okkur um og Irarnir áttu ekki Hlerað í hornum Hjónin fóru í Bláa lónið með litla strákinn sinn, en þegar þangað var komið kom í ljós að eiginmaðurinn varekki meðneinasundskýlu. Eigin- konan ráðagóða bjargaði því sem bjargað varð og lét eiginmanninn hafa eitt aukatekið orð af undrun yfir því að geta “spássérað” óáreitt í heim- keyrslu forsetans. Um kvöldið buðu írarnir okkur í hrekkjavökugleðskap og komu okkur þar enn á óvart með ótrúlegri útsjónarsemi og hugmynda- flugi. Hinir írsku vinir okkar yfirgáfu svo klakann um sjöleytið á laug- ardagsmorgninum. Við kvöddum fólkið með söknuði en líka ánægju, því þessi ferð sem hafði verið lengi í und- irbúningi, hafði gengið svo vel. Þetta var lærdómsríkt á alla vegu og kanta og við erum ákveðin í því að hittast á þeirraheimavelli mjög fljótlega. Þessi ferð hefði ekki orðið að raunveruleika nema með hjálp margra góðra aðila, en einn maður á þó skildar meiri þakk- ir en aðrir og hann heitir Arsæll Már Arnarson. Takk fyrir okkur. Fólk með fullu viti. Asdís Ulfarsdóttir, Elísabet Sigmarsdóttir, Jón Þór Olafsson, Magnús Þór Guðjónsson, Margrét Edda Stefánsdóttir, Rúnar Þór Valdimarsson, Þorsteinn Sölvason og Arsæll Már Arnarson. smekk stráksins til að skýla nekt sinni. Það fór ekki milli mála að þetta vakti athygli en svo mikið pískur og hlátur að eiginkonunni varð ekki um sel. Hún fór nú að athuga umbúnað manns síns betur og þá kom í ljós að framan á smekknum stóð stórum stöfum: Yndið hennar mömmu. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.