Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 24
Snorri Þorsteinsson: KVEIKJUM LJÓS Ihinu forna spekikvæði, Hávamálum, er þetta erindi: “ Haltur ríður hrossi, hjörð rekur handarvanur, daufur vegur og dugir, betri er blindur en brenndur sé, nýtur manngi nás.” Það segir okkur að allt frá upphafi byggðar hafa hér verið einstakl- ingarþarsemeins og Þórarinn Eld- járn orðar það í ljóði sínu “Óli” “ókunnar leiðir voru rofnar af óþekktu meini” og vegna þess geta ekki haft sama vald yfir líkama sínum, skilningarvitum eða hugsun og almennt gerist. Það segir okkur einnig að á þeim tíma þótti sjálfsagt og eðlilegt að þeir legðu sitt af mörkum eftir því sem geta leyfði, meðan líf entist. Fatlaðir einstaklingar eru meira upp á stuðning og liðsinni annarra komnir og eiga að flestu leyti örðugra en þeir sem ekki búa við fötlun. Þrátt fyrir það er þeim oft gefin mikil lífs- gleði, einlægni og mannleg hlýja sem gerir þeim auðvelt og eðlilegt að leggja sitt af mörkum til að gleðja aðra, en kunna þó einnig vel að njóta af hjartans gleði þess sem gert er þeim til ánægju og skemmtunar. að haggar þó ekki þeirri stað- reynd, að það tekur langan tíma að vinna upp það sem fötlunin hefur skert. Til þess þarf mikinn stuðning, markvissa þjálfun og oft sérstakar Hlerað í hornum Forstjórinn spurði undirmann sinn hvort rétt væri að hann hefði eignast erfingja. Hann svaraði: “Herra for- stjóri. Með mín laun eignast maður ekki erfingja, bara börn”. *** Presturinn gekk framhjá skrúðgarði Jóns og fór að dást að hinum fagra Ávarp formanns svæðisráðs við athöfnina ”Kveikjum ljós” í Stykkishólmi á vegum Öryrkjabandalags íslands föstudaginn 12. desember 1997 aðstæður sniðnar að þörf hins fatlaða til þess að gera honum eða henni kleift að njóta þeirra gæða og þæginda dag- legs lífs sem almennt er krafist og samfélag okkar telur sjálfsagðan rétt hvers og eins. Sköpun slíkra að- stæðna kostar oft á tíðum sérstök fjár- framlög hins opinbera og því miður hefur róður fyrir þeim oft verið þung- ur og kostað langan barning. Undir þeim árum hafa samtök fatlaðra, Öryrkjabandalag Islands og aðildar- félög þess og Landssamtökin Þroska- hjálp, setið um skeið og hafa margir haldið þar rösklega um hlumma. Setning laganna um aðstoð við þroskahefta, sem tóku gildi 1. jan. 1980, markaði þáttaskil í þróun þess- ara mála og með þeirri lagasetningu fengu nútímaleg sjónarmið varðandi þjónustu við fatlaða byr og sá byr létti róðurinn næstu árin. En stefna og við- horf í þjónustu við fatlaða taka hröð- um breytingum, eins og allt annað og nú eru kröfur gerðar um fulla aðild á öllum sviðum þjóðlífsins, um tæki- færi til menntunar, starfs og eigin búsetu, kröfur um stjóm á eigin lífi og viðurkenningu á því að fatlaðir séu garði: “Mikið hafið þið Drottinn gert garðinn fallegan.” Þáhnussaði í Jóni: “Þú hefðir nú átt að sjá hann, prestur minn, meðan Drottinn var einn með hann.” Hann: “Mér þykir vænna um þig með hverju árinu sem líður. Þú ert alltaf að verða mér dýrmætari.” Hún: “Mikið er sætt af þér að segja þetta.” Hann: “Já, antik er dýrmætt.” fullgildir þegnar þjóðfélagsins. Með öðrum orðum um það að þjálfun og liðveisla skuli beinast að því að gera þá færa til þess að taka á eigin for- sendum fullan þátt í atvinnu og menningarlífi þjóðarinnar. Krafan er byggð á sama sjónarmiði og spekikvæðið foma lýsir - því að hver einstakur finni og fái verkefni sem hann getur leyst af hendi með árangri og með því skilað hlutverki sínu til gagns fyrir sjálfan sig og sam- félagið. Þetta er forsendan fyrir kröf- unni um skólagöngu, aðgengi og störf fyrir fatlaða. Til þess að berjast fyrir og afla þeim réttinda í samfélaginu og varð- veita áunninn rétt hafa hagsmuna- samtök fatlaðra verið stofnuð og það hlýtur að verða mikil vægasta hlutverk þeirra í bráð og lengd að standa trúan og óhvikulan vörð um þennan rétt. ✓ Eg hef haft tækifæri að fylgjast með þróun málefna fatlaðra hér á Vesturlandi frá því að fyrsta svæðis- stjórn tók til starfa 1980 og til þessa dags. Þá var komið að auðu og ónumdu landi. Engin þjónusta af neinu tagi var til staðar. Síðan hefur ýmsu þokað til réttrar áttar og mörg tilefni gefist til að gleðjast. Þrátt fyrir það eru mörg stór verkefni enn óleyst og hið hrað- fara færiband tímans flytur stöðugt nýja einstaklinga sem þurfa stuðnings og þjálfunar við. Það minnir okkur á hinn óendanlega straum kynslóða sem kemur og fer á þessari jörð. au ljós sem í dag eru tendruð hér í Stykkishólmi varpa nýrri birtu á þann veg sem framundan er og munu verða leiðarljós þeirra sem að málefninu vinna, ekki aðeins í skammdegi þessa vetrar heldur langt inn í ókomna tíð. Það er ósk mín og von og í þeirri björtu von vil ég færa stjórn Öryrkjabandalags íslands innilegar þakkir fyrir komuna, jóla- ljósin og áhugann á málum okkar og þá hvatningu sem felst í heimsókn þeirra og ljósagjöf. Gleðilega hátíð. Snorri Þorsteinsson 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.