Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 18
S í B S
sótt heim
Fjölmennasta og um leið eitt
öflugasta aðildarfélag Öryrkja-
bandalagsins er SÍBS sem nú
heitir fullu nafni Samband íslenskra
berkla- og brjóstholssjúklinga. Þar
innan dyra eru deildirnar sem upphaf-
lega mynduðu SIBS, Astma- og
ofnæmisfélagið og Landssamtök
hjartasjúklinga. SIBS á stórafmæli á
árinu, verður 60 ára gamalt og á
sannarlega mikla og
merka sögu, varðaða
mörgum dýrmætum
áföngum á sóknar- og
sigurleið. Núverandi
formaður Öryrkja-
bandalagsins og
stjórnarmaður þar til
margra ára er einmitt
SÍBS-maðurinn
Haukur Þórðarson og
annar forystumaður
Öryrkjabandalagsins
um áratugaskeið var
Oddur Ólafsson sem
einnig kom frá SÍBS.
Það var sannar-
lega kominn tími til
þess að sækja heim
höfuðstöðvar SÍBS
sem vel að merkja eru að Suðurgötu
10 í Reykjavík þó margir haldi að
höfuðbólið Reykjalundur hýsi skrif-
stofur sambandsins. Annars kemur
SIBS svo miklu víðar við en á Reykja-
lundi s.s. síðar mun að vikið nokkru
nánar.
Eitt þriðjudagssíðdegi lögðum við
Asgerður framkvæmdastjóri leið
okkar niður í Suðurgötu 10 til fundar
við formann okkar og SÍBS um leið,
Hauk Þórðarson og hans fríðu áhöfn
þar.
Haukur tók okkur þar fagnandi
ásamt þeim Helgu Friðfinnsdóttur
framkvæmdastjóra Happdrættis SIBS
og Jóni Þór Jóhannssyni sem er
starfsmaður SIBS og titlaður fulltrúi
stjórnar. Fjölmargt bar á góma og
fróðleikur mikill og margþættur
færður okkur Asgerði, en aðeins fátt
af því öllu sem hér fer á eftir.
Sambandið sjálft ogfélög þess
SIBS eða Samband íslenskra
berklasjúklinga eins og það þá hét var
sem sagt stofnað á Vífilsstöðum í
október 1938 og varð snemma öflugur
málsvari berklasjúkra og dýrmætt
baráttuafl gegn berklaveikinni.
Alltframtil 1974 varþettaeinslitt
félag þ.e. félag berklasjúkra.
Deildir þess voru víðs vegar um
landið með ágætu og árangursríku
starfi, enda voru berklar á öðrum
hvorum bæ og vandi að verjast. Um
miðjan sjötta áratuginn komu lyf við
berklunum sem gjörbreyttu þessu í
einni svipan ef svo má segja. Það
fækkaði í gömlu berkladeildunum á
sjöunda áratugnum og nú eru fáar
einar starfandi í raun.
Haukur segir Reykjavíkurdeildina,
sem Rannveig Löve stýrir, eðlilega
vera með mesta burði. Hann nefnir
einnig deildir á Reykjalundi og Vífils-
stöðum þar sem unnið er með þá sem
þjást af svefnháðum öndunartrufl-
unum.
Samtök astma og ofnæmis komu
svo inn í SÍBS 1974 en heita nú
Astma- og ofnæmisfélagið sem er nú
og hefur lengi verið undir forystu
Hannesar Kolbeins.
Landssamtök hjartasjúklinga
gengu svo inn í SÍBS 1992 en for-
maður þar er nú Gísli J. Eyland en
Sigurður Helgason formaður á undan
honum. Innan Landssamtaka hjarta-
sjúklinga eru starfandi deildir vítt um
landið og innan samtakanna er einnig
Neistinn- styrktarfélag hjartveikra
barna.
Og eftir gagngerðar breytingar á
húsnæði SIBS í Suðurgötu 10 sem er
raunar hið mesta völ-
undarhús þá eru öll
þessi aðildarfélög og
auðvitað sambandið
sjálft og happdrætti
þess undir sama þaki.
SIBS er fjölmennast
aðildarfélaga
Öryrkjabandalagsins
með um 6000 félaga
þar af munu um 3400
manns í Landssam-
tökum hjartasjúkl-
inga.
Haukur sagðist
gjarnan vekja athygli
félaga sinna á Norð-
urlöndum á því að
2,2% þjóðarinnar
væru innan vébanda
SIBS og kæmi þá gjarnan skemmti-
legur undrunarsvipur á menn.
eir Jón Þór og hann sögðu frá því
að LHS menn væru einkar
duglegir að fá nýja félaga, gripu menn
glóðvolga eftir aðgerð eða í endur-
hæfingu enda hið besta mál, ekki bara
fyrir félagið heldur ekki síður fyrir
mennina sjálfa, sem færu þá að taka
virkan þátt í félagsstarfi.
Samtök lungnasjúkra voru stofnuð
á liðnu ári, það munu aðallega vera
sjúklingar með lungnateppu, þessi
samtök hafa sótt um aðild að SÍBS og
verður það mál afgreitt á þingi SÍBS
nk.haust.
Annars sögðu þeir félagar að
skipulagsmál væru mjög til umræðu
á vettvangi sambandsins og síðasta
þing SIBS ræddi skýrslu Hallgríms
Bergssonar um skipulagsmál og
18