Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 46

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 46
Gamlar gátur Hún Kristín Jónsdóttir starfs-, maður hér kom með þessar gömlu gátur og færði ritstjóra, sem fagnandi tók þeim. Gáturnar hafði Kristín fyrir margt löngu skrifað upp eftir frænku sinni, Elínu Þorbjarnar- dóttur, ljóðelskri fróðleikskonu, sem hefur áður lagt okkur sitt ljúfa lið. Og þá koma gáturnar, miserfiðar eins og gengur. 1. Mey var manni gefin áður en hún var átta nátta, átti bamið ársgömul og dó áður en hún fæddist? 2. A hvaða tré eru blöðin öðrum megin svört en hinum megin björt? 3. Hvað hétu uxar konungs í höllu, annar hét á öllu en hinn af öllu? 4. Aldrei er ég einburi, oftast er ég tvíburi, þó er ég stundum þríburi, en þó oftar er ég fjórburi? 5. Hver fær kindur bóndans án þess að borga þær? 6. Fótalaus um flestar nætur en fær þess oftar á daginn bætur? 7. Hvað er innan loðið og utan snoðið? 8. Illt á prófi, oft af sauði af því getur hlotist dauði? 9. Hvað er það sem hækkar þegar höfuðið fer af? 10. Hvað er það sem tollir við allt? 11. Hvað er fullt á hvolfi en tómt upp í loft? 12. Hver á flest spor á íslandi? 13. Hvert er það konunafn “svo vilja allir...?” 14. Maður kom að bæ og pissaði upp við nafna sinn. Hvað hét sá? 15. Hvert er það stökk sem reiðum veitist auðveldast, en óreiðum örðugast? 16. Ég er barin, brennd og gegnumrekin, fótum troðin, úti æ, en ómissandi á hverjum bæ? 17. Hvenær er heimskinginn hyggnastur? 18. Sonurinn stendur í dyrum áður en faðirinn er fæddur? 19. Hvað er það á bænum, er þegir, en þó öllum satt segir? 20. Hvað rennur allan daginn og sést þó ekkert spor eftir? 21. Hver er sú fjöl, sem liggur ætíð í vatni, en fúnar þó ekki? Allar þá hér komnar, tuttugu gátur og þó einni betur og nú fáið þið að spreyta ykkur. Ráðningar eru á bls. 47 Meginreglur SÞ á Alþingi Eitt af síðustu verkum Ólafar Ríkarðsdóttur sem formanns Öryrkjabandalagsins var að senda erindi til félagsmálaráðherra um meginreglur Sameinuðu þjóðanna, þess efnis að biðja ráðherrann um kynningu þessara þýðingarmiklu reglna á Alþingi Islendinga. Beiðnin var út af fyrir sig ekki ný af nálinni, en nú var henni fylgt eftir af enn meiri þunga og þess sérstaklega óskað að þessi kynning færi fram á alþjóðadegi fatlaðra 3.desember. Ráðherrann, Páll Pétursson, brást hið bezta við erindinu og reit bréf til forseta Alþingis með beiðni um að fá til þess tíma að kynna þessar merku meginreglur. Forsetadæmið mun hafa tekið þessu vel og þó alþjóðadagur fatlaðra yrði ekki fyrir valinu, þá var málið tekið fyrir á Alþingi næsta dag eða 4.desember. Félagsmálaráðherra kynnti meginreglurnar en hafði til þess alltof knappan tíma eða tíu mín- útur og mörgum atriðum því ekki gerð þau skil sem þurft hefði. En ráðherra fór yfir reglurnar og ræddi svo hversu við værum á vegi stödd gagnvart hverri um sig. Fulltrúar þingflokka fengu svo sinn knappa tíma einnig en þar töluðu: Rannveig Guðmunds- dóttir fyrir jafnaðarmenn, Arnbjörg Sveinsdóttir fyrir sjálfstæðismenn, Svavar Gestsson fyrir Alþýðubanda- lagið, Kristín Halldórsdóttir fyrir Samtök um kvennalista og Kristín Astgeirsdóttir utan flokka. Ráðherra veitti svo andsvör í lokin. Margt ágætt kom fram í þessum umræðum, bæði hvað varðar stöðu mála hér í dag svo og þá framtíðarsýn sem hafa bæri í heiðri. Kjaramál öryrkja komu mjög til umræðu og vakin verðug athygli á þeirri vondu staðreynd að hámarks- bætur trygginganna eru snöggtum lægri en lágmarkslaun í landinu. essi kynning var þörf svo langt sem hún náði, því heildartími umræðunnar voru þrír stundarfjórð- ungar og augljóst að svo viðamiklu og margslungnu verkefni verða ekki gerð skil á svo skömmum tíma. En eigum við ekki að segja að þetta hafi verið bærileg byrjun og nú hefur ráðuneyti félagsmála gefið út sérrrit um meginreglumar, svo aðgengilegar em þær öllum sem vita vilja betur um eðli þeirra og markmið öll. Alla vega eru orð til alls fyrst eins og fyrri daginn og ágæta umræðu ber að þakka, þó orðin hefðu að ósekju mátt vera fleiri, en mestu skiptir þó að í verki verði góð orð að veruleika dagsins. H.S. 46

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.