Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Page 11

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Page 11
Ferlimál á alþjóðadegi fatlaðra að fólk sem fylgist með málefnum fatlaðra, að ekki sé nú talað um ferlimál, hefur ugglaust veitt því eftirtekt að á alþjóðadegi fatlaðra - 3. des. hefur Sjálfsbjörg- landssamband fatlaðra nýtt hið gullna tækifæri vel á undan- fömum árum. Vakin hefur verið verð- ug athygli á ferlimálum og af því tilefni tölti ritstjóri til Guðmundar frænda síns Magnússonar yfir í Dag- vist Sjálfsbjargar og tók hann tali um framtak þetta. Guðmundur er nefnilega formaður ferlinefndar Sjálfsbjargar, segist hafa tekið við af Guðríði Ólafsdóttur, þegar hún varð formaður Sjálfsbjargar. Raunar hét nefndin áður: Starfsnefnd Sjálfsbjargar um ferlimál, en heitir nú: Ferlinefnd Sjálfsbjargar. Guðmundur segir nefndina vera níu manna, alls staðar að af landinu. Svo skemmti- lega vildi til að einmitt þennan dag sem ritstjóri ræddi við Guðmund - árla morguns auðvitað - þá var framundan fundur í nefndinni og síminn þá gjarnan nýttur til að samband sé við nefndarmenn í Neskaupstað og á Akureyri. Að sögn Guðmundar þá var það árið 1995 sem þessi dagur var fyrst nýttur til þessa þarfa málefnis en þá var það líka gjört af miklum myndarskap. Samkoma mikil var í Háskólabíó haldin og töluvert mikið um dýrðir. Efnt hafði verið til leikrita- samkeppni um málefnið, til 1. verðlauna valinn einþáttungur eftir þrjá sjúkraþjálfara, hann sýndur og þótti sómi að. Nú svo voru veittar viðurkenningar fyrir gott aðgengi. Mat þar á höfðu þeir Carl Brand og Guðmundur haft með hönd- um, en fyrirkomulagið það að Sjálfsbjörg - ferlinefnd - auglýsir eftir þeim sem vilja láta meta aðgengi hjá sér, það er svo gjört í nóvember í síðasta lagi til að kanna hvort viðkomandi sé verður viðurkenningar, þetta hefur verið gjört svo öll árin og gefist vel. Nú 1996 var svo haldið í Kringl- una, m.a. vegna þess að hluta af Kringlunni var veitt viðurkenning fyrir gott aðgengi. Þar var hin ágætasta dagskrá þar sem mætir listamenn stigu á stokk og það náðist að vekja athygli hjá gestum Kringlunnar, (sem ekki eru nú sérstak- lega fáir á þessum tíma), á málefninu og eins sinntu fjölmiðlar þessu ágæt- lega. Og þá erum við komin yfir á árið 1997 og ég bið Guðmund að lýsa síð- asta átakinu 3. des. sl., en ritstjóri var þar einnig á vettvangi og þótti mæta- vel til takast. Guðmundur minnti í þessu sam- bandi á það að Sjálfsbjörg veitir ekki bara viðurkenningar fyrir gott aðgengi, það er einnig af alvöru áminnt þar sem aðgengis er ekki gætt sem skyldi eða þá að það er alls ófull- nægjandi. Þess vegna er Þrándur í Götu einnig til og sú áminning þeim gefin sem þykja lakastir allra. Þannig var það með umhverfisráðuneytið 1994, en það hafði þá flutt í Vonar- strætið og aðgengi einfaldlega ekkert og því sjálfgefið að þetta ráðuneyti sem á að sjá til þess að umhverfi allt sé aðgengilegt fengi Þránd í Götu sér til alvarlegrar áminningar. Nokkur bragarbót hefur þarna orðið með stigalyftu, þó ekki sé hún nú nógu góð og beinlínis getur hún verið varasöm, því hún er alltof mjó að mati Guðmundar. En bót í máli þó. Að lokinni úttekt á bragarbótinni þótti einhver viðurkenning verðug og því var það að 3. desember sl. var fyrst haldið í umhverfisráðuneytið þar sem Guðríður Ólafsdóttir flutti ávarp og festi svo rós í hnappagat Guðmundar Bjarnasonar umhverfisráðherra sem viðurkenningu þó fyrir gjörð þessa, sem tákn þess um leið að Þrándur í Götu hefði skilað sínu. Þaðan var svo haldið í Listasafn Islands, fólk kveikti á kyndlum sínum og var blysum brugðið á loft. Listasafn Islands var valið sem einn þeirra staða sem viðurkenningu hlutu að þessu sinni. Allnokkurhópur var þarna samankominn og m.a. var félagsmálaráðherra Páll Pétursson þarna á vettvangi. Guðríður Ólafsdóttir ávarpaði fólk og bauð það velkomið og greindi um leið frá baráttu Sjálfs- bjargar í ferlimálum. Tvær ungar kon- ur Sophie og Marion léku hljómþýð lög á hörpu af list og snilli. Guðmundur Magnússon - formað- ur ferlinefndar Sjálfsbjargar afhenti svo þrem aðilum viðurkenningu fyrir gott aðgengi: Ólafi Kvaran f.h. Lista- safns íslands, Tryggva Ámasyni f.h. Listhússins í Laugardal og Sveinbirni Sigurðssyni f.h. Sjúkraþjálfarans ehf. Þá söng Ingveldur Yr Jónsdóttir við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmunds- dóttur, tær og falleg rödd ómaði um sali og af varð yndi gott fyrir eyru manns og sál. Guðríður flutti svo lokaorð og bað menn þiggja smáveitingar, sem gestir gjörðu sér svo gott af. Þrátt fyrir lög og reglugerðir sem eiga aðgengi sem allra best að tryggja þá er víða enn Þrándur í Götu og þörfin brýn að minna á nauðsyn aðgengis fyrir alla. Jafn- framt er verðugt verkefni að veita þeim viðurkenningu sem vel gjöra. Ferlinefnd Sjálfsbjargar er þarna að gjöra góða hluti og það er einkar vel við hæfi að nýta alþjóðadag fatlaðra til að minna á ferlimálin. Guðmundi er þakkað gott spjall. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 11

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.