Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Page 17
með fylgihlutum, persónulyftara svo-
kallaða, öryggisþjónustu og bleiur.
Og það var einmitt í jan. sl. sem
gerðir voru samningar um spelkur,
gervilimi og skó. Er þá komið að
kynningu þ.e. öðru versi.
Bœkliinarskór -
nýjar reglur
fyrsta lagi þá samdi Trygginga-
stofnun ríkisins við fjögur fyrir-
tæki um að smíða og selja bæklunar-
skó og hver umsækjandi getur því
valið á milli þessara fjögurra en þau
eru:
Orthos Orthopedi Tækni, Skó-
stofan ehf., Stoð stoðtækjasmíði hf.,
og Stoðtækni Gísli Ferdinandsson
ehf.
Umsækjandinn fær sem sagt svar
við umsókn sinni um þessa fjóra aðila
sem hann ákveður svo sjálfur hver
vinnur verkið fyrir hann.
En svo koma reglurnar og í stað
ákveðinnar hlutdeildar TR í prósent-
umkemurnúföstfjárhæð. Viðfyrstu
umsókn er unnt að fá samþykkt tvö
pör, síðan eitt par á ári. Fyrir börn og
unglinga tvö pör á ári. Unnt er að fá
tvö pör á ári, ef um er að ræða veru-
lega afmyndun fóta og mjög virkan
einstakling.
Styrkupphæðir eru þessar:
Tilbúnir bækiunarskór: TR greiðir
fastan styrk, hámark kr. 21 þús í
hverju skópari fyrir sjúkratryggða ein-
staklinga. Fyrir slysatryggða er styrk-
urinn hámark kr. 23 þús. Sérsmíðaðir
skór: TR greiðir fastan styrk, hámark
kr. 55 þús í hverju skópari fyrir sjúkra-
tryggð börn yngri en 12 ára. Fyrir
slysatryggð börn yngri en 12 ára er
hámarkið 60 þús. kr. TR greiðir fastan
styrk, hámark kr. 85 þús í hverju
skópari fyrir sjúkratryggða en 90 þús.
kr. hámark f. slysatryggða. Þó er til
sérregla sem svo hljóðar: Sá sem fær
samþykktan styrk til kaupa á sérsmíð-
uðum skóm getur þó nýtt slíkan styrk
til kaupa á fleiri pörum af sérsmíð-
uðum, hálftilbúnum skóm eigi hann
þess kost, þó hámark þrjú pör á ári.
ðeins til að greina muninn -
sjúkratryggður eða slysa-
tryggður þá gildir hærri upphæðin um
þá sem þurfa slíka skó vegna afleið-
inga slyss sem samþykkt hefur verið
bótaskylt s.s. íþróttaslys, vinnuslys,
slys við iðnnám, björgunarstörf eða
heimilisstörf.
Björk segir þessa leið með fastan
styrk reyna meira á neytandann um
val og ábyrgð en áður hefur tíðkast.
Hún nefnir að þessi leið með skóna
hafi m.a. verið valin vegna ábendinga
frá Samkeppnisráði, skórnir þóttu
sérlega vel til þess fallnir að fara þessa
leið.
Samþykki TR fyrir skóm fer nú
beint til notanda, sem velur fyrirtæki
til skókaupa, eitt þessara fjögurra
fyrrtöldu og afhendir því samþykkið
og gengur frá kaupum. Fyrirtækið
rukkar svo TR um andvirði styrksins.
Þýðir það á móti, að ef viðkomandi
kaupir dýrari skó en styrktarupphæð
nemur, þá þarf hann eða hún að greiða
fyrirtækinu mismuninn. Skilyrði fyrir
greiðslu er að móttakandinn hafi kvitt-
að fyrir skónum og samþykkt heildar-
kostnað.
Ef viðkomandi býr úti á landi dugir
póstkvittun. TR greiðir vel að merkja
fyrir póstkostnað ofan á styrktar-
upphæð svo allir sitji við sama borð
þannig hvar sem þeir búa. Skósmíða-
stofu ber að varðveita vinnslugögn
tengd skósmíði viðkomandi t.d. mót,
leista og snið. Gögnin eru eign skó-
notandans og ef hann eða hún vill
skipta um skósmíðastofu fær viðkom-
andi gögnin sér að kostnaðarlausu.
Björk vildi ítreka við fólk að sækja
fyrst urn til Tryggingastofnunar
ríkisins áður en farið er í fyrirtækin,
því nú er það viðkomandi sem fær
svarbréfið.
Hún vildi einnig koma því á fram-
færi að ráðgjafarhópur er starfandi um
hjálpartækjamál, bakhópur fyrir
Hjálpartækjamiðstöð þar sem m.a. er
fulltrúi neytenda sem nú og um nokk-
urt skeið hefur verið Ólöf Ríkarðs-
dóttir, sem gagnkunnug er þessum
málum. Þessi ráðgjafarhópur er til
ráðuneytis vegna útboða og samn-
inga. Hann er mikilvægur og hann
var hlynntur þessum nýju reglum.
Fokaorð Bjarkar eru um ýmis
áhersluatriði, er hún vill komaá fram-
færi við fólk sem þarf á hjálpartækjum
að halda af hvaða tagi sem er. Hún
biður fólk hiklaust að hafa samband
ef því þykir einhverju ábótavant.
Björk biður fólk einnig eindregið að
fylgjast vel með hjálpartækjum sín-
um, fara vel með þau svo sem föng
eru á og hafa samband í tæka tíð vegna
viðgerða sem fyrirsjáanlegar eru og
skila þeim til Hjálpartækjamiðstöðv-
ar að notkun lokinni vegna endurnýt-
ingar á þeim. Það er auðvitað full
ástæða til að fólk sé ábyrgt gagnvart
þessum dýru en jafnframt dýrmætu
hjálpartækjum. Nokkurn veginn orð-
rétt sagði Björk svo í lokin: “Við
erum til taks, við eigum gott samstarf
við neytendur og viljum hafa það sem
allra best, á því græða allir. Hjálpar-
tækjamiðstöðin er ekki gömul stofn-
un, tæpra tólf ára, þróunin er ör en
hefur gengið vel, við erum enn á þró-
unarstigi. Við samtök fatlaðra vilj-
um við hafa samstarf sem allra best
og vonum að sú sé raunin, ráðgjafar-
nefndin er einmitt gott dæmi þar um”,
segir Björk.
að skal vottað hér að hún Björk
er alltaf reiðubúin til samráðs og
til að veita fyllri upplýsingar um
hvaðeina. Gott dæmi um það eru þær
viðræður sem við Asgerður og Sigur-
rós áttum eftir áramótin nú, þegai' nýju
reglurnar um skóna - fastur styrkur í
stað prósentu - voru settar.
Við vonum að þær muni leiða til
góðs, en ef misbrestur verður þar á
hefur því verið lýst yfir að sjálfsagt
sé að fara ofan í þau mál að nýju.
Ritstjóri þakkar Björk fyrir hennar
ágætu upplýsingar og hlýjar mót-
tökur.
Hlýjar móttökur og greinargóðar
upplýsingar skipta vipskiptavinina
mjög miklu þegar þeir leita aðstoðar
varðandi hin margvíslegu hjálpartæki.
Viðmótið skiptir miklu þar eins og alls
staðar og trú okkar sú að það sé aðall
þessarar þörfu stofnunar.
Eins og áður segir er Hjálpar-
tækjamiðstöðin til húsa að Smiðju-
vegi 28. Síminn er 557-4250. Stofnun
sem starfsfólki öllu er alls góðs árnað
í ágætum störfum.
H.S.
Hlerað í hornum
Maður einn gisti á hóteli, þar sem þil
voru þunn milli herbergja. I næsta
herbergi var par eitt og meðal þess
sem maðurinn heyrði æ ofan í æ var:
“Hver á þennan litla sæta bossa?”
Honum leiddist þetta, barði bylmings-
högg í þilið og kallaði: “Getið þið
ekki komið ykkur saman um hver á
þetta rassgat, svo ég geti fengið svefn-
frið.”
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDAFAGSINS
17