Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Qupperneq 19
hugmyndir að fram-
tíðarsýn og hafði sitt
sýnst hverjum og
engin ákvörðun verið
tekin.
Stjórn SÍBS er nú
skipuð níu mönnum
og þrem til vara. 3
frá hverjum- SÍBS
deildunum, LHS og
Astma og ofnæmis-
félaginu og svo einn
til vara frá hverjum.
Núverandi stjórn er
skipuð svo: Haukur
Þórðarson formaður,
Davíð Gíslason vara-
form.; aðrir í stjórn:
Björn Ólafur Hall-
grímsson, Gísli J Eyland, Hannes
Kolbeins, Sigurður Helgason, Þor-
bergur Þórðarson, Þorbjörn Arnason
og Þorsteinn Sigurðsson. Til vara: Jón
Þór Jóhannsson, Sigrún Bjarnadóttir
og Thelma Grímsdóttir. Reiknað er
með að áætlun um innra skipulag
sambandsins verði afgreidd á næsta
þingi SÍBS í haust.
Happdrœtti SÍBS
ramkvæmdastjóri happdrættis-
ins, Helga Friðfinnsdóttir og
Haukur sögðu svo frá hinni drjúgu
tekjulind sem happdrættið væri og
hefði verið, svo sköpum hefði skipt
fyrir alla uppbyggingu á vegum sam-
bandsins. Happdrættið verður 49 ára
á þessu ári, það er til þess stofnað með
sérstökum lögum frá Alþingi. Gísli
Jónsson, þingmaður Barðstrendinga,
var fyrsti flutningsmaður lagafrum-
varpsins, en það fluttu þingmenn allra
flokka og um það eining góð. I sögu
SIBS frá 50 ára afmælinu er einmitt
bráðskemmtileg frásögn af því þegar
Gísli tók málið að sér með öllum þeim
röskleika og krafti sem honum fylgdi.
Gísli reyndist SIBS með afbrigðum
vel, gaf SÍBS útgáfurétt á bókum sín-
um og gaf sambandinu sumarbústað
sinn á Þingvöllum, Hrafnagjá, sem
enn er nýttur vel. Höfðingleg rausn
hans er í mætum minnum höfð.
Við happdrættið starfa alls 8 manns
í 7 1/2 stöðugildi, framkvæmda-
stjórinn, 3 í aðalumboðinu, gjaldkeri,
fulltrúi, starfsmaður í hálfu starfi og
síðast en ekki síst er samskiptaaðili
við öll umboðin en umboðsmenn á
landinu öllu eru yfir 100 og eðlilega
veltur gæfa happdrættisins mjög á
þeim. Þau sögðu okkur skemmtilega
sögu af umboði í kjallara húss á
horninu á Grettisgötu og Frakkastíg,
umboði sem þar hefði verið frá upp-
hafi og væri stærsta umboðið í
Reykjavík hvað sölu varðaði fyrir
utan aðalumboðið. Þar værinúþriðja
kynslóðin að koma til að kaupa og
endurnýja. Guðbjörg sú sem þar ræð-
ur ríkjum gegndi í margri grein hlut-
verki félagsmálastofnunar fyrir marga
í raun og leysti úr málum og greiddi
leið fólks. Helga sagði ekki ástæðu
til að kvarta yfir afkomu happdrætt-
isins, undanfarin ár hefði það skilað
hagnaði 30-34 millj.kr. árlega. Þau
Helga og Haukur bentu á það að lög-
ákveðið væri hversu ágóðanum skyldi
varið þ.e. til uppbyggingar á Reykja-
lundi, uppbyggingar og reksturs
Múlalundar og til annarrar félags-
málastarfsemi SIBS. Því hefur svo
sannarlega verið fylgt í hvívetna.
Reykjalundur
ér í blaðinu hefur sú holla
heilsustofnun Reykjalundur
verið að verðleikum kynnt, en SÍBS
á Reykjalund, þar hófst starfið, þar var
stórvirkið mest unnið fyrir hag og
heill berklasjúkra og síðar ótalinn
fjölda alls kyns sjúklinga sem þangað
hafa sótt endurnæring og margra
meina bót. Reykjalundur hefur s.s.
Múlalundur 5 manna stjórn, þar af er
einn fulltrúi starfsfólks á báðum stöð-
um og á Reykjalundi er einnig einn
þessara fimm frá heilbrigðisráðu-
neytinu skv. lögum þar um.
Reykjalundur stendur auðvitað
fyrir hvoru tveggja:
endurhæfingarmið-
stöð og framleiðslu-
stað. Framleiðslan á
Reykjalundi er nær
öll tengd plasti: plast-
rör, plastfilma og
plastumbúðir margs
konar. Með vaxandi
véltækni hefur fram-
boð á vinnu breyst
mikið, mannshöndin
kemur ekki lengur að
í svo ríkum mæli sem
áður var.
Þarna eru 25
öryrkjar í vinnu bú-
andi annars staðar og
auðvitað munar veru-
lega um það. Nú orðið er lítt um það
að vistfólk á Reykjalundi sé þarna í
starfshæfingu. Hins vegar segir
Haukur það vera framtíðardraum að
iðjuþjálfun verði tengd við beina
starfsþjálfun og í því sambandi bendir
Haukur einnig á æskileg tengsl við
Starfsþjálfun fatlaðra, en umræður þar
um hafnar. Það er við marga og ólíka
sjúkdóma fengist á Reykjalundi og
starfseminni skipt í svið sem eru: mið-
taugakerfissvið, gigtarsvið, verkja-
svið, hæfingarsvið, lungnasvið,
hjartasvið, geðsvið og næringarsvið.
Þarna er til staðar sjúkraþjálfun, iðju-
þjálfun, heilsuþjálfun, talþjálfun,
félagsráðgjöf að ógleymdri hjúkrun-
inni. A Reykjalundi er bæði almenn
rannsóknarstofa og svo hjarta- og
lungnarannsóknarstofa og er þá margt
ótalið. Á Reykjalundi eru 170 rúm,
þar eru um 340 starfsmenn í 260
stöðugildum. Meðaldvalartími fólks
er u.þ.b. 6 vikur.
✓
Aárinu 1997 voru dvalar- eða
legudagar samtals 61828. Skipt-
ing sjúklinga eftir komuástæðum
1997: (Sjá töflu á næstu síðu)
Eins og sést af þessu þá eru það
gigtsjúkdómar og svo hjarta- og
æðasjúkdómar sem flesta hrjá, en
aðrir sjúkdómar svo sem lungnasjúk-
dómar fylgja þarna fast eftir. Talan
1319 sýnir okkur vel hina gríðarlegu
þýðingu Reykjalundar í endurhæfingu
hér á landi, en biðtími til að komast
þangað mun umtalsverður, svo mikil
er ásóknin. Sá, sem hefur notið þess
mikla endurhæfingarstarfs sem þarna
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19