Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Qupperneq 21
TVÆR ÁGÆTAR
ATHAFNIR
Ritstjóri má til með að geta hér tveggja
ánægjulegra athafna sem honum hlotnaðist
að vera viðstaddur laust fyrir miðjan febrúar.
Þar komu ágæt félög Öryrkjabandalagsins við sögu,
við aðra athöfnina beint þar sem var Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra sem bauð til athafnar, hin óbeint
þar sem Rauði kross Islands bauð til afmælishátíðar
Vinjar, en Geðhjálp og Geðverndarfélagið eiga þar sína
skjólstæðinga. Örstutt frásögn fylgir hér.
Brjóstmynd af Svavari
Pálssyni
Föstudaginn 12.febrúar var afhjúpuð brjóstmynd af
frumkvöðlinum Svavari Pálssyni í húsakynnum
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 11-
13 við hátíðlega athöfn en látlausa. Fjöldi góðra gesta
var þarna viðstaddur en Sigrún Benediktsdóttir bauð
fólk velkomið og að þiggja veitingar góðar sem á borð
voru bornar. Þá var haldið í anddyri húsakynna Styrkt-
arfélagsins, en þar beið brjóstmyndin afhjúpunar.
Þar flutti snjallt ávarp Össur Kristinsson f.h. gefenda
myndarinnar, Össurar hf. og Steinars S. Waage hf.
Hann sagði að með mynd þessari vildu þeir gefendur
heiðra mæta minningu þess manns er var aðalstofnandi
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, hefði kveikt áhuga-
eld hjá svo mörgum um að breyta samfélaginu til hags-
bóta fyrir fatlaða. Þannig hefði lítill lækur orðið að
breiðri elfi.
Svavar Pálsson lagði áherslu á almennt bætt mannlíf
í landinu með áherslu á málefni fatlaðra. Ahugi hans á
hjálpartækjum hefði einstakur verið og hann hefði
vakið áhuga þeirra tveggja sem hér að stæðu, Steinars
Waage en fyrirtæki hans er nú 40 ára og Össurar
Kristinssonar en hans fyrirtæki er nú 27 ára og er
einmitt að flytja í nýtt glæsilegt húsnæði.
Össur minnti svo á stofnun Styrktarfélagsins, en
stofnfélagar voru 25 árið 1952.
Svavar var formaður þess félags í 20 ár. Hann kom
mjög víða við, var m.a. í stjórn Öryrkjabandalags
Islands og í endurhæfingarráði auk sinna meginstarfa
og alls konar aukastarfa annarra en Svavar var um árabil
forstjóri Sementsverksmiðjunnar, réðist þangað á
erfiðleikatímum þess fyrirtækis og vann það upp. Össur
bað síðan Svavar Stefánsson, barnabarn Svavars að
afhjúpa brjóstmyndina en hana höfðu gert af mikilli
prýði Gestur Þorgrímsson og Guðný Magnúsdóttir.
Stefán sonur Svavars þakkaði þennan sóma sýndan
minningu Svavars f.h. móður sinnar og systkina.
Félagið hefði verið snar þáttur í lífi hans og hann fórnað
því kröftum sínum ótæpilega. Hann ámaði Styrktar-
félagi lamaðra og fatlaðra allra heilla í þjóðþrifastarfi
svo og færði hann fram árnaðaróskir til fyrirtækjanna
tveggja sem brjóstmyndina gáfu.
F.h. Styrktarfélagsins flutti Þórir Þorvarðarson,
formaður þess þakkarávarp. Svavar hefði unnið ómet-
anlegt brautryðjandastarf fyrir félagið og félaginu mikill
fengur að þessari mætu minningargjöf. Styrktarfélagið
væri stöðugt að reyna að gera betur í góðri þjónustu
sinni við skjólstæðingana.
Færði öllu starfsfólki einlægar þakkir.
Athöfnin var stutt en einkar ánægjuleg og brjóst-
myndin sjálf verulega vel gjörð.
Vin 5 ára
Fimmtudaginn 12. feb. varopið hús hjá Vin - athvarfi
RKÍ fyrir geðfatlaða að Hverfisgötu 47. Þar voru
veglegar veitingar á boðstólum en margmenni var og
þéttsetinn bekkurinn. Formaður Rauða kross Islands,
Anna Þrúður Þorkelsdóttir, flutti hið ágætasta ávarp og
lýsti gleði sinni yfir því hve vel hefði til tekist á þessum
fimm árum með sívaxandi gestakomum og aukinni
starfsemi á ýmsan veg. Amaði starfsfólki sem gestum
allra heilla með afmælið og árangursríkt starf þessara
ára. Ekki er vitað til að Rauði krossinn reki athvarf
sem eingöngu sinnir geðfötluðum annars staðar í heim-
inum.
Glögg og greinargóð ársskýrsla Vinj ar fyrir árið 1997
kom út um svipað leyti og afmælishátíðin var haldin
en með ársskýrslunni höfðu umsjón Guðbjörg
Heimisdóttir og Garðar Guðjónsson. Dæmigerður
gestur Vinjar er karlmaður, rúmlega fertugur, býr í
leiguhúsnæði eða sambýli, fær örorkubætur, engan
lífeyrissjóð, verið viðloðandi geðheilbrigðiskerfið í um
tvo áratugi. Konum hefur farið fjölgandi eða úr 14%
'95 í 34% '97. Starfsmenn eru tjórir auk starfsmanns
við ræstingar.
tarfsemin er fjölbreytt og er skemmst að minnast
myndarlegrar myndlistarsýningar á vori liðins árs.
Farið er í bíó, leikhús o.fl. farnar dagsferðir út á land.
Matur til reiðu í hádegi. Tómstundanámskeið og
líkamsþjálfun stunduð og svo mætti lengi telja.
Alls komu 277 einstaklingar í athvarfið í fyrra og
gestakomum fjölgaði milli ára um rúmlega eitt þúsund.
Fjöldi matargesta nær 3500.
Hin fjölsótta afmælishátíð og viðbrögð gesta sýna
nauðsyn þessa ágæta athvarfs og af viðræðum við
nokkra gesti athvarfsins mátti ráða afar mikla ánægju
með þetta hlýja skjól þegar kalt næddi úti sem innra
fyrir.
Rauði krossinn á einlægar þakkir skildar fyrir
framtak sitt, frábært í reynd. Öllum í Vin, starfsliði
sem gestum er góðra heilla árnað í framtíðinni. H.S
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21