Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Page 30
Erfðafjársjóðs en fær aðeins 185 af
420 millj. kr., hitt rennur beint í ríkis-
sjóð eða 235 millj.kr. Hann ræddi þá
tengingu launa og bóta sem fyrir-
huguð væri og hvergi nærri væri nógu
örugg. Þar segir að bætur hækki skv.
fjárlögum hverju sinni en “þó skulu
þær taka mið af launaþróun” í stað
þess að fylgja launaþróun eða þá
launavísitölu sem öruggast væri. Þá
væri það m.a. tryggt að launaskrið og
einstakar umframhækkanir launataxta
kæmu inn í myndina. Verðlagstrygg-
ingin væri ekki mikils virði nú um
stundir þegar launavísitala mældist og
mundi mæla mun meira en verðlags-
vísitalan.
Sagði frá fundi þeirra Ásgerðar hjá
heilbrigðis- og trygginganefnd
Alþingis þar sem þau reifuðu þessar
skoðanir algerlega í takt við álit for-
manns Landssambands eldri borgara
og forseta ASI svo og forystu
B.S.R.B. Þá lýsti Helgi miklum
áhyggjum út af því að lögbundin
framkvæmd á hækkun frítekjumarks
skyldi með öllu felld niður og málið
skilið eftir í lausu lofti, hvað fram-
kvæmd snerti. Framkvæmd frítekju-
marks byggzt á breytingum bóta og
annarra tekna milli ára, endurskoðað
og breytt 1 .september ár hvert og allir
allsáttir um alla framkvæmd. Nú
mætti allt eins haga framkvæmd að
vild þar sem hin lagalega viðmiðun
yrði felld brott. Þau Ásgerður höfðu
komið að eindregnum mótmælum við
niðurfellingu þessarar lagagreinar og
undir það tekið af áðurnefndum við-
mælendum heilbrigðis- og trygginga-
nefndar Alþingis.
✓
Asgerður Ingimarsdóttir fór þar
næst yfir þau andsvör sem
bandalagið hafði frá sér sent við
umsagnarbeiðnum um lagafrumvörp
og reglugerðir. Þar voru á ferð frum-
varp til laga um ákveðin tengsl launa
og bóta, þingmannafrumvarp ; frum-
varp um tekju- og eignarskatt, frum-
varp um umönnunargreiðslur og
reglugerð um bygginga- og skipu-
lagslög.
Las hún andsvörin sem ýrnist voru
til að lýsa yfir stuðningi, gera tillögur
og athugasemdir eða mótmæla.
Varðandi reglugerð um bygginga- og
skipulagslög var spurt um hvenær
handbókin: Aðgengi fyrir alla - kæmi
út. Ólöf svaraði og kvað hana koma
út á næsta ári.
Helgi Seljan greindi frá kynningu
á meginreglum S.Þ. en frá þeirri
kynningu á Alþingi er greint annars
staðar í blaðinu. Þá kynnti Ásgerður
Ingimarsdóttir skipan í starfsnefndir
bandalagsins til næstu tveggja ára.
Nefndirnar eru sex talsins: Skipu-
lagsnefnd undir forystu Björns Her-
mannssonar; kjaianefndundirforystu
Garðars Sverrissonar; atvinnumála-
nefnd undir forystu Hafliða Hjartar-
sonar; menntamálanefnd undir for-
ystu Ólafs H. Sigurjónssonar; félags-
málanefnd undir forystu Guðríðar
Ólafsdóttur og búsetunefnd undir
forystu Helga Hjörvar. Allar eru
nefndirnar 5 manna.
Undir liðnum: Önnur mál sagði
Garðar Sverrisson frá heimsókn
Bengts Lindquist hingað en hann var
hérdagana8.-ll. desembersl. Bengt
er umboðsmaður fatlaðra hjá Samein-
uðu þjóðunum og var hér í boði
Blindrafélagsins, Þroskahjálpar,
Mannréttindaskrifstofu íslands og
Öryrkjabandalagsins. Bengthitti m.a.
að máli forseta íslands, ráðherra og
forsætisnefnd Alþingis. Haldin var
fjölsótt ráðstefna á Hótel Sögu um
stöðu málefna fatlaðra hér á landi í
Hlerað í hornum
Hann: “Hvað myndirðu nú segja ef
ég kyssti þig?”
Hún: “Mikiðvar”.
Kona ein fyrir norðan, heldur vit-
grönn, var að segja frá því að nú væri
hún trúlofuð. Aðspurð um hvað sá
lukkulegi héti svaraði hún svo. “Ég
er nú ekki alveg viss hvað hann heitir,
en hann er kallaður Lilli og er haltur
og keyrir grænan vörubíl.”
Kona ein vestra var spurð um hvað
amma hennar hefði heitið. Þá kallaði
hún til eiginmannsins: “Æi, Nonni,
hvað hét hún amma mín nú aftur?”
Frú ein á virðulegum aldri settist í
veizlu einni við hlið afar virðulegs
prófessors á líkum aldri og hún sjálf
sem þekktur var fyrir að vera í meira
lagi utan við sig. Hún spurði pró-
fessorinn að því hvort hann þekkti sig
virkilega ekki en hann harðneitaði.
alþjóðlegu samhengi. Þar var Bengt
Lindquist aðalfyrirlesari en nokkrir
valinkunnir einstaklingar fluttu þarna
einnig erindi, skipt var í umræðuhópa
sem svo skiluðu áliti í lokin.
Garðar sagði að Bengt hefði lagt
megináherzlu á fulla þátttöku fatlaðra
hvarvetna í samfélaginu með áherzlu
á sjálfsögð mannréttindi fyrir alla.
Garðar sagði að í heimsókn til forseta
Islands hefði sú hugmynd komið upp
að efna til alþjóðlegrar ráðstefnu með
þátttöku stjórnvalda hér um mann-
réttindi og fatlað fólk.
Helgi Hjörvar sagði frá viðræðum
Bengts við utanríkisráðuneytið m.a.
um stuðning við embætti umboðs-
manns fatlaðra hjá S.Þ. og því vel
tekið þar á bæ.
Helgi spurði einnig um hversu liði
framkvæmdum við væntanlega
nýbyggingu við Sléttuveg og svaraði
Anna Ingvarsdóttir því til að undir-
búningsvinna og hönnun yrði í fullum
gangi í vetur.
Formaður óskaði svo öllum gleði-
legra jóla, árs og friðar og sleit fundi
rúmlega hálf sjö.
Á eftir var gengið að girnilegu
jólahlaðborði og því gerð afar góð
skil.
H.S.
“Það er ómögulegt að þú munir ekki
eftir mér. Þú sem baðst mig einu sinni
um að giftast þér.” Prófessorinn
spurði þá: “Og gerðir þú það?”
***
Eiginmaðurinn var að kíkja á heim-
ilisbókhald konu sinnar. Þar rakst
hann á töluna 1745 kr. og fyrir framan
skráð: G.m.v.h. Hann spurði konuna
hvað þetta þýddi nú. “Já, þetta. Það
þýðir bara: Guð má vita hvað.”
***
Barnið spurði mömmu sína að því
hvort öll ævintýri byrjuðu á orðunum:
Einu sinni var. “Nei, sum byrja svona:
Ég er anzi hræddur um að ég verði að
vinna frameftir á skrifstofunni í
kvöld.”
Kona ein eystra átti unga dóttur á
hernámsárunum sem lenti í því að
eignast barn með Breta. Áhyggjufull
sagði amman við vinkonu sína: “Ég
er bara svo hrædd um að ég skilji ekki
blessað barnið þegar það fer nú að tala
enskuna sína.”
30