Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Side 39
ar Eiríkur Hauksson hlýja hugvekju,
minnti okkur rækilega á kærleiks-
boðskap Krists sem kallaði til okkar
ævinlega en þó aldrei sem á fæð-
ingarhátíð frelsarans og yljaði sálum
okkar í skuggum skammdegis-
myrkurs. Bað öllum blessunar guðs
með einlægum óskum um gleðileg jól.
Enn var á vit tærra tóna haldið en þá
talaði formaður svæðisráðs um mál-
efni fatlaðra á Vesturlandi, Snorri Þor-
steinsson. Flutti hann hið snjallasta
hvatningarávarp sem hér er einnig í
blaðinu birt.
Bæjarstjórinn Ólafur Hilmar
Sverrisson átti svo lokaorðin og
færði fram hlýjar þakkir íbúanna fyrir
fallegt tré og hug góðan.
Bað fólk síðan að ganga í Hólm-
garð, þar sem kveikt yrði á öðru tré,
gjöf frá vinabæ Stykkishólms,
Drammen í Noregi.
Við vorum svo öll viðstödd þegar
ljós voru á því tré tendruð við fjöl-
menni mikið, en öfugt við okkar upp-
ljómaða tré vildu Ijósin á Dramm-
entrénu slokkna, en vonandi hefur á
því verið ráðin full bót.
I íþróttahúsinu beið okkar svo
rjúkandi heitt súkkulaði með rjóma út
í og meðlæti gott, framborið af kven-
félagskonum í Hólminum en í boði
Öryrkjabandalagsins.
Þar mættu allmargir foreldrar af
Nesinu svo og bæjarfulltrúar og
áttum við með þeim hinn ágætasta
fund. Formaður Öryrkjabandalags-
ins, Haukur Þórðarson, opnaði um-
ræður með ávarpi góðu og færði
heimamönnum þakkir fyrir hlýjar
móttökur, en bæjarstjóri og forseti
bæjarstjórnar, Rúnar Gíslason þökk-
uðu af hálfu heimamanna. Umræður
urðu líflegar og snérust aðallega þó
um annars vegar flutning mála-
flokksins frá ríki til sveitarfélaga og
svo hins vegar hina miklu þjónustu-
þörf vegna fjölda fatlaðra barna á
Snæfellsnesi.
etta var ánægjuleg stund og á
margt þarft drepið í umræðum
þessum, sem stóðu nokkuð á aðra
klukkustund.
Heim var svo haldið um hálfátta-
leytið eftir velheppnaða heimsókn og
á ellefta tímanum heilsaði borgin okk-
ur björt í vetrarsnænum.
Færðar eru alúðarþakkir til þeirra
vestra, sérstaklega þó félaga Magnúsi
Þorgrímssyni, sem að undirbúningi
sem best stóð, svo og heimamönnum
í Hólminum sem gerðu þessa stund
svo ágætlega eftirminnilega.
Ekki síst þökkum við honum
Steindóri öruggan akstur og áfalla-
lausan, því öllum skilaði hann heilu
og höldnu til síns heima. Hin árvissa
samstöðuhátíð á aðventu er okkur
alltaf jafnkærkomin og bregður birtu
ljóss og lífs á leið okkar. H.S.
GEÐHEILSA
BARNSINS ÞÍNS
Okkur hefur hingað borist
afar læsilegur bæklingur,
ljómandi útlits sem ber
heitið: Geðheilsa barnsins þíns en
með undirfyrirsögninni: Það sem
sérhver fjölskylda ætti að vita.
Þessi bæklingur mun vera sam-
vinnuverkefni Geðhjálpar og
Barna- og unglingageðdeildar við
Dalbraut og kom út í tilefni alþjóð-
legs geðheilbrigðisdags á liðnu ári
- 10. október. Þýðendurnir eru:
Steinunn Gunnlaugsdóttir og
Unnur Heba Steingrímsdóttir
hjúkrunarfræðingar. Bæklingurinn
er mjög fallega myndskreyttur og
laðar mann til lestrar.
Hér verður aðeins getið efnis-
atriða, en sem hluti svars við spurn-
ingunni: Hvað er geðheilsa? er
þetta: Hugsanir, líðan og viðbrögð
við aðstæðum í lífinu segja til um
geðheilsu okkar. Fjallað er svo
sérstaklega um geðheilsuvandamál.
Þar kemur fram að fimmta hvert
barn eða ungmenni glímir við
röskun á geðheilsu. Eins segir:
Engin bein tengsl eru á milli vits-
munaþroska barns og geðrænna
vandamála.
á er kafli um alvarlegar til-
finningatruflanir. Þær hrjá eitt
af hverjum luttugu ungmennum.
Geta leitt til alvarlegra hluta, jafn-
vel til sjálfsvígs. Um orsakirnar er
svo rætt, þá geta átt hlut að máli
bæði umhverfisþættir og líffræði-
legir þættir. Ekki gefast upp er fyr-
irsögn hvatningar til foreldra.
Haldið áfram að leita þar til þjón-
usta eða hjálp sem hentar er fengin.
Hlúðu að geðheilsu barnsins
þíns er fyrirsögn margs konar ráð-
legginga til foreldra. Þar koma
öruggt heimili og gott félagslegt
umhverfi framarlega sem von er til.
Hlustaðu á barnið þitt. Yttu undir
hæfileika þess. Efldu gagnkvæma
virðingu og traust. Reyndu að ala
það upp til að vera sjálfstætt.
Elskaðu það án skilyrða, þetta eru
dæmi um þessar þörfu ráðlegg-
ingar.
Þekktu hættumerkin er svo kafli
þar sem fólk er beðið á varðbergi
að vera gagnvart barni sem það
þekkir. Dæmi: Ef það er kvíða-
fyllra en jafnaldrar, ef því fer allt í
einu að líða illa í skóla, ef það heyrir
raddir sem ekki er hægt að skýra,
ef það á erfitt með að einbeita sér,
ef það meiðir oft aðra, skemmir
hluti, brýtur lög eða gerir hluti sem
geta verið lífshættulegir. Leitaðu
hjálpar strax er svo sagt.
Minnt er á 10. október, alþjóð-
lega geðheilbrigðisdaginn og svo
eru gefin upp símanúmer sem hægt
er að hringja í og upptalning aðila
sem unnt er að leita til er þarna.
Útgefendum er góður sómi að
vel gerðum bæklingi, jafnt að
innihaldi sem útliti.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39