Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1998, Blaðsíða 45
sjálfsímynd sína og til að öðlast
viðurkenningu hjá samfélaginu þann-
ig að viðkomandi upplifi sig sem
virkan þátttakanda.
I byrjun voru aðallega haldin nám-
skeið fyrir 5-10 manna hópa og var
þá boðið upp á almennt teikni- og
málunarnámskeið, leirmótun og jóla-
föndur. Þátttaka á námskeiðinu var
með ágætum og voru þátttakendur
almennt ánægðir með þetta og margir
uppgötvuðu nýjar hliðar og hæfni hjá
sjálfum sér.
Hvað um
starfsemina núna?
Núna hefur starfsemi Listasmiðj-
unnar þróast í þá átt að boðið er
upp á opið hús fyrir íbúa í Hátúni 10
einu sinni í viku. Þar er unnið á fjöl-
breyttan hátt með ýmiss konar efni og
ólíkar aðferðir. Reynt er að koma til
móts við þarfir og áhuga hvers og
eins. Meginhugmyndin er að allir
geta skapað og eiga erindi í myndlist-
arvinnu, óháð listrænum hæfileikum.
Listasmiðjan hefur einnig starfandi
hópa fyrir fólk sem býr annars staðar,
bæði böm og fullorðna.
Og svo í lokin.
Hvert stefnið þið nú?
Að kynna og byggja upp list-
meðferð meðal fatlaðra. Ætlun-
in er að starfrækja hóp og einstakl-
ingsmeðferð í Hátúni 1 Ob.
Um yrði að ræða starfsemi sem er
í boði fyrir alla skjólstæðinga
Öryrkjabandalagsins. Bæði geta
leitað til okkar hópar s.s. af sambýlum
eða einstaklingar. Hver umsókn verð-
ur metin með tilliti til viðeigandi
þarfa.
Þeir sem hafa áhuga eða óska frek-
ari upplýsinga eru beðnir um að hafa
samband við skrifstofu Öryrkjabanda-
lagsins og gefa upp nafn og síma-
númer, þá verður haft samband.
Ritstjóri þakkar þeim Sjöfn og
Fjólu góð og greið svör, árnar þeim
allra heilla með áframhaldið og hvetur
um leið fólk til að nýta sér þetta
ánægjulega tilboð. Hugsið ykkur
hversu þátttaka þarna gæti brugðið
birtu yfir gráma hversdagsins. Ykkar
er tækifærið. Grípið það.
H.S.
Styrk þú mig
Þessi bæn mun ort 1970 af Dulrúnu, sem er dulnefni um leið.
Dótturmissir er tilefni þessarar bljúgu bænar:
Styrk þú mig Drottinn að starfa og vona,
styrk þú mig Drottinn að vinna og þrá.
Styrk mig að mæta sem móðir og kona
mannlífsins fallvalta grundvelli á.
Styrk mig að biðja og styrk mig að þreyja,
styrk mig að treysta á þitt heilaga ráð.
Styrk mig að lifa og styrk mig að deyja,
styrk mig svo öðlist ég heilaga náð.
Dulrún.
Margrét
Guðmundsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir:
Hjúskaparmál öryrkja
Veist þú hvað gerist ef öryrki hyggst ganga í hjónaband?
Ef öryrki hyggst ganga í hjónaband missir hann svo og svo mikið af
bótum sínum. Það fer allt eftir tekjum maka hversu miklu hann heldur
eftir. Örorkubætur einstaklings eru tengdar launum maka hans. Við
skulum athuga hvað þetta þýðir. Þetta þýðir það að öryrki sem nýtur
bóta er sviftur grundvallarmannréttindum um fjárhagslegt sjálfstæði ef
hann ætlar að ganga í hjónaband. Þetta er í raun brot á helgasta rétti ein-
staklings um fjárhagslegt sjálfstæði. Það er í raun verið að segja að
öryrki sem gengur í hjónaband verði minni öryrki eftir það og þarfir
hans ekki þær sömu. Mér er ekki kunnugt um að neinn annar hópur í
þjóðfélaginu missi sitt fjárhagslega sjálfstæði við að ganga í hjónaband
né heldur veit ég til þess að þessu sé svona háttað í nokkru öðru vestrænu
menningarlandi. Eins og þessum málum er háttað nú er öryrkjum hættar
við en öðrum að sæta kúgun í hjónabandi vegna ósjálfstæðis í fjármálum.
Við hjónaband verður sá einstaklingur sem er öryrki algerlega fjár-
hagslega háður maka sínum og í raun baggi á honum. Ég hvet ráðamenn
til að fara vandlega ofan í þessi mál. Þetta er mannréttindabrot og mikill
smánarblettur á samfélaginu. Hagsmunasamtök öryrkja hvet ég til að
standa betur vörð um þetta mál og knýja á um úrbætur.
Margrét Guðmundsdóttir
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
45