Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Blaðsíða 24
Dýrmæti dj áknastarfsins
Hún Inga Jónasar hefur glatt geð okkar á kvöldvökunum.
Það vill oft verða svo að hljótt
Ireynist um ýmsa góða hluti
meðan hafður er uppi hávaði
mikill um hið neikvæða og slæma.
Mér flugu þessi sannindi í hug
þegar ég áttaði mig á því að hér í
Fréttabréfinu
hefur aldrei verið
vikið að því dýr-
mæta djákna-
starfi sem hér fer
fram, utan það
þegar djákninn
okkar kynnti sig
hér í blaðinu.
Þetta er tilrauna-
verkefni hjá
bandalaginu að
ráða djákna til starfa hér einu sinni í
viku og eins og margir munu vita er
það hún Guðrún K. Þórsdóttir sem
djáknastarfinu sinnir en Guðrún er
einnig framkvæmdastjóri FAAS -
eins okkar ágætu félaga.
Reynslan af starfinu hefur verið
mjög góð enda Guðrún rækt það af
einstakri alúð og hlýju, fólk bæði
kemur til hennar og svo heimsækir
hún fólkið hér í húsunum. Eins er
hún á hverjum mánudegi með kyrrð-
arstund inni í setustofunni hér, þar
sem þó nokkrir nýta sér þessa stund
tilbeiðslu og hlýrra orða og láta afar
vel af. Ekki má gleyma þeim þætti
sem flestir hafa notið og notið vel, en
þetta eru kvöldvökur sem hér hafa
verið allnokkrar uppi á níundu
hæðinni, matsalnum þar í Hátúni 10.
Guðrún djákni hefur alla umsjón með
þessum kvöldvökum en hún fær til
liðs við sig gesti góða svo og heima-
fólk einnig, svo þessar stundir verða
hinar vænstu og um leið skemmti-
legustu. Sóknarpresturinn í Laugar-
nessókn, séra Bjarni Karlsson, kemur
á flestar kvöldvökurnar, kátur og
hress í bland við milda alvöruna og
nær einstaklega vel til fólks.
Uppistöðu kvöldvakanna sjá þau
hins vegar um hjónin Margrét
Scheving og Þorvaldur Halldórsson
með söng og hljóðfæraslætti og hug-
vekjum einnig, ómetanlegir sjálf-
boðaliðar sem hrífa fólk með sér
hvort sem sungið er nú: Drottinn er
minn hirðir eða Hún er svo sæt.
Þannig hefur ljölbreytnin á kvöld-
vökunum verið mikil og góð og
heimafólkið lagt fram drjúgan
skemmtiskerf svo unun hefur að
verið. Ágæt aðsókn hefur verið að
þessum kvöldvökum eða upp í 70-80
manns og heimilisfólkið að Hátúni 12
hefur heiðrað okkur hin með nærveru
sinni. Hússjóður Öryrkjabanda-
lagsins og bandalagið hafa lagt til
kaffi og meðlæti á kvöldvökum þess-
um og við hér veitt nokkra aðstoð
einnig. Ætlunin er að halda þessum
kvöldvökum áfram nú í vetur og trú-
lega verða tvær fyrir áramótin.
Það er áreiðanlega fyrir margra
munn mælt hér þegar kvöldvökum
þessum er ágætis einkunn gefin og
eitt er víst að þakklátum huga er á
móti tekið af þeim sem hirða um að
mæta og njóta.
Djáknastarf Guðrúnar er þarna for-
sendan og þess vegna eru henni
færðar hlýjar þakkir fyrir það sem
þegar hefur verið gjört með von um
hið vænsta áframhald á hennar ágæta
starfi.
H.S.
Margrét Eyjólfsdóttir:
Síðbúinn kærleikur
Eldra fólkið óskar hlýju
að einhver muni það,
gleymd er amma og gamli afi
geymd á vissum stað.
Lausnin kemur, leyst er biðin,
Ijúft að hverfa heim.
Þá kemur fólkið og krossar yfir
kistulok hjá þeim.
Kaffiveisla, krökkt af blómum,
já, kátleg veisla gerð,
kærleikurinn við kistulokið
er kannski seint á ferð.
M.E.
Höfundur er frá Flatey á Breiðafirði og svo slæm sem þessi lýs-
ing nú er, þá á þetta við um svo miklu fleiri en eldri borgara, því
miður.
Guðrún K.
Þórsdóttir
24