Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Blaðsíða 40
Svartafoss. En fararstjórnin hafði
reynst okkur Jakobi svo erfið, að við
lögðum okkur í bílnum og stein-
sofnuðum örþreyttir. Þegar þau
Hanne og Guðmundur komu úr
gönguför sinni upp að Svartafossi,
ráku þau okkur úr framsætinu og tóku
endanlega við stjórn ferðarinnar.
Þegar við komum að Kirkjubæjar-
klaustri, búin að vaka í rúma 30 tíma,
litum við inn á gamla hótelið og þar
var okkur sagt að lengra færum við
ekki, þar sem sandstormur væri á
Mýrdalssandi. Við sáum fram á að
þar færu ijármunirnir, sem duga áttu
fyrir bílaleigubílnum og slógum öllu
upp í kæruleysi og beiddumst gist-
ingar. Það þarf vart að geta þess að öll
vorum við úttauguð af þreytu og
mátti vart orði við nokkurt okkar
halla, þá lá við hvelli.
Skólastjórinn á Kirkjubæjarklaustri,
Jón Hjartarson, ffétti að á Klaustri
væru strandaglópar, sem væru lista-
menn og gætu skemmt börnum
skólans um kvöldið. Hann kom til
okkar og spurði okkur hvort við
myndum vilja halda skemmtan. Við
komumst að því að við værum svöng,
þyrftum að komast í bað og þörfn-
uðumst ókeypis gistingar. Allt þetta
veitti Jón okkur fuslega og við héld-
um skemmtan um kvöldið og það var
troðfullt.
Þegar til Reykjavíkur kom, stóðst á
endum, að þegar við höfðum
greitt bílaleigubílinn og meira að
segja fengið afslátt, var ekkert eftir til
skiptanna. Bíllinn hafði komist nær
óskaddaður frá útafakstrinum, en
hægri framhjólsfelgan var nær ónýt.
Við sannfærðum eigandann um að
sennilega hefði hægra framdekkið
verið gallað.
Við lögðum ekki aftur í að láta
reyna á frægð okkar á landsbyggð-
inni, töldum okkur góð að hafa kom-
ist nær klakklaust frá þessu ævintýri.
En allt það fólk sem við hittum fyrir
á landsbyggðinni veitti okkur ómet-
anlega aðstoð og hefur sjálfsagt fyrir-
gefið okkur, að við vorum ekki eins
fræg eins og við töldum okkur vera.
Ritað á haustdögum 2000
Gísli Helgason
Með smá aðstoð frá mömmu get ég sjálfur!
Frá Tölvumiðstöð
fatlaðra
A ðalfundur Tölvumiðstöðvar fatlaðra var haldinn þriðjudaginn 30. maí
/I að 9. hæð í Hátúni lOa, en þar er hún nú til húsa. Aðalfund eiga að
jL sækja tveir fulltrúar írá hverju eignarfélagi Tölvumiðstöðvar þ.e.
stjórnarmenn T.f. og varamenn þeirra, en félögin eru: Blindrafélagið, Félag
heyrnarlausra, Landssamtökin Þroskahjálp, Sjálfsbjörg landssamband,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Öryrkjabandalag íslands.
Þess má þá geta í leiðinni að Öryrkjabandalagið leggur árlega til 200 þús. kr.
til starfseminnar, eitt eignarfélaga, enda 4 eignarfélög innan ÖBÍ. Forstöðu-
maður Tölvumiðstöðvar er Sigrún Jóhannsdóttir og stýrir afar vel fjölþættri
starfsemi og ráðgjöf ýmiss konar. Því miður hefiir ekki fengist fjármagn til að
ráða annan starfsmann, en á því hin brýnasta þörf, en rekstrarijármagn kemur
frá félagsmálaráðuneyti í gegnum þjónustusamning.
í skýrslu forstöðumanns er víða komið við og hér minnt á örfá atriði
glöggrar upptalningar. Starfsemin byggist á faglegri ráðgjöf, upplýsinga-
miðlun og samvinnu við fagaðila. Ráðgjöfin felst í leiðbeiningum um val og
notkun á tölvubúnaði, forritum og sérbúnaði fyrir fagaðila - ráðgjöf veitt
skólum og öðrum stofhunum. Á síðasta starfsári komu 183 einstaklingar í
heimsókn, ijölmennastir eru foreldrar 51 og þá fatlaðir 41, annars kennarar,
þroskaþjálfar, iðjuþjálfar o.fl. Höfð var samvinna við 43 skóla og stofnanir og
er það rösklega gjört með öðru af einum starfsmanni.
Tölvumiðstöðin stóð fyrir 5 námskeiðum og fræðslufundum m.a. á Bíldu-
dal og alls sóttu þessa fundi og námskeið 158 svo víða fer hróður stöðv-
arinnar. Tölvumiðstöðin var með sérstakan bás á sýningunni Liðsinni í
Perlunni og forstöðumaður tók virkan þátt í undirbúningi þeirrar sýningar.
Leitast er við að hafa gott úrval af tölvutengdum búnaði til prófunar og vel
er fylgst með öllum tækninýjungum.
Aðalfundurinn var ánægjulegur mjög en rætt um nauðsyn þess að lagst væri
á árar með forstöðumanni um aukið fjármagn svo unnt yrði að ráða viðbótar-
starfskraft.
Stjórnarformaður er Vilmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra, en fulltrúar ÖBÍ eru: Ólöf Rikarðsdóttir aðalfulltrúi í
stjórn og Guðríður Ólafsdóttir til vara.
Merku starfi er mætavel fagnað.
H.S.
40