Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Blaðsíða 35
Árni Sal með ágætum vinum.
skref í lífi sínu í ljósi
þess að hann hafði íyrir
ungri fjölskyldu að sjá.
Hann sagði upp hinu vel
launaða starfi í “Central
Council” og setti á stofn
alþjóðlegu samtökin
MOBILITY INTER-
NATIONAL. Um þetta
leyti voru möguleikar á
fleiri styrkjum í Evrópu
til ferðalaga auk þess
sem 10,000 punda
styrkur frá ijármálaráð-
herra Kuwait gerði
Mobility International
kleift að setja á stofn
sína eigin skrifstofu og heíja mjög
sérstaka starfsemi sem þróaðist með
undraverðum hraða.
Starfsemi Mobility International
vatt upp á sig, hlaut athygli og virð-
ingu fyrir frábært starf, starf sem
hefur gefið þúsundum ungmenna
tækifæri til að ferðast, fræðast og
njóta samvista við ungt fólk í öðrum
löndum. Núna eru 132 samtök aðilar
að Mobility International frá 52
löndum.
HLUTVERK, MARKMIÐ
OG VERKEFNI MOBILITY
INTERNATIONAL
MI eru sjálfstæð samtök sem vinna
að því að auka sjálfstæði og sjálfs-
traust ungs fólks með fötlun með því
að hvetja til endurhæfingar, blönd-
unar og fullrar þátttöku í samfélag-
inu. Stefnt er að jöfnum möguleikum
allra og áhersla lögð á málefni fólks
með fötlun sem mannréttindamál.
MOBILITY INTERNATIONAL hef-
ur unnið að þessum markmiðum
sínum með því að:
- benda fólki á mikilvægi sjálfsá-
kvörðunarréttar og sjálfstæðis með
því að standa að uppbyggjandi verk-
efnum.
- vinna að þátttöku fólks með fötlun
í samfélaginu.
- veita upplýsingar um ferðamögu-
leika.
- koma á tengslum milli samtaka
fólks með fötlun og hvetja til sam-
starfs þeirra.
- standa að rannsóknum á ferða-
möguleikum, aðgengi og almennri
aðstöðu.
- útvega styrki til ferðalaga.
- standa að kynningarfundum, fyrir-
lestrum, ráðsteínum, sýningum, einir
sér eða í samstarfi við aðra.
- hafa samstarf við og gera samninga
við hvaða yfirvöld sem er, bæði ríkis-
stjórnir, sveitarstjórnir og fleiri.
- þróa samstarf við önnur evrópsk og
alþjóðleg samtök með svipuð mark-
mið.
- þróa samstarf við stofnanir, s.s. há-
skóla og fyrirtæki á öllum sviðum
sem leitt getur til sjálfstæðis og
aukinna möguleika fólks með fötlun.
Mobility International vinnur
með fólki á öllum aldri en
leggur megináherslu á ungt fólk með
sérstakar þarfir. Vegna starfs síns
hefur MI hlotið verðskuldaða virð-
ingu og traust á alþjóðlegum vett-
vangi. Þar má nefna að MI hefur
með höndum ráðgjafarhlutverk hjá
Sameinuðu þjóðunum. MI starfar
sem ráðgjafarstofnun við evrópskar
stofnanir sem hafa með höndum mál-
efni sem tengjast fólki með fötlun.
Þá hefur MI beitt pólitískum þrýst-
ingi innan Framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins og Evrópu-
þingsins. MI vinnur einnig með
fjölda annarra samtaka í Evrópu, s.s.
Evrópsku samráðssamtökunum í
málefnum fatlaðra “European Disa-
bility Forum”. Á þessum vettvangi
leikur MI eitt af lykilhlutverkum í að
veija hag og rétt og benda á mögu-
leika fólks með fötlun í Evrópu.
INNGANGA ÍSLENDINGA í
MOBILITY INTERNATIONAL
Anthony Lumley kom hingað til
lands árið 1989, kynnti sér aðstæður
og fundaði með þáverandi formanni,
framkvæmdastjóra ÖBÍ og undir-
rituðum. í þessum viðræðum bauð
hann ÖBÍ að gerast aðili að Mobility
International. Síðan þá
hefur undirritaður verið
tengiliður ÖBÍ við sam-
tökin. Strax upp úr þessu
var ákveðið að ÖBI yrði
gestgjafi í samstarfi við
MI vorið 1990. Þetta
varð úr og hingað til
lands kom hópur dauf-
blinds fólks frá nokkrum
Evrópulöndum sem naut
íjölbreyttrar dagskrár
bæði í Reykjavík og
nágrenni og á Sauðár-
króki og nágrenni.
Undirritaður og Lilja
Þorgeirsdóttir þáverandi
félagsmálafulltrúi Sjálfsbjargar sáu
um undirbúning og framkvæmd
heimsóknarinnar. Þá kom hingað til
lands vorið 1998 hópur hreyfi-
hamlaðs fólks á mót sem ÖBÍ stóð að
í samstarfi við samtökin. Jóhannes
Guðbjartsson og undirritaður unnu
að skipulagningu og framkvæmd
þeirrar heimsóknar.
Stærsti styrktaraðili MI er Evrópu-
sambandið. Það gerir það að
verkum að fargjöld eru niðurgreidd
til fulltrúa frá Evrópusambands-
löndunum. Eftir sem áður eru allar
aðildarþjóðir MI utan ES velkoninar
á viðkomandi viðburði en fá ekki
niðurgreidd fargjöld. Hins vegar eru
nokkur verkefni styrkt af Evrópu-
ráðinu. Þar sem íslendingar eru aðil-
ar að því fást þau verkefni sem
Evrópuráðið styrkir niðurgreidd
nánast að fullu.
Samstarfið við MI hefur verið ein-
staklega ánægjulegt, sérstaklega
vegna þess að við höfum orðið vitni
að hagnýtum árangri starfsins fyrir
ungt fólk hér á landi. Á hverju ári frá
inngöngu ÖBÍ í MI hefur ungt fólk
frá Islandi tekið þátt í mótum og
námskeiðum erlendis - s.s. tungu-
málanámskeiðum, námskeiðum í
mannlegum samskiptum og leiðtoga-
námskeiðum þar sem fólk hefur
fræðst, notið samvista við nýja vini
erlendis og skemmt sér. Því vil ég
hvetja alla þá sem áhuga hafa á ferða-
lögum til útlanda á vegum MI eða
vilja fá nánari upplýsingar um starf-
semi samtakanna að hafa samband
við undirritaðan á skrifstofu Öryrkja-
bandalagsins.
Helgi Hróðmarsson.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35