Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Síða 36
Frá Þórsmerkurferð Skálatúnsbúa. -
Líklega eru leigumálin ekki rædd þarna.
NEFNDARÁLIT
Um leigumarkað og leiguhusnæði
r
apríl sl. gaf félagsmálaráðu-
neytið út rit um húsnæðismál
sem byggist alfarið á áliti
nefndar sem ráðuneytið skipaði í
ágúst 1998 til að vinna að úttekt á
leigumarkaði og kanna þörf fyrir
leiguíbúðir.
Fulltrúi Öryrkjabandalagsins í
nefndinni var Anna Ingvarsdóttir
framkvæmdastjóri Hússjóðs, en for-
maður hennar var Ingi Valur Jóhanns-
son deildarstjóri í félagsmálaráðu-
neytinu. Að nefndarstarfinu komu
alls sem nefndarmenn og starfsmenn
13 manns, þó ekki allir á sama tíma.
Til viðbótar við nefndarálitið er
firna fróðlegt plagg sem felur í sér
viðamikla könnun á leigumarkaði og
leiguíbúðaþörf allra sveitarfélaga og
félagasamtaka sem starfa á húsnæðis-
markaði.
Hér á eftir verður gjörð nokkur
grein fyrir bæði könnuninni sem og
tillögum nefndarinnar. Helstu niður-
stöður könnunarinnar eru þessar:
Samkvæmt könnun á þörf fyrir
leiguíbúðir telja sveitarfélögin að
um 1200 leiguíbúðir vanti til að
tæma biðlista eftir leiguhúsnæði.
Félagasamtök sem eiga og reka
leiguhúsnæði telja að um 680
íbúðir vanti til að tæma biðlista
eftir leiguhúsnæði.
Taka verður með fyrirvara upp-
lýsingar um biðlista. Hugsanlegt
er að þeir sem eru á biðlistum hafi
þegar fengið viðunandi úrræði
eða séu skráðir á fleirum en
einum stað. Upplýsingar um bið-
lista gefa hins vegar mikilvægar
upplýsingar um stöðu mála á
leigumarkaði. Einnig ber að hafa
í huga að biðlistar geta gefið
ranga mynd af eftirspurn þar sem
færri skrái sig þar en ella vegna
viðvarandi og þekkts skorts á
leiguíbúðum.
Síðastliðin 5 ár voru að meðaltali
byggðar um 1500 íbúðir. Ibúða-
spá gerði ráð fyrir að byggja
þyrfti um 1300 íbúðir.
Heildarfjöldi íbúða í landinu er
rúmlega 100 þúsund. Almennar
leiguíbúðir eru um 12% og fé-
lagslegar leiguíbúðir um 5%.
r
Aður en gjörð verður grein fyrir
tillögum nefndarinnar þá skal
getið um efnisþætti skýrslunnar. í
kaflanum um íbúðaspá kemur marg-
víslegur fróðleikur fram og nefndin
leggur í framhaldi af því til heildar-
könnun á húsnæðismarkaði fyrir árs-
lok 2000.
Grein er gjörð fyrir byggðaþróun
síðustu ára og hversu þar hefur hallað
á landsbyggðina.
í kafla um leigumarkað á íslandi
kemur fram að félagslegar leigu-
íbúðir eru aðeins 5.2% af húsnæðis-
markaðnum í heild sinni. Á leigu-
markaði eru sveitarfélög með 14.5%
og félagasamtök með 10.4% af
heildinni á leigumarkaði.
ítarlega er fjallað um stuðning hins
opinbera við húsnæðismál, stuðning
rikisins bæði með beinum framlögum
inn í húsnæðislánakerfið (hverfandi
nú), húsaleigubætur, vaxtabætur o.fl.,
framlög sveitarfélaga vegna félags-
legra íbúða, húsaleigubótakerfið er
rakið o.s.frv.
Minnt er á stofnstyrki þ.e. 90% lán
á lægstu vöxtum og hefði mátt minna
þar einnig á ákveðna stofnstyrki frá
Framkvæmdasjóði fatlaðra - 10%in.
Sérkaflar eru um leiguíbúðir sveitar-
félaga, Félagsbústaði hf. og síðan er
umsögn um húsaleigulög, en nefndin
leggur til að þau verði endurskoðuð
svo auka megi öryggi leigjenda, einn-
ig er ályktað um kynningarátak til að
upplýsa fólk um réttindi og skyldur
aðila á leigumarkaði.
Ýmis fróðleg fylgiskjöl fylgja svo í
lokin. En áður en ég fæ Önnu
Ingvarsdóttur til að segja sitt álit á
starfinu svo og tillögunum þykir mér
36