Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Page 46
FYRIR
ÁRATUG AÐEINS
Þáverandi formaður, tilvonandi framkvæmdastjóri.
Júlímánuður er hér á
bæ heldur kyrrlátur
miðað við aðra anna-
tíma og þá getur verið gott
að “riija upp og reyna að
muna’’ eitthvað frá liðinni
tíð þó ekki væri til annars
en þess að átta sig enn bet-
ur á því hversu baráttan
fyrir bættum hag fatlaðra er
lík á hverjum tíma, baráttu-
efnin áþekk og á líka lund
við þeim snúist.
Ritstjóri fór að fletta
blaðaefni um fotlunarmál-
efni frá því fyrir 10 árum -
nánar tiltekið í júlí og ágúst
1990 og þar kenndi virki-
lega margra góðra grasa.
Ekki ætla ég að fara að
birta neitt af því ágæta og
Ijölbreytta efni sem þar er
að finna en minnist á meg-
inmál þessa tíma og þau
tíðindi er hæst báru ásamt
því að tæpa á öðru því, sem
þarna var að gerast.
Sagt er frá 25. þingi
Sjálfsbjargar og þar lögð
áhersla á annars vegar hús-
næðismál og hins vegar
endurskoðun laganna um
málefni fatlaðra. Sólheim-
ar áttu 60 ára afmæli. Þar
segir Reynir Pétur m.a. frá
því að hann sjái fyrir sér
Iúpínubreiður í fánalitun-
um á Sólheimum og þess
getið að um þúsund manns
hafi sótt Sólheima heim í
tilefni afmælisins.
Sæbrautarmálið fræga er
í brennidepli, en vægast
sagt skapaðist mikil ólga í
kringum meðferðarheimili
einhverfra að Sæbraut á
Seltjarnarnesi sakir þess að
einhverjir nágrannar heim-
ilisins undu ekki tilvist
þess. Greint er m.a. frá
hótun bæjarstjórnar að
fella rekstrarleyfi heimil-
isins úr gildi, en Jóhanna
Sigurðardóttir þáv. félags-
málaráðherra segir á móti
að ekkert starfsleyfi þurfi
fyrir slíku heimili. Greina-
skrif allheit eru um málið.
Heimsleikar fatlaðra í Hol-
landi taka mikið rými og
greint er vel frá framúr-
skarandi árangri íslensku
keppendanna.
Þá eru vel kynnt útilífs-
námskeiðin fyrir íötluð
og ófbtluð börn, starfsemi
sem sannarlega hefur
blómgast í gegnum tíðina.
Árni Gunnarsson þáv.
alþingismaður mærir mjög
sumarhátíð Kópavogshælis
sem með afbrigðum hefði
tekist og samfagnar Sól-
heimum um leið með sex-
tíu árin. Öryrkjabandalag
íslands hefur sent ríkis-
stjórninni bréf um nauðsyn
þess að Framkvæmdasjóð-
ur fatlaðra fái lögboðið,
fullnægjandi framlag og
þáv. formaður Arnþór
Helgason minnir á að allt frá
1984 hafi framlagið verið
skert á einn eða annan hátt.
Sagt er frá væntanlegu sam-
býli að Gauksmýri rétt hjá
Hvammstanga, en það sam-
býli var rekið í nokkur ár. Þá
segir ritstjóri frá merkilegu
framtaki í Breiðdal þar sem
grunnskólanemendur tóku
fötlun og ýmsar hliðar henn-
ar fyrir og könnuðu viðhorf
bæði fatlaðra sem ófatlaðra.
Sæbrautarmálið er áfram
í brennidepli í ágúst og þar
falla ýmis stór orð og ótrú-
leg vanþekking og for-
dómar skína víða í gegn. í
grein vekur undirritaður at-
hygli á því að greiðslur
Tryggingastofnunar rík-
isins séu laun þeirra sem
við taka og þeir þannig
réttilega launþegar.
Greint er frá uppurnum
greiðslum vegna stuðn-
ingsfjölskyldna fatlaðra
barna en Jóhanna bregst
við með því að greiða
áfram og þá af öðrum
liðum ráðuneytisins.
Dóra S. Bjarnason skrif-
ar langa grein er hún
nefnir: Þjónusta við fólk
sem er fatlað ætti að vera
nær ósýnileg og tekur að
hluta til nokkurt mið af
deilunum um Sæbrautina.
Pressan talar við þrjá ein-
staklinga sem í fyrirsögn
segir að hafi yfirunnið
fötlun sína. Þetta er Bragi
Ásgeirsson sem enn er á
lífi og þeir Sverrir Karls-
son og Stefán Jónsson sem
báðir eru látnir. Skemmti-
leg er lífsspeki þeirra,
hvers um sig.
Svo standa þau í bréfa-
skriftum í Morgunblaðinu
Sigurlín M. Sigurðardóttir
þáv. félagsmálafulltrúi Fé-
lags heyrnarlausra og
Svavar Gestsson þáv.
menntamálaráðherra, til-
efnið væntanleg samskipta-
miðstöð sem Svavar kom
raunar á fót í framhaldinu.
Og mörg eru afrekin unnin,
því þarna er greint frá því
að Arnar vinur minn
Klemenzson hafi farið í
hjólastól yfir Fjarðarheiði
eystra í þoku og rigningar-
úða en Fjarðarheiði er fj all-
vegur sem fer í yfir 600
metra hæð. Og í lok þess-
arar fátæklegu upprifjunar
er greint frá í júlí ályktun
Sjálfsbjargarþings um at-
vinnumál þar sem segir:
Það er ódýrara fyrir samfé-
lagið að efla atvinnu-
möguleika fatlaðra en að
láta starfskrafta þeirra
liggja ónotaða. Atvinnu-
laus verður enginn sjálfum
sér nógur, hafi hann á
annað borð getu og vilja til
starfa - segir þar einnig.
Uppriljun þessi á mildri
morgunstund minnir okkur
á hve keimlík málin eru frá
einum tíma til annars og
verðum við þó að vona að
alltaf þokist málin í rétta
átt.
H.S.
46