Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Qupperneq 47

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Qupperneq 47
Þjónusta við fatlaða í Norðurlandskjör- dæmi vestra Hér barst á borð á sumarmánuðum kynningarrit um þjónustu á vegum Byggðasamlags um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. Nú þegar umræðan um yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga er hvað brýnust í brennidepli er okkur skylt að huga að hversu sú þjónusta reynist sem þegar er komin yfir til sveitarfélaganna, ýmist með sérstökum þjónustu- samningi eða þá sem verkefni tilraunasveitarfélags. Allt er það þó með því fororði að hér er um sérstaka samninga að ræða sem óhætt mun að segja að séu allhagstæðir fyrir sveitarfélögin svo og að enn eru í fullu gildi sérlögin um málefni fatlaðra. Þetta kynningarrit sannar það ótvírætt að byggðasamlagið norður þar tekur hlutverk sitt alvarlega og vinnur vel að málum enda kom það glögglega í ljós í fyrra þegar ritstjóri heimsótti Norðurland vestra í fylgd með öðrum stjórnarnefndarmönnum um málefni fatlaðra. M.a. kom í ljós á Sauð- árkróki hve þar hafði vel á málum verið tekið svo okkur þótti til fyrirmyndar og sama var um Siglufjörð að segja. I kynningarritinu áðurnefnda kemur það fram hver markmið þjónustu- samnings eru: Að tryggja fotluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífi. Að þjónusta fólk í heimabyggð. Að koma á betri aukinni þjónustu fyrir fatlaða. Að létta undir með fjöl- skyldum fatlaðra barna. Byggðasamlagið, sem að þjónustusamningnum stendur við félagsmála- ráðuneyti gengst að sjálfsögðu undir það að starfa skv. lögum um málefni fatlaðra og það er samstarfsvettvangur sveitarfélaganna í Norðurlandskjör- dæmi vestra. Þjónustusvæðin eru ijögur: Siglufjörður, Skagafjörður, Austur-Húnavatns- sýsla og Húnaþing vestra. I kynningarritinu er getið um svæðisráðið í málefnum fatlaðra sem eftirlit hefur með framkvæmd samningsins og vel undirstrikað að trúnaðarmaður sé starfandi hjá svæðisráði. Glögg upptalning er á þjónustuþáttum: Ráðgjöf, aðstoð við búsetu, aðstoð vegna atvinnu og náms (iðja-dagvist- hæfing og styrkir til verkfæra eða tækjakaupa) og þjónusta við fjölskyldur fatlaðra barna þ.m.t. leikfangasöfn. Síðan er talið upp varðandi aðra þjónustu á vegum sveitarfélagsins: ferða- þjónusta, heimaþjónusta, liðveisla, ijárhagsaðstoð og ýmiss stuðningur. Síminn í aðalstöðvunum á Sauðárkróki er 455 6060. Þarft og gott kynningarrit er þakkað vel. H.S. Félag heyrnarlausra á nýjum stað Félag heyrnarlausra er ekki lengur á Laugavegi 26, heldur hefur flutt sig ofar á Laugaveginn. Heimilisfang félagsins er nú að Laugavegi 103, 3. hæð 105 Reykjavík. Síminn er sá sami 561 3560. Félaginu er alls góðs óskað í nýjum húsakynnum, en þegar þetta er skrifað þá eru framundan framkvæmdastjóraskipti hjá félaginu og frá því sagt í næsta blaði sem og öðrum hræringum í félögum okkar. H.S. Úr vísna- safni Ólafar Óskarsdóttur Hún Ólöf Óskarsdóttir sem hér býr í Hátúninu leit hingað inn og fór með nokkrar vel kveðnar vísur fyrir ritstjóra. Þær fara hér á eftir. Sú fyrsta er eftir henni óþekktan höfund: Amahreggið hræðir kalt, hélu á vegginn málar. Titrar neggið ísað allt, ála leggur sálar. Og svo eru hér fleygar vísur sem Ólöf kveður vera eftir Stefán frá Knarrarnesi á Vatns- leysuströnd sem hún segir hafa verið uppi á síðustu öld. Til stúlku sem ætíð gekk ber- fætt og var nefnd eftir því: Berum skokkar iljum á, úldna kokkar hausa hringadokkin björt á brá, Bogga sokkalausa. Kveðið við latar dætur sem ekki vildu vinna útiverkin: Þið eruð dulur, þolið ei kul né vætu, ræfilstuskur, rýjur, hró, réttar buskur elds við stó. Og sjálfslýsing að lokum: Ég er eins og annar maur oft með soltinn maga, hef þó lífsins öslað aur alla mína daga. Ekki meira gap um gaur gleymd og búin saga. Frá Ólöfu Óskarsdóttur. Hlerað í hornum Á aðalþingum félagsskapar eins var það orðin föst venja að ónefndur maður fengi eitt atkvæði í helztu virðingarstöður og höfðu menn lúmskt gaman að. Nú brá hins vegar svo við að sá hinn sami ónefndi maður fékk tvö atkvæði og þá sagði einhver stundarhátt: “ Nú, þau eru þá bæði á þinginu, hjónakornin”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 47

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.