Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Qupperneq 51

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2000, Qupperneq 51
Nýir formenn og framkv æmdastj órar Til viðbótar við fregn í blaðinu nú frá Um- sjónarfélagi einhverfra um formannaskipti þar höfum við fregnað af tveim nýjum formönnum í félögum okkar og tveim nýjum framkvæmda- stjórum. Formaður í LAUF - Landssamtökum áhuga- fólks um flogaveiki er nú Kolbeinn Pálsson. Þá hefur Pétur Hauksson formaður Geðhjálpar látið af formennsku en við hefur tekið Eydís Svein- bjarnardóttir sem var varaformaður. Til Geð- hjálpar hefur einnig verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri, Sveinn Magnússon. Þá er tekinn til starfa nýr framkvæmdastjóri hjá SÍBS — Pétur Bjamason. Kynning hinna nýju framkvæmdastjóra fer fram í desemberblaði. H.S. Hlerað í hornum “Við tengdamamma erum sammála um eitt. Dóttir hennar hefði átt að giftast öðrum manni”. Dóttirin hafði tekið bílpróf og bauð föður sínum í biltúr af því tilefni. Hann settist í aftursætið fyrir aftan dótturina og þegar hún spurði af hverju hann gerði það svaraði hann: “Þessarar stundar hefi ég lengi beðið. Nú ætla ég að sitja hér eins og þú áður og sparka í sætið”: Faðirinn var afar alvörugefinn og brosti sjaldan. Einu sinni fóru hann og eiginkonan til ljós- myndara og dóttirin furðaði sig á fallegu brosi föður síns. “Hvernig fór hann að því að láta pabba brosa?” Móðirin svaraði ískalt: “Það var ekki hann, það var hún”. Gunna kom örvæntingarfull til Jónu og sagði að eftir 40 ára hjónaband væri maðurinn hennar farinn að elta ungar stelpur. Þá sagði Jóna: “Hafðu engar áhyggjur. Hundurinn minn eltir bíla, en ef hann næði nú einhverjum þeirra þá vissi hann ekkert hvað hann ætti að gjöra við hann”. Kona ein kom inn í skóbúð og mátaði einhver ósköp af skóm og afgreiðslumaðurinn var orðinn dauðleiður. Loksins fann hún réttu skóna og sagði: “Þessir eru alveg sniðnir á fæturna á mér og passa alveg”. “Ja, það ætla ég rétt að vona. Þetta eru skórnir sem þú komst í”. Sá nýkvænti: “Ég hef reynslu af því að hjónabönd til reynslu séu hættuleg”. “Og af hverju?”, spurði ókvænti vinurinn. “Jú, þau geta endað í alvöru hjónaböndum”. HEIMILIÐ MÝRARÁSI 2 r Asíðsumardegi, nánar tiltekið föstudaginn 25. ágúst var boðið til notalegrar athafnar að Mýrarási 2 hér í Reykjavík. Þangað lögðu héðan leið sína Anna Ingvarsdóttir, Kristín Jónsdóttir og undirritaður. Það var að vonum að fulltrúar Hússjóðs ÖBÍ væru mættir á staðinn því húsið að Mýrarási 2 var keypt af Hússjóði á sínum tíma að beiðni Styrktarfélags vangefinna, sem vantaði úrlausn fyrir aldraða þroskahefta einstaklinga. Allnokkur hópur var mættur að Mýrarási 2 þetta síðsumarsíðdegi þ.á.m. að sjálf- sögðu hinir 4 tilvonandi heimilismenn. Heimilið mun rekið af Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og það var framkvæmdastjóri hennar, Björn Sigurbjörnsson, sem ávarpaði viðstadda og bauð menn vel- komna til þessarar ánægjulegu stundar. Hann færði Hús- sjóði Öryrkjabandalagsins einlægar þakkir fyrir ijár- mögnunina, sem forsenda alls væri, en afhenti svo forstöðu- konu, Hildi Þórisdóttur húsið með vörmum velfarnaðar- óskum. Hildur bauð þá sem búa skulu á heimilinu sérstaklega vel- komna. Hún sagði að starfsmannaekla hefði háð því að heimilismenn flyttu inn en kvað tvo koma strax í næstu viku þar á eftir og vonaði að allir ijórir yrðu komnir innan hálfs mánaðar. Hún sagði heimili þetta skilgreint sem öldrunar- sambýli og sagði 7 manns mundu vinna á sambýlinu en alls verða heimilismenn að Mýrarási 2 ijórir talsins. Hildur sagði það einlæga von sína að þarna kæmi öllum til með að líða vel. Halldór Gunnarsson formaður Þroskahjálpar færði heim- ilinu að gjöf málverk er ber nafnið Tímamót, enda væru nú tímamót hjá því fólki sem þarna fengi nýtt heimili. Flutti kveðjur og heillaóskir samtaka sinna. Menn þáðu svo góðar og hollar veitingar á eftir. Húsið að Mýrarási 2 er alls um 220 fermetrar, hver heimilismaður er með sérherbergi sem er nálægt 15 fermetrum. Hin vistlegasta sameiginleg setustofa er svo þarna sem og borðstofa, eldhús gott og borðstofa þar með. Þá er starfsmannaaðstaða, rúmgott þvottahús og vel búið bað, geymsla og bílskúr. Ekki er lakara að garðurinn umhverfis húsið er einkar fallegur og vel hirtur og þar úti greindi maður grill sem örugglega mun koma í góðar þarfir. Eins og áður sagði er þetta skilgreint sem öldrunarsambýli fyrir ljóra en heimilismenn eru frá 50-70 ára að aldri. Þetta var afar hugguleg stund og í samtali við einn aðstand- anda kom fram veruleg ánægja með nýja heimilið og fagn- andi tóku heimilismennirnir tjórir þessari búsetubreytingu og voru fullir tilhlökkunar að eigin sögn. Hver slíkur áfangi í búsetumálum er ánægjulegur mjög og honum vel fagnað. Hamingjuóskir eru færðar Hússjóði Öryrkjabandalagsins, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra en allra helst þó heimilis- mönnum með hlýlegt heimili og huggulegt hið besta. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 51

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.