Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Side 4
Frá ritstjóra
Fréttabréf Öryrkjabandalags
íslands er nú að heija sitt
14. útgáfuár. Það hefur
þroskast og dafnað undir styrkri
ritstjórn Helga Seljan, sem hleypti
því af stokkunum í mars 1988, en
þá þótti nauðsynlegt að bandalagið
eignaðist málgagn til þess að
kynna baráttumál fatlaðra fyrir
almenningi og stjórnvöldum.
Fréttabréfið var um leið hugsað
sem tengiliður bandalagsins við
fólkið í félögum þess. Fréttabréfið
náði undir eins miklum vinsæld-
um. Helgi stýrði því fram til síð-
ustu áramóta er hann lét af ritstjórn
um leið og hann hvarf úr stóli
framkvæmdastjóra Öryrkjabanda-
lagsins og gerði það að einhverju
víðlesnasta tímariti landsins. Helga
eru þökkuð heilladrjúg störf í þágu
Fréttabréfsins og bandalagsins.
Eins og lesendur sjá hefur hann
ekki skilið við blaðið enda situr
hann nú í ritnefnd þess og sér því
fyrir fjölda pistla og greina.
Fréttabréfið hefur verið vett-
vangur hvers konar umræðu um
málefni fatlaðra. Einnig hefur
dægurmál borið á góma, hugleið-
ingar um hvers kyns hugðarefni
pistlahöfunda, ljóð, smásögur og
lausavísur svo að fátt eitt sé nefnt.
Hinir ljölmörgu pistlar sem hafa
birst í blaðinu hafa aukið gildi þess
og gert það læsilegra en ella. Það
er einlæg von nýs ritstjóra að
blaðið fái að njóta liðveislu og vin-
semdar hinna mörgu sem sent hafa
efni á undanförnum árum. Þessi
íjölbreytni leiðir hugann að því að
nafnið Fréttabréf er vart viðeigandi
lengur. Því eru lesendur hvattir til
að finna nýtt nafn á unglinginn.
Ritnefnd skipuð
Við síðustu áramót var ákveðið
að starfsmenn Öryrkjabandalagsins
skipi ritnefnd blaðsins. Einnig kom
til liðs við okkur forstöðumaður
Örtækni, Hartmann Guðmundsson,
ARNÞÓR HELGASON
en hann hefur tekið myndir fyrir
blaðið og sér um heimasíðu
Öryrkjabandalagsins. Þá situr
Helgi Seljan, fyrrum ritstjóri, í
nefndinni eins og áður er sagt og
miðlar nefndarmönnum af sinni
miklu reynslu.
Óvenjuleg áramót
Síðustu áramót, sem mörkuðu
upphaf nýrrar aldar, voru um
margt óvenjuleg. Hinn 19. desem-
ber síðastliðinn kvað Hæstiréttur
upp dóm í máli Öryrkjaban-
dalagsins gegn Tryggingastofnun
ríkisins þar sem staðfestur var sá
skilningur bandalagsins að óheim-
ilt væri að tengja bætur almanna-
trygginga við tekjur maka. Vonir
vöknuðu í fyrstu um farsælar lyktir
þessa máls en brátt varð ljóst að
ríkisstjórnin ætlaði sér ekki að
hlíta dómnum. í því áróðursstríði
sem hófst fór mikill tími og orka í
að skipuleggja næsta mótleik
vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar.
Ráðamenn landsins reyndu að reka
fleyg milli öryrkja án þess að það
tækist því að samstaðan var órofin.
Fjöldi fólks hringdi, sendi
tölvupóst eða hafði samband með
öðrum hætti til þess að lýsa yfir
stuðningi sínum við baráttu banda-
lagsins fyrir hönd öryrkja og for-
maður Öryrkjabandalags íslands
var kjörinn maður ársins á rás tvö!
Margir rituðu um öryrkjadóminn
svo kallaða og viðbrögð
ríkisstjórnarinnar og skipta greinar
í dagblöðum hundruðum. Þótt
menn skiptust í tvær fylkingar var
þó sú fjölmennari sem veitti
öryrkjum lið og aldrei komu fram
rök frá stuðningsmönnum
ríkisstjórnarinnar sem skýrðu til
fulls afstöðu hennar. Þá veittu og
samtök launþega og aldraðra
Öryrkjabandalaginu dýrmætan
stuðning. Þannig skapaðist órofa
samstaða á meðal mikils meiri-
hluta þjóðarinnar gegn túlkun
ríkisstjórnarinnar á dómnum.
Tilræði við jafnrétti kynjanna
Tuttugasti og fjórði janúar var
svartur dagur í sögu Alþingis, en
aðfaranótt þess dags samþykkti
meirihluti þingmanna lög sem
staðfestu áframhaldandi skerðingu
bótanna vegna tekna maka.
Samkvæmt þessum ólögum
skerðast bætur almannatrygginga
meira en áður hefur þekkst vegna
tekna sem öryrkjar afla sjálfir.
Bitnar þetta fyrst og fremst á
konum sem eru 98% þeirra sem
lög þessi varða.
f ofsa sínum og fyrirgangi áttaði
ríkisstjórnin sig ekki á því að ólög
þessi vega mjög að jafnri stöðu
kynjanna í landinu og beinast gegn
þeim sem minnst bera úr býtum.
Þau eru enn eitt dæmi um þann
rýra rétt sem fatlaðar konur búa
við hér á landi.
Framundan er hörð barátta þótt
áfangasigri hafi verið náð.
Öryrkjabandalag íslands mun
hvergi hvika frá því markmiði sínu
að fatlaðir fái notið jafnréttis og
þeirrar virðingar sem byggir á rétti
einstaklingsins.
Öryrkjabandalag íslands óskar
lesendum og landsmönnum öllum
heilla á nýrri öld.
Arnþór Helgason.
4