Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Side 31
Frá Félagi heila-
blóðfallsskaðaðra
Félag heilablóðfallsskaðaðra á eins og lesendur eiga að vita aðild að
Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra og er þannig innan vébanda Öryrkja-
bandalagsins. Félagið hélt aðalfund sinn 22. feb. sl.
Nokkur þáttaskil urðu hjá félaginu á síðasta starfsári því að þá réð félagið
til sín starfsmann í hlutastarfi, en það er einmitt góðkunningi Fréttabréfsins,
Árni Salomonsson, sem gegnt hefur starfinu frá því í október á síðasta ári.
Árni er með fasta tíma á skrifstofu félagsins að Hátúni 12 í viku hverri þ.e.
á miðvikudögum á milli 13 og 15, síminn þar er 561 2200. Auk þess er for-
maðurinn með fastan símatíma heima milli 14 og 15 á fimmtudögum og er
síminn þar 564 1045.
Félagsfundir voru 3 á síðastliðnu ári, vel sóttir. Félagið styrkti myndarlega
útgáfu bæklings sem Heilablóðfallsteymi Landspítalans samdi og gaf út og
áður hefur verið kynntur hér en hann ber heitið: Heilablóðfall - bráðastig og
endurhæfing.
Þá fékk félagið til sýningar kvikmyndina Diamonds með Kirk Douglas í
aðalhlutverki, en sá fékk einmitt heilablóðfall fyrir nokkrum árum.
Lionsklúbburinn Freyr færði félaginu að gjöf nýja IBM tölvu með prentara
að verðmæti hátt í 200 þúsund krónur.
Framundan er átak á vegum félagsins til að ná betur til félaga úti á landi og
virkja þá betur um leið, en félagsmenn eru nú alls um 120. Árni, starfsmaður
félagsins, segir mikið hringt í félagið og sé sú þróun öll hin ánægjulegasta,
en undirritaður telur það hið mesta heillaráð fyrir félagið að hafa ráðið svo
góðan starfsmann til sín sem Ámi er. Félagið nýtur góðs styrks á ljárlögum
ár hvert.
Stjórn skipa nú:
Hjalti Ragnarsson formaður, Helgi Thorvaldsson gjaldkeri og Vilhjálmur
Hjartarson ritari. Til vara eru: Harpa Jónsdóttir og Sigþór Rafnsson.
H. S.
Frá skrifstofu FHBS í Sjálfsbjargarhúsinu. Til vinstri á myndinni er
Jónatan Guðjónsson frá Lionsklúbbnum Frey og til hægri Helgi
Thorvaldsson gjaldkeri FHBS.
Ingi Rafn Hauksson
Frá
Alnæmis-
sam-
tökunum
Alnæmissamtökin á íslandi héldu
aðalfund sinn 27. febrúar sl. Þar
gjörði fráfarandi formaður, Ingi Rafn
Hauksson, grein fyrir ijölþættu starfi
samtakanna á síðasta ári þar sem hæst
bar ijölmargar fræðsluheimsóknir í
skóla landsins. Fráfarandi gjaldkeri,
Guðni Baldursson, gjörði grein fyrir
reikningum og er ijárhagsstaða sam-
takanna allgóð.
Séra Sigfinnur Þorleifsson, sjúkra-
hússprestur, flutti einkar athyglisvert
og um leið skemmtilegt erindi sem
var vel þakkað.
Birna Þórðardóttir nýr formaður
Ný stjórn samtakanna er skipuð
þessu fólki:
Formaður: Birna Þórðardóttir,
varaformaður: Árni Friðrik Ólafarson
og aðrir í stjórn eru: Hafsteinn Haf-
steinsson, Inga Sólveig Friðjóns-
dóttir, Ingi Rafn Hauksson, Linda
Margrét Lundbergsdóttir og Stig
Wadentoft. Framkvæmdastjórinn,
Arndís Andrésdóttir er í barn-
eignarleyfi og gegnir Jón Helgi
Gíslason störfum framkvæmdastjóra
nú um stundir. Aðalfundurinn var
allvel sóttur, en félagar um 300
talsins.
H. S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
31