Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Qupperneq 48
Um starfsemi Foreldrafélags
misþroska barna árið 2000
Starfsemi Foreldrafélags mis-
þroska barna var í nokkuð fost-
um skorðum á árinu 2000 eftir
ráðstefnuárið 1999. Þann 16. febrúar
hélt Ragna Freyja Karlsdóttir sér-
kennari fyrirlestur um nám barna
með athyglisbrest með ofvirkni /
misþroska og hvernig foreldrar
fara best að því að hjálpa börnum
sínum. Fyrirlesturinn var vel sóttur
enda er Ragna Freyja að góðu þekkt
meðal bæði félagsfólks og kennara
eftir áralöng störf í fararbroddi við
sérkennslu á landinu.
Reyndar má benda á að þetta hug-
tak, athyglisbrestur með ofvirkni /
misþroski er óðum að ryðja sér til
rúms hér á landi sem þýðing á ADHD
/ DAMP. ADHD er alþjóðlegt grein-
ingarhugtak en DAMP er sú skil-
greining sem Svíar og Danir nota
mest og sérfræðingar telja almennt að
orðið misþroski sé góð íslenskun á
því.
I febrúar var boðið upp á símaráð-
gjöf sérfræðinga fjóra fimmtudaga í
röð og sama þjónusta var einnig boð-
in um haustið.
A aðalfundi félagsins í lok febrúar
gekk Guðný Ólafsdóttir úr stjórn en
að öðru leyti hélst stjórnin óbreytt því
árið áður höfðu verið kjörnir fjórir
nýir stjórnarmenn. Þar var einnig
samþykkt lagabreyting við 8. grein
sem fjallar um tillögur til lagabreyt-
inga og að þær skuli berast til stjórnar
félagsins fyrir 20. janúar hvers árs.
Viðbótin hljóðar svo: „Sama máli
gegnir um framboð til stjórnar.”
Loks var kynnt sú breyting að Ingólf-
ur Eyfells, sem hefur verið félags-
legur skoðunarmaður reikninga fé-
lagsins í nær áratug, dró sig í hlé frá
þeim starfa en við honum tók Sven
Sigurðsson sem sat í stjórn félagsins í
sex ár og er öllum hnútum kunnugur
í starfsemi félagsins. Ingólfi eru
þökkuð vel unnin störf og Sven er
boðinn velkominn.
A aðalfundinum þann 28. febrúar
sl. gengu þær Elísabet Þórðardóttir
og Ingibjörg Þ. Ólafs úr stjórn fé-
lagsins eftir tveggja ára setu en sæti
þeirra tóku þær Kristín Anna
Matthías
Kristiansen
Jónsdóttir og Liv Sjomoen. Auk
þeirra sitja í stjórn undirritaður,
Kristín I. Guðmundsdóttir, Olga B.
Jónsdóttir, Steinunn Þorsteinsdóttir
og Áslaug Guðmundsdóttir.
r
Imars fór formaður á fund norrænu
nefndarinnar sem staðið hafði fyrir
fimm ráðstefnum á Norðurlöndunum
öllum síðan 1985. Var tilgangur þessa
fundar að gera upp ráðstefnuna og
binda endi á starfsemi þeirrar nefnd-
ar. Kom í ljós að almenn ánægja ríkti
um framkvæmd ráðstefnunnar á
Islandi að öllu leyti nema því hvað
sumum þótti of mikið hafa verið af
erlendum fyrirlesurum, þ.e. fólk sem
ekki starfaði á Norðurlöndum. Við
Islendingarnir vorum þó ásamt fleir-
um algjörlega ósammála þessu vegna
þess að íslenskir sérfræðingar sækja
sína þekkingu á málefninu ekki síður
vestur um haf en austur. Auk þess
vildi þannig til að við buðum þremur
fyrirlesurum frá Ameríku í von um að
a.m.k. einn þeirra gæti komið en allir
sögðu þeir já og þá var útilokað að
hafna þessu afbragðsfagfólki sem
okkur bauðst. Þetta var svo aftur
ástæða þess að ráðstefnan stóð sig
ekki alveg Qárhagslega, þegar dæmið
var endanlega gert upp varð tapið um
340.000 krónur auk fyrri framlaga
félagsins til undirbúningsins. Ég
held að stjórnarfólk sé þó sammála
um að því fé hafi verið vel varið.
Á þessum fúndi var ákveðið að
halda áfram samstarfinu en þó á
nokkrum öðrum forsendum, það yrði
samstarf foreldrafélaganna um
ákveðin verkefni ásamt því að koma
með tillögur um fyrirlesara á þing
sem haldin verða í löndunum fimm.
Norðmenn ætla að ríða á vaðið með
ráðstefnu í apríl 2002 og verður hún
nánar kynnt í haustfréttabréfi
félagsins.
Fulltrúi okkar í þessari nýju nefnd
er Steinunn Þorsteinsdóttir og Heidi
Kristiansen var henni til aðstoðar
fyrsta starfsárið. Það er þó nokkuð
ljóst að félagið hefur varla ráð á að
senda tvo fulltrúa á alla fundi.
Davíð Bergmann Davíðsson ungl-
ingafulltrúi hélt fyrirlestur þann 24.
maí um unglinga í áhættuhópum,
ástæður og einkenni og hvaða leiðir
eru færar til forvarna og íhlutunar.
Tókst honum mjög vel að ná til for-
eldra með myndrænum og dramatísk-
um lýsingum sínum af samskiptum
unglinga í vanda gagnvart skólanum
og kerfinu. Davíð hefur mjög fjöl-
breytta reynslu og gaf okkur nýja
innsýn í þennan harða heim sem
mörg börn og unglingar þurfa að
mæta, glíma við og reyna að lifa af.
I vor kom fram hugmynd um að
leita til yfirvalda um samstarf við að
koma á laggirnar stærri og víðtækari
upplýsinga- og ffæðsluþjónustu og er
bréf þess efnis nýlega farið til Eirðar,
Félagsþjónustunnar í Reykjavík og
Skólaskrifstofu Reykjavíkur. Formleg
svör hafa enn ekki borist en fróðlegt
verður að sjá hvaða viðbrögð við
fáum við þessari tillögu.
Hópferð foreldra og barna var farin
í Viðey þann 4. júní og tókst mjög
vel. Fólk hittist við höfnina, tók ferju
saman og undi sér svo fram eftir degi
við könnun og leiki, grill og gos.
Nokkuð mörg ár eru liðin síðan farið
var í svona hópferð síðast en þátttak-
endur voru sammála um að þetta bæri
að endurtaka.
Um haustið voru haldnir þrír rabb-
fundir síðasta miðvikudag í hverjum
mánuði. Þeir eru góður vettvangur
fyrir foreldra að ræðast við, njóta
48