Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Síða 50

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.2001, Síða 50
Leikgleðin góð og ljómandi túlkun Halaleikhópurinn hefur að einkunnarorðum: Leiklist fyrir alla. Eitt af “mottóum” þeirra er “að enginn er fatlaðri en hann vill vera sjálfur og saman leys- um við málin”, s.s. segir í leikskrá þeirra nú og yfirskriftin er þannig: “Þú ert ekki fatlaðri en þú vilt vera, þar sem skortir upp á getuna bætir þú upp með gáfum, góðu viðmóti, lífs- gleði og samvinnu við aðra”. Við sem fylgst höfum með vexti og við- gangi Halaleikhópsins höfum sann- arlega glaðst yfir hverri leiksýningu þeirra og eins er nú að þessu sinni og vissulega er Halinn hlutverki sínu trúr hið besta, enda segir í leikskrá að í Halaleikhópnum séu nú um 60 fé- lagar og margir þeirra líkamlega fatl- aðir. Verkefni Halans nú er einþátt- ungur Dario Fo : Nakinn maður og annar í kjólfötum - sannkallaður ærslaleikur en þó með hinum alvar- lega undirtón, sem einkenna verk þessa meistara. Leikstjóri er nýr af nálinni hjá Halanum, Björn Gunn- laugsson og hefur greinilega fylgt leikurunum eftir af mikilli kostgæfni og alúð og ljóst að hann hefur laðað fram það besta í hverjum og einum. Sá sem hefur kynnst starfi og striti áhugaleikara veit vel hversu að mörgu þarf að hyggja svo árangur megi sem bestur vera og oft bætir hin einlæga leikgleði það sem á vantar í tæknilegri útfærslu og kunnáttu um leið. Hér lögðu allir sig fram og aug- sýnilega hafði áherslan verið lögð á það meinfyndna í verkinu svo og sem skýrasta framsögn allra. Þar reyndi mest á Jón Þór Ólafsson í hlutverki götusópara númer eitt og þessu viða- mikla og vandasama hlutverki skilaði hann af stakri prýði. Einar Andrés- son lék þann nakta í tunnunni og var einkar skýr í allri sinni framgöngu, þó mála sannast væri honum þröngur stakkur skorinn í tunnunni. Götu- sópari númer tvö með allar sínar heimspekilegu vangaveltur var skemmtilega ákveðin í túlkun Ás- dísar Úlfarsdóttur sem fór einkar vel með textann. Kátu konurnar tvær voru vel leiknar af þeim Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur og Maríu Jóns- dóttur, afar ólíkar persónur sem hvor á sinn hátt voru afar sannfærandi og öll textameðferð til fyrirmyndar. Kostuleg og skemmtileg var mann- gerðin hennar Guðnýjar Öldu Einars- dóttur sem lögreglu og blómasalinn hans Kristins Guðmundssonar var hressilegur og skoplegur í senn. Aðalatriðið var máske það að veita áheyrendum góða skemmt- an og það tókst þessu ágæta fólki svo Hlerað í hornum Hlýtt á tal ungs pars fyrr á öldinni: Hann: “Hugsaðu þér bara góða mín hvað fólkið segir um okkur”. Hún: “Og hvað segir það svo sem?” Hann: “Nú það segir að við séum trúlofuð og ætlum að giftast”. Hún: “Er það nú allt og sumt, það gæti verið miklu verra”. Hann: “Nú, hvernig þá?” Hún: “Eins og það væri ekki rniklu verra ef það væri nú satt”. sannarlega og uppskáru þau verðugt þakklæti að vonurn. Fyrir utan leik- arana er ljóst að margir hafa lagt hönd á plóg til að skapa heildstæða og lifandi sýningu og er þeirra starf þakkarvert hið besta. í leikskránni kemur fram að ætlun fólks í Halaleik- hópnum sé sú að halda námskeið í leiklist síðar í vetur og fleira mun á döfinni einnig og menn láta sig dreyma um nýtt og betra húsnæði og vonandi að af því geti orðið fyrr en síðar. Halaleikhópurinn verður tíu ára á næsta ári og eðlilegt að menn vilji minnast þess áfanga veglega. Halaleikhópnum er þökkuð einstak- lega góð skemmtan og þeim alls góðs árnað í áframhaldandi starfi sínu, sem þegar hefur svo miklum og ánægjulegum árangri skilað. Það er gleðiefni gott fyrir Öryrkjabandalag íslands að mega árlega leggja þessari þörfu starfsemi lið, svo dýrmæt sem hún er mörgum og gefandi og okkur öllum til yndisauka. Helgi Seljan. Hjónin voru að kýta og frúin var orðin æst: “Er það satt sem mér er sagt að þú sért með augun á eftir öðru kvenfólki?” Maðurinn neitar því ákveðið. “Hefurðu þá kysst annars manns konu?” “Já, það veit heilög hamingjan, ótal sinnum”. “Já, grunaði mig ekki. Og segðu mér svo hvaða kona eða konur það voru”. “Nú það var nú bara konan hans pabba míns, hún mamma mín blessuð”. 50

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.