Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 33 Héðinn Birnir Ásbjörnsson, formaður nýstofnaðra Ferðamála­ samtaka Árneshrepps, segir að mikill hugur sé í Strandamönnum að halda áfram uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. „Ef það er einhvern tíma ástæða til að heimsækja Árneshrepp, þá er það núna,“ segir Héðinn. „Margir hafa látið það sitja á hakanum að ferðast hingað og tími kominn til þess hjá mörgum. Við erum ekki óvön því hér að glíma við mótlæti, því erum við mjög ánægð með að það náðist almenn þátttaka í þessu nýstofnaða hagsmunafélagi okkar. Innan þessa félags eru í raun allir sem tengjast ferðaþjónustu í hreppnum. Þar kemur einnig að Ung­ mennafélagið sem rekur sundlaugina í Krossnesi. Þá kemur hreppurinn að þessu óbeint í gegnum kaffihúsið, Kaffi Norðurfjörð, sem Sara Jónasdóttir rekur. Ekki má heldur gleyma Verzlunarfjelagi Árneshrepps í Norðurfirði sem er framtak heimamanna og velunnara hreppsins. Sá rekstur var settur í gang í júní á síðastliðnu sumri, þannig að þetta er annað rekstrarsumarið. Fólk þarf því ekki endilega að koma klyfj að af vistum hingað norður, því hér má fá helstu nauðsynjavörur.“ Blásið til kynningar á Árneshreppi „Við ætlum okkur að blása til átaksverkefnis sem kynnir Árneshrepp sem vænlegan áningarstað fyrir ferðafólk. Þá erum við að horfa á að kynna fleira en gististaði, því við munum tjalda öllu til hvað varðar afþreyingu og annað. Við erum þar m.a. með eitt flottasta minja­ og handverkshús á landinu í Kört í Árnesi og að okkar mati flottustu sundlaug í heimi í Krossnesi. Við ætlum að benda á alla þá kosti sem hér er upp á að bjóða fyrir fjölskyldufólk og aðra sem hyggja á ferðalög um Ísland. Auðvitað er veðrið þó alltaf stærsta breytan í þessu fyrir íslenska ferðamenn. Þeir eru vanir að fara þangað sem veðrið er gott.“ Vegurinn kom vel undan vetri Héðinn segir að vegurinn norður Strandir hafi komið ágætlega undan vetri. Þá hafi verið gert talsvert í endurbótum á veginum úr Ingólfsfirði í Ófeigsfjörð sem sé vel fær fjórhjóladrifnum bílum. „Það er vel ferðarinnar virði að fara í Ófeigsfjörð og kynna sér af eigin raun þetta margumtalaða svæði fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar.“ Ekkert að því að ferðast norður á Strandir með tjald-, felli- og hjólhýsi „Vegurinn norður Strandir er annars með betra móti og í fyrra var hann mjög fínn nánast allt sumarið, enda mjög þurrt í veðri. Það er ekkert að því að ferðast í Árneshrepp með tjaldvagna, felli­ eða hjólhýsi og vel fært öllum bílum.“ Héðinn segir að góð aðstaða sé fyrir tjöld, tjaldvagna, felli­ eða hjólhýsi hjá Ferðaþjónustunni Urðartindi hjá Arinbirni Bern­ harðssyni í Norðurfirði. Þá hafi líka verið aðstaða þar rétt hjá, eða við Finnbogastaðaskóla í Norðurfirði, en sú aðstaða verði ekki starfrækt í sumar, enda vart þörf á því. Svo er boðið upp á gistingu á Hótel Djúpavík, einnig er boðið upp á góða svefnpokagistingu hjá Gunnsteini Gíslasyni og Margréti Jónsdóttur á Bergistanga í Norðurfirði. Þá verða Strandferðir með siglingar frá Norðurfirði og norður í Reykjafjörð. „Það verður því þjónusta á svæðinu sem flestir ættu að geta nýtt sér,“ segir Héðinn Birnir Ásbjörnsson. /HKr. Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is AKURShús - timbureiningahús íslensk hönnun & framleiðsla Afhent samsett á byggingarstað eða ósamsett í einingum – Við allra hæfi – „ Kannaðu málið á akur.is og pantaðu frían húsabækling Margar stærðir og gerðir frá 93 - 227m2 ÍSLAND ER LAND ÞITT Hugur í íbúum Árneshrepps á Ströndum: Nýstofnuð Ferðamálasamtök Árneshrepps blása til sóknar – Góð gistiaðstaða og auðvelt að ferðast norður á Strandir með felli- og hjólhýsi Verzlunarfjelag Árneshrepps í Norðurfirði sér nú um rekstur verslunar í gamla Kaupfélagshúsinu á Krossnesi. Þar geta ferðamenn keypt helstu nauðsynjar þegar lagt er í ferð um Árneshrepp á Ströndum. Mynd / HKr. Héðinn Birnir Ásbjörnsson, formaður nýstofnaðra Ferðamála samtaka Árnes- hrepps, með dóttur sína Herdísi Kolku í fjallgöngu, en hún verður 5 ára í ágúst. Árið 1988 Árið 1988 fór fyrsta flugnanetið í glugga frá mér í einbýlishús. Síðan eru liðin mörg ár og margt breyst síðan. fiskvinnsluhús, heilsugæslustöð saltverksmiðju, mjólkurhús, hótel, gistiheimili, veitingahús bændagisting, iðnaðar eldhús, ótal sumarhús svo og einbýlishús og fjölbýli. Varanleg lausn. Hringdu eða sendu tölvupóst. Kem á staðinn og veiti persónulega ráðgjöf. Lúsmý, engin fyrirstaða. Lausn til framtíðar. Sími 8959801 email: flugnanet@gmail.com Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.