Bændablaðið - 20.05.2020, Síða 38
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202038
UTAN ÚR HEIMI
Heimsfaraldur vegna COVID-19 hefur mikil áhrif á kjötviðskipti:
Ástralskir kjötframleiðendur búa sig
undir langvarandi neikvæð áhrif
– Ljósi punkturinn er þó vaxandi sala á nauta- og kindakjöti til Kína
Kjöt- og búfjársamtök Ástralíu
[Meat & Livestock Australia –
MLA] hafa gert úttekt á áhrifum
COVID-19 á söluhorfur á kjöt-
markaði. Flestar vísbendingar eru
þar frekar neikvæðar.
Nautakjötsútflutningur frá
Ástralíu dróst saman um 2% í apríl
miðað við mars og endaði í 92.500
tonnum. Kindakjötsútflutningur
dróst hins vegar saman um 15% á
milli mánaða og endaði í 32.718
tonnum, sem að hluta skýrist af
ramadan-hátíð múslíma. Samdráttur
í útflutningi til einstakra landa var í
sumum tilfellum gríðarlegur. Þannig
var 39% samdráttur í sölu lamba-
kjöts til Malasíu og 50% samdráttur
í kjöti af fullorðnu sauðfé.
Kjötframleiðendur hafa dregið
mjög saman seglin til að mæta
minnkaðri eftirspurn. Sem dæmi var
19% samdráttur í sölu nautakjöts til
Bandaríkjanna á milli ára frá apríl
2019 til apríl 2020. Samt er aukning
í sumum ódýrari skrokkbitum á
meðan samdrátturinn hefur orðið allt
að 25% í útflutningi á nautalundum.
Ljósi punkturinn er Kína
Fyrir ástralska kjötframleiðendur
eru einna helst bundnar vonir við
vaxandi áhuga kínverskra neytenda.
Snöggur vöxtur varð á útflutningi
á rauðu kjöti til Kína frá Ástralíu
í apríl. Þannig jókst útflutningur á
nautakjöti um 30% og fór í 24.000
tonn sem sló metið sem sett var í des-
ember 2019. Þá hefur verið nokkuð
stöðugur útflutningur á lambakjöti til
Kína, en hann nam 7.000 tonnum í
apríl, sem er um 2% aukning. Þá var
líka sjáanleg aukning í sölu á kjöti
af fullorðnu fé (ærkjöti) sem fór úr
3.300 tonnum í mars í 4.600 tonn í
apríl. Þess má geta að Ástralir hafa
líka flutt umtalsvert af lifandi naut-
gripum til sláturhúsa í Kína.
Spáð 3% samdrætti
í hagkerfum heimsins
Horfur í efnahagsmálum heims-
ins hafa haldið áfram að vera
undir fyrri spám á undanförnum
mánuðum vegna COVID-19. Í apríl
spáði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
(IMF) um 3,3% hagvexti í heim-
inum árið 2020. Eftir endurskoðun
í apríl var sú spá orðin þveröfug
og sýndi 3,0% samdrátt. Aðrir eru
enn svartsýnni á horfur um hagvöxt
árið 2020.
Búist við samdrætti á 11 af 15
helstu kjötmörkuðum Ástrala
Nú er búist við samdrætti á 11 af 15
verðmætustu útflutningsmörkuðum
á rauðu kjöti fyrir ástralskar afurðir
á árinu 2020. Innlendi markaður-
inn fyrir kjötvörur er enn mikil-
vægastur, en þar er einnig búist
við samdrætti eftir þriggja áratuga
samfelldan vöxt.
Landsframleiðsla í hinum ýmsu
löndum segir ekki ein og sér til
um eftirspurn eftir áströlsku rauðu
kjöti. Hún endurspeglar hins vegar
heilbrigði hagkerfa um allan heim
og tekur mið af atvinnuleysi, trausti
neytenda og tekna. Allt eru það
þættir sem hafa bein áhrif á sölu
á rauðu kjöti.
Talsmenn LMA reyna að meta
hvaða ályktun megi draga af mögu-
legum 3% samdrætti í stöðu sem
á sér engin fordæmi í sögunni.
Alþjóðlega fjármálakreppan
2008 var að mestu leyti takmörk-
uð við þróuð hagkerfi – einkum
Bandaríkin, ESB og Japan. Meðan
á þeirri kreppu stóð hélt efna-
hagskerfið áfram að stækka mikið
í Asíu, í skjóli mikils hagvaxtar í
Kína. Staðan nú er þannig að sam-
kvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
(AGS) er gert ráð fyrir að hagkerfi
Kína muni vaxa aðeins um 1,2%
árið 2020, samanborið við 9,4%
árið 2009. Að auki hefur COVID-
19 samtímis áhrif á hagkerfið og
breytt því hvernig fólk kaupir og
neytir vöru. Bæði kaupmáttur neyt-
enda og hegðun mun breytast með
þeim hætti sem ekki hefur sést í
fyrri efnahagsáföllum.
Spáð breyttri hegðun neytenda
Reynslan sýnir að heilbrigði hag-
kerfa heimsins gefa vísbendingar
um kaupmátt og kauphegðun íbúa
hinna ýmsu þjóða þó það sé ekki
eini áhrifavaldurinn. Samkvæmt
mati LMA mun niðursveiflan vegna
COVID-19 verða dýpri og vara
lengur en áhrifin af efnahagshrun-
inu 2008. Þá er líka talið líklegt
að þessi heimsfaraldur muni hafa
margvísleg áhrif á hegðun neytenda
til lengri tíma. /HKr.
Nautakjötsútflutningur frá Ástralíu dóst saman um 2% í apríl miðað við mars
og endaði í 92.500 tonnum. Kindakjötsútflutningur dróst hins vegar saman
um 15% á milli mánaða og endaði í 32.718 tonnum. Útflutningur á nautakjöti
frá Ástralíu ti Kína jókst samt um 30% í apríl og fór í 24.000 tonn, sem sló
metið sem sett var í desember 2019.
Ástralir hafa líka flutt umtalsvert af lifandi nautgripum til sláturhúsa í Kína.
Hér er verið að lesta skip af lifandi nautgripum í Ástralíu.
Kjötútflutningur frá Bandaríkjunum:
Met var slegið í svínakjötsútflutningi til Kína í mars
– Mikill vöxtur í útflutningi á fyrsta ársfjórðungi en blikur á lofti vegna COVID-19
Útflutningur Bandaríkjamanna
á svínakjöti til Kína sló öll
met í mars skömmu áður en
COVID-19 faraldurinn setti
allt á annan endann. Jókst
svínakjötsútflutningurinn um
38% frá sama mánuði í fyrra og
var 291.459 tonn samkvæmt frétt
á vefsíðu Global Meat.
Helstu markaðir Bandaríkja manna
fyrir svínakjöt eru Hong Kong í Kína,
sem og Mexíkó, Japan og Kanada.
Vegna svínapestarinnar sem leikið
hefur kínverska svínarækt mjög illa á
liðnum misserum, brugðu Kínverjar á
það ráð að tryggja sér kjöt á mörkuð-
um um allan heim. Bandaríkin eru þar
engin undantekning þótt ráðamenn
þjóðanna hafi verið iðnir við að henda
ónotum á milli sín.
Á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs nam svínakjötsútflutningur
Bandaríkjamanna til Kína 838.118
tonnum sem var um 40% aukning frá
sama tímabili í fyrra. Verðmæti þessa
kjöts var 2,23 milljarðar dollara sem
er 52% aukning á milli ára. Kemur
það í kjölfar metútflutnings í des-
ember 2019 sem síðan var slegið
nú í apríl. Eins og fyrr segir nam
útflutningurinn 291.459 tonnum í
apríl og auk 38% magnaukningar
þá nam verðmætaaukningin 47%, en
selt var fyrir 764,2 milljónir dollara.
Útflutningur á nautakjöti frá
Bandaríkjunum var einnig mik-
ill í marsmánuði, eða 115.308
tonn sem er 7% aukning á milli
ára. Verðmæti kjötsins var 702,2
milljónir dollara sem er 4% aukn-
ing frá sama mánuði 2019. Seld
voru 334.703 tonn af nautakjöti
á fyrsta ársfjórðungi 2020 sem er
9% aukning milli ára. Verðmæti
þess var 2,06 milljarðar dollara
sem er um 8% verðmætaaukning
á milli ára. Var þessi aukna sala á
nautakjöti að stórum hluta knúin
áfram af söluaukningu til Japans
í kjölfar undirskriftar á nýjum
tollasamningi milli Japans og
Bandaríkjanna.
Í dag er staðan á kjötsölu frá
Bandaríkjunum öllu tvísýnni vegna
COVID-19. Í raun veit enginn
hvernig þau mál þróast, en þessi
faraldur hefur líka skapað mikil
vandamál á innanlandsmarkaði þar
sem birgðir hafa hlaðist upp. Hefur
Bandaríkjaforseti af þeim sökum
lofað að ríkið kaupi allt kjöt af bænd-
um. /HKr.
Útflutningur á svínakjöti frá Bandaríkjunum til Kína sló öll met í mars og jókst hann um 38% frá sama mánuði í fyrra.