Bændablaðið - 20.05.2020, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 2020 39
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
BJARNARBRAUT 8, BORGARNESI – SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Um er að ræða 629,4 m2 skrifstofuhúsnæði á 1. hæð við
Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Eignin skiptist í tvö skrifstofurými, annars vegar 361,8 m2
og hins vegar 267,6 m2. Samtals 629,4 m2.
Gengið er inn um bjarta tengibyggingu sem er í sameign.
Gott aðgengi er að húsinu og rúmgóð steypt bílastæði fylgja
en stæðin eru ekki sérmerkt.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á heimasíðu Ríkiskaupa:
www.rikiskaup.is.
Verð: 112 mkr.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
UTAN ÚR HEIMI
Dýravelferð verulega ábótavant við sjóflutninga lifandi búfjár:
14.600 kindur drukknuðu
Samkvæmt nýrri skýrslu
framkvæmda stjórnar Evrópu
sam bandsins er dýravelferð veru
lega ábótavant þegar kemur að
sjóflutningum lifandi búfjár frá
Evrópusambandinu.
Sláandi dæmi um vanrækslu af
þessu tagi er frá því í nóvember á
síðasta ári þegar um 14.600 sauð-
fjár drukknaði þegar rúmverskt
flutningaskip, Queen Hind, lagðist
á hliðina og sökk skömmu eftir að
það lagði frá bryggju. Við nánari
rannsókn á slysinu kom í ljós að
búið hafði verið til falskt millidekk
í lest skipsins til að fjölga gripum
sem hægt væri að flytja. Rúmenía
er stærsti útflytjandi lifandi búfjár í
Evrópu og mest er flutt út þaðan til
landanna fyrir botni Miðjarðarhafs
og til Sádi-Arabíu.
Margar milljónir dýra á ári
Á hverju ári eru fleiri milljón lif-
andi búfjár, nautgripa, sauðfjár og
geita, flutt sjóleiðina frá
löndum Evrópu-
s a m b a n d s i n s
og mest af dýr-
unum fer til Mið-
Austurlanda og
no rðanve rð ra r
Afríku. Samkvæmt
skýrslunni, Welfare
of Animals Trans-
ported by Sea,
hafa einungis 25%
flutninga skip anna
leyfi til búfjár-
flutninga eða með
leyfi frá löndum utan
Evrópu sambandsins
og áhafnarmeðlimir
sjaldnast þjálfaðir
til að huga að vel-
ferð dýranna. Mörg f lu tn inga-
skip sem taka að sér búfjárflutninga
eru upphaf lega hönnuð til að flytja
bíla og því ekki búin nauðsynlegum
búnaði til að brynna eða skola undan
dýrunum.
Í skýrslunni kemur fram að
framkvæmd flutninganna sé oft illa
skipulögð, ekki sé gert ráð fyrir að
dýrin þurfi oft að þola mikla hita
við flutningana
og að fóður og
vatnsgjöf sé
iðulega í lág -
marki. Í skýrsl unni er
einnig gagn rýnt að ekkert opin bert
eftirlit sé með meðferð meðan á
flutn ingunum stend ur og ekk ert sé
vitað um afdrif eða meðferð þeirra
á áfangastað.
Afleit skipulagning
og takmörkuð ábyrgð
Fram kemur að vegna slæmrar
skipulagningar hafi farmar með lif-
andi búfé verið sent á ranga áfanga-
staði og að upp hafi komið tilfelli
þar sem ekki hafi verið gert ráð
fyrir að dýrin þyrftu vatn eða fóður
á leiðinni. Einnig er gagnrýnt að
óvíst er hver ber ábyrgð á dýrunum
á ólíkum stigum flutninganna, mót-
töku eftir flutninga á landi, lestun,
velferð meðan á sjóflutningunum
stendur, móttöku á áfangastað og
eftirfylgni.
Einungis sex af þrettán stærstu
útskipunarhöfnum lifandi búfjár eru
sagðar hafa viðunandi aðstöðu við
eða í nágrenni hafnanna til að taka
á móti stórum förmum dýra til að
hleypa þeim frá borði til að fóðra
þau, gefa vatn og leyfa dýrunum
að hvílast.
Írland og Portúgal eru þau lönd
sem sögð eru standa sig hvað
velferð dýranna í flutningum varðar
þótt víða hefði mátt gera betur. /VH
Sláandi dæmi um vanrækslu við sjóflutninga búfjár er frá
því í nóvember á síðasta ári þegar þegar rúmverskt flutn-
ingaskip Queen Hind lagðist á hliðina og sökk eftir að það
lagði frá bryggju. Mynd / Animals Inrernational
Búfjárflutn ingar
á sjó fá fall-
einkunn í nýrri
skýrslu fram
kvæmda stjórnar
Evrópu sam
bands ins.