Bændablaðið - 20.05.2020, Side 50

Bændablaðið - 20.05.2020, Side 50
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202050 Allt frá árinu 2003 hefur Landssamband kúabænda stað- ið fyrir því að taka saman upp- lýsingar um fjósgerðir á Íslandi og þróun þeirra ásamt ýmsum öðrum gagnlegum upplýsing- um. Þetta hefur verið gert u.þ.b. annað hvert ár og nú liggur fyrir níunda skýrslan og tekur hún til árabilsins 2017-2019. Margt afar áhugavert kemur fram í þessari skýrslu og m.a. að í fyrsta skipti þá eru básafjós með rörmjaltakerfi ekki lengur algeng­ asta fjósgerðin á Íslandi en mjalta­ þjónafjósin hafa nú tekið forustuna í þessum efnum. Fullyrða má að ekkert annað land í heiminum hafi jafn hátt hlutfall mjaltaþjónafjósa af heildarfjölda fjósa. 542 fjós í framleiðslu Í skýrslunni kemur fram að í árs­ lok 2019 voru 542 fjós í mjólkur­ framleiðslu á Íslandi en haustið 2009 voru þau 685 og hefur fjósum því fækkað um 143 á síðasta áratug eða um 21%. Þessi þróun er mjög svipuð því sem verið hefur hér á landi síðustu tvo áratugina. Ef litið er til þróunarinnar síð­ ustu tvö ár þá hefur fjósum hér á landi fækkað um 31 eða 5,4%. Þessi þróun hér á landi er afar áþekk þeirri þróun sem á sér stað um alla Evrópu, þar sem fjósum hefur verið að fækka um 4­8% á ári. Þrátt fyrir fækkun fjósa á hverju ári bæði á Íslandi og í Evrópu hefur heildar mjólkurframleiðslan aukist jafnt og þétt enda hafa eigendur þeirra fjósa sem eftir standa stækkað þau. 73% kúnna í lausagöngu Undanfarna áratugi hafa orðið gríðarlega miklar breytingar á húsvist íslenskra mjólkurkúa og ekki eru nema rétt um 20 ár síðan nærri öll fjós landsins voru básafjós af einhverri gerð og kýrnar því bundnar á bása en þetta er gjörbreytt í dag. Af þeim 542 fjósum sem voru í framleiðslu í árslok 2019 þá voru 58,1% þeirra lausagöngufjós. Þetta hlutfall gefur þó ekki alveg rétta mynd af stöðu aðbúnaðar kúa á Íslandi því ef litið er til stærðar fjósanna þá eru lausagöngufjósin með mun fleiri kýr að jafnaði. Í árs­ lok 2019 voru þannig 73,3% allra kúa á landinu í lausagöngufjósum en fyrir fjórum árum var þetta hlut­ fall 60,3% svo breytingin er ansi hröð og ef hún heldur svona áfram verða nánast allar kýr landsins í lausagöngu eftir 7 ár. Á meðfylgjandi mynd hér að ofan má sjá hvernig þróun fjós­ gerða hefur verið síðustu áratugi. Eins og sjá má gengu breytingarnar nokkuð hratt fyrir sig fram undir hrun en svo hægði verulega á þró­ uninni, sem hefur svo aftur tekið mikinn kipp síðustu árin. Mjaltaþjónafjós algengust Í skýrslunni er fjósgerðum skipt upp í tvo yfirflokka og samtals fimm undirflokka þar sem yfirflokkarnir eru annars vegar básafjós og hins vegar lausagöngufjós. Undirflokkar þessara tveggja megin fjósgerða taka svo mið af þeirri mjaltatækni sem er í notkun í fjósunum. Niðurstöðurnar má sjá í töflu 1, en þar kemur fram að frá árinu 2009 hefur básafjósum fækkað verulega eða úr 446 í 227 eða um 49%. Á sama tíma tíma hefur lausagöngufjósum fjölgað úr 238 í 315 sem er rúmlega 32% aukning á liðnum áratug. Þá koma fram í þessari skýrslu þau tíðindi, eins og hér að framan hefur verið nefnt, að básafjós með rörmjaltakerfi eru ekki lengur algengasta fjósgerðin á landinu en þau voru um áramótin 182 en á sama tíma voru mjaltaþjónafjósin orðin 216. Gengur þannig eftir þróun sem hefur verið fyrirsjáanleg all lengi og þessum skiptum á algengustu fjósgerð landsins var einmitt spáð í skýrslu Landssambands kúabænda fyrir tveimur árum. Þá er afar fróðlegt að sjá að enn eru þrjú fjós hér á landi sem nota vélfötur til mjalta. Veigamesta breytingin á síðustu 10 árum er auðvitað mikill fram­ gangur fjósa með mjaltaþjóna. Á þeim tíma hefur fjósum á Íslandi fækkað um 143 fjós en á sama tíma hefur mjaltaþjónafjósum fjölgað um 121. Meðalnyt mjaltaþjónafjósa langhæst Þegar skoðað er samhengi afurða, samkvæmt skýrsluhaldi RML, og fjósgerða kemur ekki á óvart að fjós með mjaltaþjónum eru langafurðahæst á landinu og er það í samræmi við uppgjör fyrri ára. Tekið skal fram að við þessa útreikninga er alltaf notað uppgjör allra búa í árslok uppgjörsársins, óháð því hvort þau hafi skipt um mjaltatækni á árinu eða ekki. Þá koma sum bú ekki til uppgjörs vegna vanskila á skýrslum eða annarra óvssuþátta. Þessi reikniaðferð ber auðvitað með sér ákveðna skekkju og skal því tekið með fyrirvara enda má t.d. ætla að meðalafurðir ættu að vera hærri á búum sem skiptu úr hefðbundinni mjaltatækni á árinu og yfir í mjaltaþjónatækni vegna tíðari mjalta. Þrátt fyrir þessa annmarka er, eins og áður segir, heildarmeðaltal mjaltaþjónabúa landsins hæst en vegið meðaltal þeirra var 6.710 kg mjólkur að jafnaði á hverja árskú á nýliðnu ári. Næstafurðahæstu búin voru svo lausagöngfjós án mjaltaþjóna með 6.131 kg. Þá voru meðalafurðir kúa í básafjósum með mjaltabása 5.961 kg og lægstar meðalafurðir eru að jafnaði í básafjósum með rörmjaltakerfi eða 5.619 kg. Hver meðalkýr er því að skila af sér rúmlega einu tonni meira af mjólk sé hún í mjaltaþjónafjósi í stað þess að vera í básafjósi með r ö r m j a l t a k e r f i . Þessi gríðarlega mikli munur getur skýrst af mörgum þáttum og sýna fyrri athuganir hér á landi að t.d. tíðari mjaltir mjaltaþjóna skýra í kringum helminginn af meðal Á FAGLEGUM NÓTUM Snorri Sigurðsson snorri.sigurdsson@outlook.com Garð- og skógarplöntur eru fjölbreyttur hópur plantna sem lands- menn nota til að prýða garða, opin svæði og lóðir við stofnanir og fyrirtæki, sem og trjá- plönturnar sem not- aðar eru til að rækta skóga framtíðar. Til að ná árangri í framleiðslu þessara tegunda þarf sérþekk­ ingu sem ekki er á færi leikmanna og fram­ leiðslan gerir auk þess sérstakar kröfur um ræktunaraðstöðu og tækni. Ræktun þessa fjölbreytta gróðurs er kennd á námsleið um garð­ og skógarplöntufram­ leiðslu á Garðyrkjuskóla LBHÍ á Reykjum í Ölfusi. Þar starfa sér­ fræðingar með áratuga reynslu af framleiðslu og notkun þeirra. Fjölbreytt og skemmtilegt nám Á námsleiðinni Garð­ og skógarplöntuframleiðsla eru kennd grunnfög garðyrkjunnar, til að mynda grasafræði, plöntu­ lífeðlisfræði, almenn ylræktun og jarðvegs­ og áburðarfræði, en einnig sérfög í framleiðslu garð­ og skógarplantna. Sérstaklega er kennd plöntuþekking og fram­ leiðsluferli hinna ýmsu tegunda. Áherslur í námi á Reykjum tengjast umhverfisvernd og sjálf­ bærni og er þar m.a. stuðst við gildi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og tekið mið af sér­ stöðu Íslands varðandi gróður­ far, verndun náttúrugæða og möguleika í vali á hinum ýmsu tegundum. Vistfræði er kynnt og einnig markaðsfræði og skipulag og stofnun garðyrkju­ stöðva. Sérstakur áfangi um ræktun ávaxtatrjáa er kenndur og sömuleiðis torf­ og grjóthleðslur, trjáklippingar og trjáfellingar. Útskrifaðir nemar hafa fengið góða innsýn í skógrækt, land­ notkun, verndun lífríkis og garð­ yrkju í sátt við umhverfið. Starfsvettvangur víða í samfélaginu Námið á Reykjum er blanda bók­ náms og verknáms. Bóknámið skiptist í 4 annir en verknám fer fram á viðurkenndum verk­ námsstöðum. Starfsvettvangur útskrifaðra nemenda er garð­ og skógarplöntustöðvar, plöntu­ ræktun, sala og ráðgjöf til við­ skiptavina auk þess að aðstoða við tilraunir og rannsóknir. Fjarnám er í boði á þessari námsbraut. Þá tekur námið að jafnaði 8 annir, auk verknáms. Útskrifaðir nemar eru eft­ irsóttir sem verkstjórar og ræktunarstjórar og starfa auk plöntuframleiðslu við garðyrkju­ störf hjá bæjar­ og sveitarfélög­ um. Námið veitir góðan grunn að framhaldsnámi erlendis. Einnig eru möguleikar í stofnun nýrra fyrirtækja í framleiðslu garð­ og skógarplantna. Kennslan hefst í ágústlok 2020 og er hægt er að sækja um nám á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands: lbhi.is. Kennslan fer fram á garðyrkjuskóla LBHÍ á Reykjum í Ölfusi. Umsóknarfrestur er til 15. júní. Ingólfur Guðnason GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM Framleiðsla garð- og skógarplantna: Hagnýtt og áhugavert nám Garðplöntur í gróðurhúsi. Til að ná árangri í framleiðslu plantna þarf sérþekkingu og framleiðslan gerir sérstakar kröfur um ræktunaraðstöðu og tækni. Starfsvettvangur útskrifaðra nemenda er garð- og skógarplöntustöðv- ar, ræktun, sala og ráðgjöf til viðskiptavina auk þess að aðstoða við tilraunir og rannsóknir. Tafla 1: Fjósgerðir og mjaltatækni, þróun í fjölda á landsvísu sl. 10 ár 2009 2019 Breyting Básafjós m. fötukerfum 10 3 -70% Básafjós m. rörmjaltakerfum 373 182 -51% Básafjós m. mjaltabásum 63 42 -33% Lausagöngufjós án mjaltaþjóna 143 99 -31% Lausagöngufjós m. mjaltaþjónum 95 216 127% Annað 1 0 Samtals 685 542 -21% 1,6% 13,6% 22,6% 29,8% 34,8% 36,5% 38,7% 43,4% 52,0% 58,1% 98,4% 86,4% 77,4% 70,2% 65,2% 63,5% 61,3% 56,6% 48,0% 41,9% 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100% 1994-1997 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017 2019 Lausagöngufjós, allar gerðir Básafjós, allar gerðir Hlutfallsleg skipting fjósgerða 1994–2019. Mjaltaþjónafjós algengasta fjósgerðin á Íslandi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.