Bændablaðið - 20.05.2020, Qupperneq 50
Bændablaðið | Miðvikudagur 20. maí 202050
Allt frá árinu 2003 hefur
Landssamband kúabænda stað-
ið fyrir því að taka saman upp-
lýsingar um fjósgerðir á Íslandi
og þróun þeirra ásamt ýmsum
öðrum gagnlegum upplýsing-
um. Þetta hefur verið gert u.þ.b.
annað hvert ár og nú liggur fyrir
níunda skýrslan og tekur hún til
árabilsins 2017-2019.
Margt afar áhugavert kemur
fram í þessari skýrslu og m.a. að
í fyrsta skipti þá eru básafjós með
rörmjaltakerfi ekki lengur algeng
asta fjósgerðin á Íslandi en mjalta
þjónafjósin hafa nú tekið forustuna
í þessum efnum. Fullyrða má að
ekkert annað land í heiminum hafi
jafn hátt hlutfall mjaltaþjónafjósa
af heildarfjölda fjósa.
542 fjós í framleiðslu
Í skýrslunni kemur fram að í árs
lok 2019 voru 542 fjós í mjólkur
framleiðslu á Íslandi en haustið
2009 voru þau 685 og hefur fjósum
því fækkað um 143 á síðasta áratug
eða um 21%. Þessi þróun er mjög
svipuð því sem verið hefur hér á
landi síðustu tvo áratugina.
Ef litið er til þróunarinnar síð
ustu tvö ár þá hefur fjósum hér
á landi fækkað um 31 eða 5,4%.
Þessi þróun hér á landi er afar áþekk
þeirri þróun sem á sér stað um alla
Evrópu, þar sem fjósum hefur verið
að fækka um 48% á ári. Þrátt fyrir
fækkun fjósa á hverju ári bæði á
Íslandi og í Evrópu hefur heildar
mjólkurframleiðslan aukist jafnt og
þétt enda hafa eigendur þeirra fjósa
sem eftir standa stækkað þau.
73% kúnna í lausagöngu
Undanfarna áratugi hafa orðið
gríðarlega miklar breytingar á
húsvist íslenskra mjólkurkúa og
ekki eru nema rétt um 20 ár síðan
nærri öll fjós landsins voru básafjós
af einhverri gerð og kýrnar því
bundnar á bása en þetta er gjörbreytt
í dag.
Af þeim 542 fjósum sem voru í
framleiðslu í árslok 2019 þá voru
58,1% þeirra lausagöngufjós. Þetta
hlutfall gefur þó ekki alveg rétta
mynd af stöðu aðbúnaðar kúa á
Íslandi því ef litið er til stærðar
fjósanna þá eru lausagöngufjósin
með mun fleiri kýr að jafnaði. Í árs
lok 2019 voru þannig 73,3% allra
kúa á landinu í lausagöngufjósum
en fyrir fjórum árum var þetta hlut
fall 60,3% svo breytingin er ansi
hröð og ef hún heldur svona áfram
verða nánast allar kýr landsins í
lausagöngu eftir 7 ár.
Á meðfylgjandi mynd hér að
ofan má sjá hvernig þróun fjós
gerða hefur verið síðustu áratugi.
Eins og sjá má gengu breytingarnar
nokkuð hratt fyrir sig fram undir
hrun en svo hægði verulega á þró
uninni, sem hefur svo aftur tekið
mikinn kipp síðustu árin.
Mjaltaþjónafjós algengust
Í skýrslunni er fjósgerðum skipt upp
í tvo yfirflokka og samtals fimm
undirflokka þar sem yfirflokkarnir
eru annars vegar básafjós og hins
vegar lausagöngufjós. Undirflokkar
þessara tveggja megin fjósgerða taka
svo mið af þeirri mjaltatækni sem er
í notkun í fjósunum.
Niðurstöðurnar má sjá í töflu
1, en þar kemur fram að frá árinu
2009 hefur básafjósum fækkað
verulega eða úr 446 í 227 eða
um 49%. Á sama tíma tíma hefur
lausagöngufjósum fjölgað úr 238 í
315 sem er rúmlega 32% aukning
á liðnum áratug. Þá koma fram í
þessari skýrslu þau tíðindi, eins og
hér að framan hefur verið nefnt,
að básafjós með rörmjaltakerfi
eru ekki lengur algengasta
fjósgerðin á landinu en þau voru
um áramótin 182 en á sama tíma
voru mjaltaþjónafjósin orðin 216.
Gengur þannig eftir þróun sem
hefur verið fyrirsjáanleg all lengi
og þessum skiptum á algengustu
fjósgerð landsins var einmitt spáð í
skýrslu Landssambands kúabænda
fyrir tveimur árum. Þá er afar
fróðlegt að sjá að enn eru þrjú fjós
hér á landi sem nota vélfötur til
mjalta.
Veigamesta breytingin á síðustu
10 árum er auðvitað mikill fram
gangur fjósa með mjaltaþjóna. Á
þeim tíma hefur fjósum á Íslandi
fækkað um 143 fjós en á sama tíma
hefur mjaltaþjónafjósum fjölgað
um 121.
Meðalnyt mjaltaþjónafjósa
langhæst
Þegar skoðað er samhengi afurða,
samkvæmt skýrsluhaldi RML,
og fjósgerða kemur ekki á óvart
að fjós með mjaltaþjónum eru
langafurðahæst á landinu og er það í
samræmi við uppgjör fyrri ára. Tekið
skal fram að við þessa útreikninga
er alltaf notað uppgjör allra búa í
árslok uppgjörsársins, óháð því
hvort þau hafi skipt um mjaltatækni
á árinu eða ekki. Þá koma sum bú
ekki til uppgjörs vegna vanskila á
skýrslum eða annarra óvssuþátta.
Þessi reikniaðferð ber auðvitað
með sér ákveðna skekkju og skal
því tekið með fyrirvara enda má
t.d. ætla að meðalafurðir ættu að
vera hærri á búum sem skiptu úr
hefðbundinni mjaltatækni á árinu
og yfir í mjaltaþjónatækni vegna
tíðari mjalta.
Þrátt fyrir þessa annmarka er,
eins og áður segir, heildarmeðaltal
mjaltaþjónabúa landsins hæst en
vegið meðaltal þeirra var 6.710 kg
mjólkur að jafnaði á hverja árskú
á nýliðnu ári. Næstafurðahæstu
búin voru svo lausagöngfjós án
mjaltaþjóna með 6.131 kg. Þá voru
meðalafurðir kúa í básafjósum með
mjaltabása 5.961 kg og lægstar
meðalafurðir eru að jafnaði í
básafjósum með rörmjaltakerfi eða
5.619 kg. Hver meðalkýr er því að
skila af sér rúmlega einu tonni meira
af mjólk sé hún í mjaltaþjónafjósi
í stað þess að vera
í básafjósi með
r ö r m j a l t a k e r f i .
Þessi gríðarlega
mikli munur getur
skýrst af mörgum
þáttum og sýna
fyrri athuganir hér
á landi að t.d. tíðari
mjaltir mjaltaþjóna
skýra í kringum
helminginn af meðal
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Garð- og skógarplöntur
eru fjölbreyttur hópur
plantna sem lands-
menn nota til að prýða
garða, opin svæði og
lóðir við stofnanir og
fyrirtæki, sem og trjá-
plönturnar sem not-
aðar eru til að rækta
skóga framtíðar.
Til að ná árangri
í framleiðslu þessara
tegunda þarf sérþekk
ingu sem ekki er á færi
leikmanna og fram
leiðslan gerir auk þess sérstakar
kröfur um ræktunaraðstöðu og
tækni. Ræktun þessa fjölbreytta
gróðurs er kennd á námsleið
um garð og skógarplöntufram
leiðslu á Garðyrkjuskóla LBHÍ á
Reykjum í Ölfusi. Þar starfa sér
fræðingar með áratuga reynslu af
framleiðslu og notkun þeirra.
Fjölbreytt og skemmtilegt nám
Á námsleiðinni Garð og
skógarplöntuframleiðsla eru
kennd grunnfög garðyrkjunnar,
til að mynda grasafræði, plöntu
lífeðlisfræði, almenn ylræktun
og jarðvegs og áburðarfræði, en
einnig sérfög í framleiðslu garð
og skógarplantna. Sérstaklega er
kennd plöntuþekking og fram
leiðsluferli hinna ýmsu tegunda.
Áherslur í námi á Reykjum
tengjast umhverfisvernd og sjálf
bærni og er þar m.a. stuðst við
gildi heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna og tekið mið af sér
stöðu Íslands varðandi gróður
far, verndun náttúrugæða og
möguleika í vali á hinum ýmsu
tegundum. Vistfræði er kynnt
og einnig markaðsfræði og
skipulag og stofnun garðyrkju
stöðva. Sérstakur áfangi um
ræktun ávaxtatrjáa er kenndur og
sömuleiðis torf og grjóthleðslur,
trjáklippingar og trjáfellingar.
Útskrifaðir nemar hafa fengið
góða innsýn í skógrækt, land
notkun, verndun lífríkis og garð
yrkju í sátt við umhverfið.
Starfsvettvangur víða í
samfélaginu
Námið á Reykjum er blanda bók
náms og verknáms. Bóknámið
skiptist í 4 annir en verknám
fer fram á viðurkenndum verk
námsstöðum. Starfsvettvangur
útskrifaðra nemenda er garð og
skógarplöntustöðvar, plöntu
ræktun, sala og ráðgjöf til við
skiptavina auk þess að aðstoða við
tilraunir og rannsóknir. Fjarnám
er í boði á þessari námsbraut. Þá
tekur námið að jafnaði 8 annir,
auk verknáms.
Útskrifaðir nemar eru eft
irsóttir sem verkstjórar og
ræktunarstjórar og starfa auk
plöntuframleiðslu við garðyrkju
störf hjá bæjar og sveitarfélög
um. Námið veitir góðan grunn að
framhaldsnámi erlendis. Einnig
eru möguleikar í stofnun nýrra
fyrirtækja í framleiðslu garð og
skógarplantna.
Kennslan hefst í ágústlok 2020
og er hægt er að sækja um nám á
heimasíðu Landbúnaðarháskóla
Íslands: lbhi.is. Kennslan fer fram
á garðyrkjuskóla LBHÍ á Reykjum
í Ölfusi. Umsóknarfrestur er til
15. júní.
Ingólfur Guðnason
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Framleiðsla garð- og skógarplantna:
Hagnýtt og áhugavert nám
Garðplöntur í gróðurhúsi.
Til að ná árangri í framleiðslu plantna þarf
sérþekkingu og framleiðslan gerir sérstakar
kröfur um ræktunaraðstöðu og tækni.
Starfsvettvangur útskrifaðra nemenda er garð- og skógarplöntustöðv-
ar, ræktun, sala og ráðgjöf til viðskiptavina auk þess að aðstoða við
tilraunir og rannsóknir.
Tafla 1: Fjósgerðir og mjaltatækni, þróun í fjölda á landsvísu sl. 10 ár
2009 2019 Breyting
Básafjós m. fötukerfum 10 3 -70%
Básafjós m. rörmjaltakerfum 373 182 -51%
Básafjós m. mjaltabásum 63 42 -33%
Lausagöngufjós án mjaltaþjóna 143 99 -31%
Lausagöngufjós m. mjaltaþjónum 95 216 127%
Annað 1 0
Samtals 685 542 -21%
1,6%
13,6%
22,6%
29,8%
34,8% 36,5%
38,7%
43,4%
52,0%
58,1%
98,4%
86,4%
77,4%
70,2%
65,2% 63,5%
61,3%
56,6%
48,0%
41,9%
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
80%
90%
100%
1994-1997 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017 2019
Lausagöngufjós, allar gerðir Básafjós, allar gerðir
Hlutfallsleg skipting fjósgerða 1994–2019.
Mjaltaþjónafjós algengasta
fjósgerðin á Íslandi