Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTABLA ÐIÐ i
íþróttir og útilíf
Málgagn (þróttasambands Islands
Ritstjórar:
Siguröur Magnússon og
Steinar J. Lúðvíksson
Skrifstofa ritstjórnar:
[þróttamiðstöðinni Laugardal
Útgefandi: Frjálst framtak hf.
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Briem
Aðstoðarframkvæmdastjóri:
Pétur J. Eiríksson
Auglýsingastjóri:
Erla Traustadóttir
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300, 82302
'Áskrifstargjald kr. 495 á mánuði,
innheimt tvisvar á ári kr. 2.970
Setning, umbrot, filmuvinna og prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar
Prentun á kápu: Prenttækni hf.
Bókband: Félagsbókbandið hf.
Litgreining kápu: Korpus hf.
Héraðssambönd innan (Sf:
Héraðssamband Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu
Héraðssamband Strandamanna
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga
Héraðssambandið Skarphéðinn
íþróttabandalag Akraness
íþróttabandalag Akureyrar
[þróttabandalag Hafnarfjarðar
fþróttabandalag (safjarðar
fþróttabandalag Keflavíkur
fþróttabandalag Ólafsfjarðar
fþróttabandalag Reykjavíkur
Iþróttabandalag Siglufjarðar
fþróttabandalag Suðurnesja
fþróttabandalag Vestmannaeyja
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands
Ungmennasamband A.-Húnvetninga
Ungmennasamband Borgarfjarðar
Ungmennasamband Dalamanna
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Kjalarnessþings
Ungmennasamband N.-Þingeyinga
Ungmennasamband Skagafjarðar
Ungmennasamband V.-Húnvetninga
Ungmennasamband V.-Skaftfellinga
Ungmennasambandið Úlfljótur
Sérsambönd innan (Sí:
Badmintonsamband fslands
Blaksamband fslands
Borðtennissamband fslands
Fimleikasamband fslands
Frjálsíþróttasamband fslands
Glímusamband fslands
Golfsamband fslands
Handknattleikssamband fslands
Júdósamband fslands
Knattspyrnusamband fslands
Körfuknattleikssamband fslands
Lyftingasamband fslands
Siglingasamband fslands
Skíðasamband fslands
Sundsamband fslands
Ritstjórnarspjall
Útivist — og ferðalög
Nú er kominn sá árstími sem jafnan er hvaö mest um að vera á íþrótta-
sviðinu hérlendis. Reyndar má segja með sanni, að íþróttalíf sé nú orðið
stöðugt árið um kring, að fjöldi ungra sem aldinna leggi stund á líkamsrækt
og íþróttir jafnt ísvartastaskammdeginu sem á sumrin, og kemur þar einkum
til að aðstaða til þess að stunda íþróttir innanhúss hefur víða batnað veru-
lega, og að áhugi á skíðaíþróttinni hefur einnig aukist stórlega.
En á sumrin gefast þó tækifæri til fjölþættari útivistar og hreyfingar en yfir
svörtustu vetrarmánuðina. Margir nota frístundir sem þá gefast til ferðalaga,
og er þá vitanlega ferðamátinn misjafn. Sumir kjósa aö aka um landið í
bifreiðum sínum og skoða það út um gluggann, aðrir fara í fjallgöngur,
stunda laxveiðar, bregða sér á sjóinn, stunda hestamennsku. Ógleymdir eru
svo þeir sem jafnan ferðast til framandi landa ár hvert.
íþróttablaðið hefur á undanförnum árum varið töluverðu rými til þess að
kynna útilíf og ferðalög. Nú ætla ef til vill sumir að siíkt heyri ekki beint
vettvangi blaðsins til, en því er til að svara að íþróttahreyfingin á íslandi hefur
um langt skeið ekki aðeins unnið að málefnum keþþnisíþróttanna og þeirra
er þjálfa reglulega, heldur hefur það einnig verið veigamikill þáttur í starfinu
að efla hverskonar útilíf landsmanna, hvetja til þess og styrkja það. Á þessu
sviði hefur orðið umtalsverð framför og áhugaaukning á undanförnum árum,
en eigi að síður erum við í þessum efnum á eftir nágrönnum okkar á Norð-
urlöndunum, þar sem útivera og hreyfing er orðin að sjálfsögðum þætti í
daglegu lífi.
Aðstæður eru víðast þannig á fslandi, að ekki þarf að fara langt til þess að
komast í snertingu við náttúruna. Víða eru skemmtilegar gönguleiðir í næsta
nágrenni, víðast er unnt að finna sæmilega sléttar og greiðfærar leiöir, ef
viðkomandi vill bregða á leik og skokka. Þarna er oftast aðeins spurning um
viljann, og það að koma sér af stað, sem reynist mörgum erfiðasti þröskuld-
urinn. Þeir sem á annað borð hafa farið að stunda útilíf hafa fljótt komist að
raun um þann unað sem það veitir að hreyfa sig og þjálfa líkama sinn.
Á undanförnum árum hefur einnig orðið mikil breyting til batnaðar fyrir þá
sem stunda ferðalög innanlands. Segja má að þjónustunet sé nú komið upp
umhverfis landið, og víðast er sú þjónusta við ferðamenn hin ágætasta. Gildir
þar einu hvort viðkomandi búa á gistihúsum eða hafa með sér tjöld og
viðleguútbúnað. Einu má ferðamaðurinn þó aldrei gleyma: Nauðsynlegt er
að vera tillitssamur á ferðalögum, ekki aðeins við samferðamenn sína, og þá
sem eru heimsóttir, heldur þarf einnig að sýna landinu tillitssemi og um-
gangast það með varúð. íþróttablaðið vill nota þetta tækifæri til þess að
undirstrika enn einu sinni þá hvatningu fólks að nota þær stundir sem gefast
til útivistar í sumar, og þá einnig hvetja þá er ferðast um landið til þess aö
ganga snyrtilega um og spilla í engu þeirri fegurð sem íslenzk náttúra hefur
uþp á að bjóða.
3