Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 64
Hververðurarftak
Skotinn Dalglish talinn líklegur I
Argentina'78
Þótt heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu sé fyrst og fremst barátta milli
landsliða, fer ekki hjá því að þar verða
til stjörnur — leikmenn sem upp úr
standa, og mikið er talað um, ekki að-
eins á meðan á keppninni stendur,
heldur og þegar henni er lokið. 1958
voru þeir Pele og Fontaine frá Frakk-
landi stjörnur keppninnar, Ungverjinn
Albert og sovéski markvörðurinn Jash-
in voru mest umtöluðu leikmenn
keppninnar 1962. í Englandi 1966 var
það portúgalska perlan Eusebio sem
vann hug og hjörtu knattspyrnuáhorf-
enda, í Mexikó 1970 voru Gerd Múller,
og Pele þeir sem mest athygli beindist
að og í keppninni 1974 voru það Johan
konungur Cruyff, og Franz keisari
Beckenbauer er mesta aðdáun vöktu.
En hver verður konungur eða keisari
keppninnar í Argentínu?
Um það er erfitt að spá á þessu stigi
málsins, margir eru kallaðir, en fáir
verða útvaldir. Nú verða hvorki Beck-
enbauer né Cruyff meðal keppenda,
þótt báðir séu reyndar í fullu fjöri enn.
Má vera að það verði markakóngurinn
frá 1974, Lato frá Póllandi, sem öðlast
nú hylli almennings, — ef hann verður
þá með í keppninni, já, eða Neeskens
frá Hollandi, hinn frábæri leikmaður
Real Madrid, sem stóð í skugga nafna
síns Cruyffs í keppninni í Þýzkalandi.
í skozka liðinu sem keppir í Argen-
tínu er einnig leikmaður sem margir
telja að muni bæta virðulegum titli við
nafn sitt í keppninni í Argentínu. Sá er
Kenny Dalglish, fyrrum fyrirliði skozka
meistaraliðsins Celtic, nú leikmaður
með enska bikarmeistaraliðinu Liver-
pool. Að allra mati er Dalglish frábær
knattspyrnumaður, og margir sem
leikið hafa með honum og móti, eru
sammála um að hann sé nú kominn í
raðir allra beztu knattspyrnumanna
heims og spá því að hann muni
blómstra í keppninni í Argentínu.
Átti að verða fyrirliði Rangers
Kenny Dalglish er borinn og barn-
fæddur í Glasgow og var heimili hans
svo skammt frá Ibrox, heimavelli
Glasgow Rangers, að ómur af hrópum
áhorfenda bárust inn um stofuglugg-
ann á laugardögum. Þegar það sýndi sig
að Dalglish hafði ómældan áhuga á
knattspyrnu og mikla hæfileika tók
fjölskyldu hans að dreyma um að einn
góðan veðurdag yrði hann fyrirliði
Rangers og léki á Ibrox. Og fyrirliði var
Dalglish, ekki hjá Rangers heldur hjá
aðalandstæðingi þess liðs Glasgow
Celtic — liðinu sem Jóhann Eðvaldsson
leikur með. Tók Dalglish við fyrirliða-
stöðunni af Billy McNeil og hélt henni,
allt til þess að Celtic seldi þennan frá-
bæra leikmann sinn til Liverpool.
Hátt metinn
Kaup Liverpool á Dalglish komu
nokkuð á óvart í fyrra þegar þau voru
kunngerð. Forráðamenn Celtic höfðu
marglýst því yfir að hann væri ekki til
sölu, hvað svo sem væri í boði, enda
hafði hann verið lykilmaður Celtic—
liðsins sem hreppti bæði bikarmeist-
aratitilinn og Skotlandsmeistaratitilinn
1977. En Bob Paisley, þjálfari og fram-
kvæmdastjóri Liverpool, er maður sem
jafnan lætur ekki sitt laust, hafi hann á
annað borð áhuga á að halda. Hann
gerði Celtic einfaldlega tilboð sem fé-
lagið gat ekki hafnað. 440.000 pund
greiddi hann fyrir Dalglish, og hafði vel
efni á því, þar sem hann hafði þá nýlega
fengið 500.000 punda greiðslu frá
þýzka félaginu Hamburger Sport-
Verein sem keypti Kevin Keegan af
Liverpool.
Fljótt tekinn í hópinn
Sagt er að Kenny Dalglish hafi kvið-
ið fyrir því að fara til Liverpool, enda
erfitt fyrir aðkomumann að komast inn
í það sérstæða andrúmsloft sem er í
kringum þetta lið. En Kenny var boð-
inn hjartanlega velkominn strax og
hann lét sjá sig á Anfield Road, heima-
velli Liverpool, og hann var ekki búinn
að vera í borginni nema tæpa viku,
þegar hann var beðinn að vera guðfaðir
lítillar telpu sem aðdáandi Liverpool—
liðsins átti. Má geta þess að telpa þessi
fékk nafnið Kevin.
Kenny Dalglish var mjög heppinn í
fyrstu leikjum sínum með Liverpool er
keppnistímabilið hófst í fyrra. Hann
var þá í toppformi og skoraði falleg
mörk í hverjum leiknum af öðrum, og
var þar með strax tekinn í guðatölu
hinna tryggu aðdáenda Liverpool-liðs-
ins, og sagt að hann hefði jafnvel enn
meiri hæfileika en Kevin Keegan, og
þótti þá fast að orði kveðið.
64