Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 5
i Maöinu
Ferðalög — útilíf:
Nú er framundan sá árstími sem flestir Islendingar
nota til útilífs og feröalaga. Hluti íþróttablaðsins er
helgaður þessum þáttum og er þar m.a. fjallað um
þjónustu við ferðamenn á nokkrum stöðum, kynntir
skemmtilegir útivistarstaðir og fjallað um náttúru-
vernd og umgengni ferðamanna, að því ógleymdu að
brugðið er upp svipmynd af þeirri íþróttagrein sem á
stöðugt vaxandi vinsældum að fagna hérlendis —
laxveiðinni.
Islandsmótið:
íslandsmótið í knattspyrnu er umfangsmesta íþrótta-
mót sem haldið er hérlendis árlega. l’þróttablaðið
fjallar um mótið að þessu sinni og þá einkum stöðu og
möguleika liðanna sem leika í fyrstu deild, og segja
þar þrír kunnir knattspyrnukappar: Guðmundur Þor-
björnsson, Diðrik Ólafsson og Friðfinnur Finnboga-
son þar álit sitt.
Atvinnumennska:
Er mögulegt að koma á atvinnuknattspyrnu hérlend-
is? Þessi spurning er reyndar ekki ný, en mönnum
verður það æ Ijósara að sundur dregur með okkur og
öðrum. — íslendingar eru að verða síðustu sönnu
áhugamennirnir í knattspyrnuíþróttinni. Fjallað er um
mál þetta í blaðinu, m.a. með viðtali við Matthías
Hallgrímsson sem lék um tíma með atvinnumannaliði í
Svíþjóð, með viðtali við Þorstein Friðþjófsson, þjálf-
ara og Pétur Sveinbjarnarson, sem er formaður
knattspyrnudeildar Vals.
ingi Björn:
Hinn kunni knattspyrnumaður Ingi Björn Albertsson
ritar grein um menn og málefni knattspyrnuíþróttar-
innar í blaðinu og kemur það víða við. Fjallar hann
m.a. um 1. deildar keppnina í sumar, um íslenzka
áhorfendur og drengjaknattspyrnuna.
Friðrik Þór:
Friðrik Þór Óskarsson hefur um árabil verið fremstur
íslendinga í langstökki og þrístökki og segir hann í
viðtali við blaðið að í sumar stefni hann að því að ná
langstökksmetinu, sem nú er í eigu Vilhjálms Einars-
sonar. Einnig fjallar Friðrik í viðtalinu um aðstöðu og
þjálfun frjálsíþróttamanna.
HM í Argentínu:
Að Olympíuleikunum undanskildum er heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu mesta íþróttahátíð sem
haldin er. Nú er úrslitakeppnin að hefjast í Argentínu
og þangað mun athygli knattspyrnuunnenda beinast
næstu vikurnar. Það er því við hæfi að [þróttablaðið
fjalli um þetta mikla knattspyrnumót, kynni það sem
áður hefur gerst á þessum vettvangi, og fjalli um
nokkra þá sem álitið er aö verði stjörnur keppninnar
að þessu sinni.
Enska knattspyrnan:
Enska knattspyrnan á jafnan miklum vinsældum að
fagna hérlendis. Þar hafa nú knattspyrnumennirnir
haldið í sumarleyfi, en íþróttablaðið fjallar um þau
tvö lið er unnu mestu sigrana í ensku knattspyrnunni
á nýafstöðnu keppnistímabili. Notthingham Forest er
sigraði í deildarkeppninni og deildarbikarkeppninni
og Ipswich Town er varð enskur bikarmeistari.