Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 67
Gatti mjög sérstæður og skemmtileg-
ur persónuleiki. Hann er með hár
niður á herðar, og hefur auk þess
heitið því að raka sig ekki fyrr en eftir
keppnina í sumar. Gatti var í liði
Argentínu sem tók þátt í heimsmeist-
arakeppninni í Englandi 1966, en var
þar varamarkvörður og fékk lítið að
sýna sig. Eftir þá keppni gerðist hann
liðsmaður argentínska liðsins At-
lanta, en var fljótlega seldur til Boca
Juniors og hefur hann leikið með því
liði síðan.
Dominique Rocheteau (Frakk-
landi)
Dominique Rocheteau, 23 ára
tengiliður í þekktasta knattspyrnuliði
Frakklands, Saint Etienne verður
vafalaust í sviðsljósinu í lokakeppn-
inni í Argentínu, og er það talinn
mikill styrkur fyrir franska liðið að
hann skuli geta farið í ferð þessa. Um
tíma leit illa út, þar sem Rocheteau
hefur átt við þrálát meiðsli að stríða
og verið meira og minna frá, í hálft
annað ár. Hann átti drýgstan þátt í því
að franska liðið fékk farseðla til
Argentínu, þar sem hann sýndi sann-
kallaðan stjömuleik er Frakkar
mættu Búlgörum í undankeppninni.
Þann leik þurfti Frakkland að vinna
til þess að tryggja sig áfram. Strax í
upphafi leiksins skoraði Rocheteau
fallegt mark, og síðar í leiknum lagði
hann tvö önnur upp. Frakkarnir segja
reyndar að pilturinn sé þeirra George
Best, þar sem hann hefur átt erfitt
með að beygja sig undir þann aga sem
knattspyrnunni fylgir, en nýlega sagði
Rocheteau í blaðaviðtali, að nú væri
hann búinn að hlaupa af sér hornin,
og knattspyrnan ætti framvegis hug
hans allan. Ekki mun af veita í
Argentínu þar sem Frakkarnir leika í
erfiðasta riðlinum.
Hans Krankl (Austurríki)
Þótt Hans Krankl sé aðeins 24 ára
að aldri hefur hann vakið mikla at-
hygli í landsleikjum sínum með
Austurríki og þá ekki sízt fyrir það
hversu mjög hann er markheppinn.
Þegar Austurríki mætti Möltu i und-
ankeppninni nú, skoraði hann t.d. sex
af níu mörkum liðsins, og í 19 fyrstu
landsleikjum sínum skoraði hann eigi
færri en 17 mörk. Árið 1974 skoraði
hann 36 mörk á keppnistímabilinu og
var því mjög nærri þvi að hljóta hin
eftirsóknarverðu verðlaun franska
knattspyrnutímaritsins „France
Football“ — gullknöttinn. Auk þess
að vera frægur markaskorari er
Krankl einnig þekktur fyrir mikið
skap og fékk hann t.d. að sjá rauða
spjaldið í leik Austurríkis og Austur-
Þýzkalands í undankeppninni, er
hann gerði sér það ekki að góðu að
dómarinn dæmdi mark sem hann
skoraði ógilt vegna rangstöðu. Hans
Krankl hefur leikið með Vínarliðinu
Rapid frá því að hann gerðist at-
vinnumaður í knattspyrnu, og ekki
litið við girnilegum atvinnutilboðum
sem honum hafa borist frá Hollandi
og Þýzkalandi.
Hugo Gatti (Argentínu)
Aðalmarkvörður argentínska
landsliðsins í keppninni verður vafa-
laust hinn 33 ára Hugo Gatti, sem um
árabil hefur óumdeilanlega verið
bezti markvörður í Argentínu, og átti
drýgstan þátt í því að lið hans Boca
Juniors sigraði í meistaraliðakeppni
Suður-Ameríku í ár, en þá varði hann
vítaspyrnu í úrslitaleiknum við
Cruzeiro frá Brasilíu. Auk þess að
vera frábær knattspyrnumaður þykir
Kazimierz Deyna (Pólland)
Kazimierz Deyna verður sennilega
fyrirliði pólska landsliðsins í keppn-
inni í Argentínu, en þar hefur það
bronsverðlaun að verja. Deyna sem
nú er 30 ára að aldri, vakti fyrst veru-
lega athygli á sér á Olympíuleikunum
í Múnchen 1972, en þá varð hann
markhæsti maður pólska liðsins sem
vann Olympíugullið. Tveimur árum
síðar var hann aðalmaðurinn í pólska
liðinu sem vann sigur yfir Brasilíu í
keppninni um þriðja sæti heims-
meistarakeppninnar, á sama velli og
Olympíugullið hafði unnist. Eftir
keppnina sýndi Deyna mikinn áhuga
á því að gerast atvinnumaður í Vest-
ur-Evrópu og fékk góð tilboð bæði frá
Bayern Múnche og AZ Alkmaar.
Pólverjar banna hins vegar knatt-
spymumönnum sínum að leika með
erlendum liðum fyrr en þeir eru
orðnir þrítugir og þess vegna varð
Deyna að gera sér það að góðu að
sitja heima. Hann ætlaði sér þá að
hætta í knattspyrnunni, en var press-
aður til þess að halda áfram fram yfir
heimsmeistarakeppnina í sumar, og
úr því sem komið er segist hann stefna
að því að eyða síðustu knattspymu-
árum sínum sem atvinnumaður í
Vestur-Evrópu — vilji sig einhver eftir
keppnina í Argentínu.