Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 22
íslandsmótið
1978
Margir
kallaðir
en einn
verður
útvalinn
^uvmTt
íslandsmótið í knattspyrnu — um-
fangsmesta og fjölmennasta íþróttamót
sem haldið er árlega hérlendis er nú
komið á fulla ferð. Næstu þrjá mánuði
mun fara fram mikil og sennilega
spennandi keppni á mörgum vígstöðv-
um um þá íslandsmeistaratitla sem í
boði eru í hinum ýmsu deildum og
aldursflokkum. Ungir og gamlir taka
þátt í þeirri baráttu, bæði innan vallar
og utan vallar, og sjálfsagt verður mis-
munandi verðlaunafengur hjá hinum
ýmsu félögum og íþróttabandalögum,
sem taka þátt í keppninni. Stundir gleði
og sorgar munu renna upp. Óvænt úr-
slit munu setja svip sinn á keppnina, —
annað fer eftir bókinni, eins og það er
kallað á íþróttamáli.
Krydd knattspyrnuvertíðarinnar,
eins og alltaf áður verða svo þeir fimm
knattspyrnulandsleikir sem íslendingar
munu leika í sumar, en þá loks er fé-
lagarígurinn og félagametnaðurinn
upphafinn, og öll þjóðin stendur með
leikmönnunum, sama úr hvaða liði eða
félagi þeir koma.
íslandsmótið í knattspymu á sér
orðið tæplega sjötíu ára sögu. Mikið
vatn hefur runnið til sjávar síðan frum-
herjar knattspyrnunnar hérlendis háðu
leiki sína, gjaman klæddir í hnébuxur
og hvítar skyrtur með bindi, að
ógleymdum derhúfunum, sem þóttu
ómissandi, og sennilega á sú knatt-
spyrna sem nú er leikin á íþróttavöll-
unum fátt skylt við þessa knattspyrnu,
nema nafnið. Annars er það svo, að þeir
sem voru þátttakendur í baráttu fyrri
ára, en hafa nú lagt skóna á hilluna, eru
flestir sammála um að knattspyrnan
hafi verið miklu betri, þegar þeir voru
og hétu — þeir yngri segja hins vegar að
fjarlægðin geri fjöllin blá, og mennina
mikla.“
Eins og ævinlega mun mest athygli
beinast í sumar að keppni þeirra beztu.
Að 1. deildar keppninni, en þar eigast
nú við tíu lið sem keppa um meistara-
titilinn og hinn virðulega bikar sem
honum fylgir. Handhafar titils og bik-
ars eru nú Akurnesingar, sem hafa allt
frá því að þeir komu fyrst fram á sjón-
arsviðið í fslandsmótinu sett mjög svo
mikinn svip á það. Önnur lið sem leika í
1. deildinni eru Reykjavíkurfélögin
Fram, Valur, Víkingur og Þróttur, og
síðan Keflvíkingar, FH-ingar, Vest-
mannaeyingar og KA frá Akureyri sem
leikur nú í fyrsta sinn í 1. deild í fimm-
tíu ára sögu félagsins. Öll hafa liðin sem
leika nú í 1. deild, að einu undanskyldu
— Valsmönnum, orðið að þola það á
ferli sínum að leika einhvem tímann í 2.
deild. í fyrra féll það lið niður í 2. deild
sem lengst hafði þraukað, þegar Vals-
mönnum er sleppt, þ.e. KR-ingar, en
Þróttarar eru það lið sem oftast hefur
farið milli deilda, síðan deildaskipting-
in var tekin upp.
En hvaða lið verður íslandsmeistari í
ár? Hvaða lið falla? Hvemig fer barátt-
an? Þessar spurningar brenna á vörum
knattspymuaðdáenda um allt land,
eins og jafnan áður í upphafi keppnis-
tímabils. Og þeim verður ekki svarað
fyrr en í haust. Vera má þó, að líkumar
taki að skýrast löngu áður en mótinu
lýkur, — það er ekki óvanalegt að á-
kveðin lið taka snemma móts hlutverk
forystusauðsins og halda því mótið út.
Þó virðast flestir knattspymuaðdáend-
22