Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 69
Argentina'78
Rob Rensenbrink (Hollandi)
Það kemur sennilega í hlut hins 29
ára Rob Rensenbrinks að taka upp
merki Johans Cruyff í heimsmeist-
arakeppninni. Hann hefur lengi verið
í fremstu röð knattspymumanna í
Evrópu, en varð fyrst heimsfrægur
eftir þátttöku sína í heimsmeistara-
keppninni 1974. Þar átti hann hvem
leikinn öðrum betri, fram til úrslita-
leiksins, en þá varð hann fyrir
meiðslum í fyrri hálfleik, og var skipt
útaf snemma í seinni hálfleiknum.
Rensenbrink hefur leikið með belg-
ískum liðum allt frá árinu 1968, fyrst
með FC Brúgge, en síðan með And-
erlecht, þar sem hann hefur náð mjög
góðum árangri. Hann skoraði t.d. tvö
mörk er Anderlecht sigraði í úrslita-
leik Evrópubikarkeppni bikarhafa
árið 1976 og sama ár skoraði hann
þrennu í landsleik Hollendinga við
Belgíumenn í Evrópukeppni lands-
liða.
Sodoq Attouga ((Túnis)
Fyrirliði Túnis í lokakeppninni
verður markvörður liðsins, Sadoq
Attouga. Hann er nú 32 ára að aldri
og hefur verið fastur maður í landsliði
Túnis í röskan áratug. Túnislmar sem
telja alla úrvalsleiki með landsleikj-
um segja Attouga eiga 130 landsleiki
að baki, en sú tala er nokkuð langt frá
því að standast. í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar að þessu
sinni, var það fyrst og fremst
frammistaða hans sem færði Túnis
farseðlana til Argentínu. Hann átti
hvern leikinn öðrum betri, og dóm-
arar frá Evrópu sem dæmdu flesta
leiki Túnis í undankeppninni, sögðu
að hann væri eini knattspymumað-
urinn sem þeir hefðu séð í þeirri
keppni, sem stæði fyllilega jafnfætis
knattspyrnumönnum í Evrópu. Vafa-
laust verður róðurinn erfiður fyrir
Attouga og Co. í keppninni nú, —
hann fær nóg að gera i markinu, en
stendur vafalaust fyrir sínu.
Berti Vogts (V-Þýzkalandi)
Fyrirliði Vestur-Þjóðverja í keppn-
inni í Argentínu verður hinn 31 árs
gamli leikmaður með Borussia
Mönchengladbach, Berti Vogts.
Hlutverk hans í keppninni verður
engan veginn auðvelt, þar sem miklar
kröfur verða gerðar til Þjóðverjanna
heimafyrir, að þeir verji titil sinn.
Vogts var í liði Þýzkalands er varð
heimsmeistari 1974 og fékk það erfiða
hlutverk í úrslitaleiknum að gæta hins
fræga Johans Cruyff, hvað hann gerði
með miklum ágætum, enda þykir
hann sérfræðingur í að stöðva hættu-
lega mótherja. Honum brást þó eftir-
minnilega bogalistin í þeim efnum er
hann átti að gæta Englendingsins
Kevins Keegan í úrslitaleik Borussia
og Liverpool í Evrópubikarkeppninni
í fyrra, og var sagt eftir þann leik, að
Vogts væri búinn að lifa sitt fegursta í
knattspymunni. f vetur hefur hann
afsannað það rækilega, og var fyrsti
maður sem Helmut Schön valdi í lið
það sem verja á titilinn í keppninni
núna.
Pirri (Spánn)
Fullu nafni heitir hann Jose
Martinez Sanchez og allt frá árinu
1965 hefur hann verið í fremstu röð
knattspyrnumanna á Spáni. Hann
hefur átt mikinn þátt í að gera liðið
sem hann leikur með, Real Madrid,
að því stórveldi sem það hefur verið á
undanförnum árum, og drjúgt lið
hefur hann einnig lagt spánska
landsliðinu. Það sætti reyndar nokk-
urri gagnrýni á Spáni, að Pirri skyldi
valinn til Argentínuferðarinnar, þar
sem hann er sennilega búinn að lifa
sitt fegursta sem knattspymumaður.
Þjálfari spánska liðsins svaraði þeirri
gagnrýni hins vegar með því að hann
tæki Pirri með sér í ferð þessa, hvort
sem hann gæti leikið knattspyrnu eða
ekki. Nærvera hans væri liðinu nauð-
synlegur styrkur, og hann gæti leyst
öll þau vandamál sem kynnu að koma
uppá. Sjálfur segir Pirri að keppnin i
Argentínu sé sér ekkert takmark.
Hann ætli nú að leggja skóna á hill-
una og snúa sér að námi í læknisfræði,
en um það hafi hann alltaf dreymt.
Willie Johnstone (Skotlandi)
Einn þeirra leikmanna sem Skotar
setja mikið traust á í keppninni í
Argentínu er Willie Johnstone, leik-
maður með enska liðinu West Brom-
69