Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 17
Útilíf — ferðalög
Frá Húsavík er stutt til
fagurra og sérstæðra staða
Hótel Húsavík er eitt glæsilegasta
hótelið á landsbyggðinni og hefur
rekstur þess verið í örum vexti undan-
farin ár frá því að Einar Olgeirsson sá
kunni hótelmaður tók við stjóminni.
Hótelið er frábærlega í sveit sett til
skoðunarferða um stórbrotna náttúru
N- og NA-lands, Mývatns og Kröflu-
svæðið, Aðaldal, Reykjadal og Laxár-
dal, Hljóðakletta, Ásbyrgi, Askja,
Dettifoss, Tjömes, svo nokkur dæmi séu
nefnd.
Hótelið stendur í hjarta bæjar, sem er
í örum vexti og býður upp á margþætta
möguleika til íþróttaiðkana og útilífs.
Þar er að finna fullkomna aðstöðu til
ráðstefnuhalds. 34 tveggjamanna her-
bergi, flest með baði eru í hótelinu auk
þess, sem hótelið sér um að útvega
ferðalöngum gistingu í húsum í
grenndinni. Frá Húsavík er hægt að
komast í sjóstangaveiði og skemmti-
siglingar. Þar er 9 holu golfvöllur, mjög
skemmtilegur að sögn þeirra, sem hann
hafa leikið. Góð sundlaug með sauna er
í bænum, íþróttavellir og í döfinni er að
setja á stofn hestaleigu. Þá er rekin
bílaleiga frá hótelinu.
Greiðar samgöngur í lofti eru til
Húsavíkur og flýgur Flugfélag íslands
þangað 9 ferðir í viku hverri, auk þess,
sem áætlunarbifreiðir ganga daglega
milli Akureyrar og Húsavíkur. í sumar
mun ferðafólki, sem kemur til Húsa-
víkur gefast kostur á að fara með áætl-
unarbil til Mývatnssveitar og þaðan til
Akureyrar og einnig komast sömu leið
frá Akureyri.
Fyrir þá, sem hafa áhuga á stang-
veiðiíþróttinni er um auðugan garð að
gresja. Margar af beztu laxveiði og sil-
ungsveiðiám landsins eru steinssnar í
burtu og má þar sérstaklega nefna urr-
iðasvæðið í Laxá í Laxárdal, þar sem
hægt er að fá keypt veiðileyfi fremur
lágu verði og takast á við Laxárurriða
3-10 pund. Fram í Laxárdal er nýtt og
glæsilegt veiðihús með 12 tveggja
manna herbergjum, þar sem fólk getur
fengið ódýra gistingu og eldað sjálft
ofan í sig í fögru umhverfi. Einnig eru í
grenndinni mörg silungsvötn.
Fyrir þá, sem halda vilja kyrru fyrir á
sama stað eru opnir ótal möguleikar til
gönguferða í nágrenni Húsavíkur og
þaðan er einnig hægt að komast akandi
í Flateyjardal.
I stuttu samtali við íþróttablaðið
sagði Einar Olgeirsson að útlitið fyrir
sumarið væri mjög gott og reksturinn í
vetur gengið vel og margir notfært sér
hagstætt tilboð hótelsins til helgarferða
á skíði á Húsavík, en þar væru starf-
ræktar tvær skíðalyftur, sem hægt væri
að renna sér úr niður á hótelhlaðið.
Einar sagði að fram til 15. júní og síðan
aftur 1. september væri boðið upp á
sérlega hagstæð kjör á tveggja daga
ferðum, þar sem flugfar, gisting og
uppihald væri innifalið og hefði þetta
gefið mjög góða raun.
17