Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 58
Argentina'78
stakar ráðstafanir til þess að halda
áhorfendum í skefjum, en þegar Svíar
skoruðu mark fjórum mínútum eftir að
leikurinn hófst ætlaði samt allt um koll
að keyra. En gleði Svíanna var fljót að
breytast. Brasilíumennirnir sýndu í leik
þessum svo ekki varð um villzt hverjir
voru beztir. Staðan í hálfleik var 2—1,
þeim í vil, en í seinni hálfleiknum bætti
svo snillingurinn Pele tveimur mörkum
við og Sagalo því þriðja. Að leikslokum
var brasilísku snillingunum fagnað
innilega og urðu þeir að hlaupa tvo
heiðurshringi, eftir að hafa tekið við
verðlaunum sínum, fyrri hringinn með
eigin fána, en seinni hringinn með
sænska fánann. „Samba, Samba,“
hrópuðu svíamir á áhorfendapöllun-
um.
ÁTTA-LIÐA ÚRSLIT:
Frakkland — Norður-írland 4-0 (1-0)
Þýzkaland — Júgóslavía 1-0 (1-0)
Svíþjóð — Sovétríkin 2-0 (1-0)
Brasilía — Wales 1-0 (0-0)
UND ANÚRSLIT:
Brasilía — Frakkland 5-2 (2-1)
Svíþjóð — Þýzkaland 3-1 (1-1)
ÚRSLIT:
Um3.sætið: Frakkl,—Þýzkal. 6-3 (0-0)
Um 1. sætið: Brasilía—Svíþjóð
5-2 (2-1)
u
Chile 1962
| pphaflega átti lokakeppnin
1962 að fara fram í Argen-
tínu, en forráðamenn knatt-
spymusambandsins í Chile sóttu það
fast að fá keppnina, og að lokum lét
FIFA undan óskum þeirra. Hófust
Chile-búar þá strax handa og byggðu á
skömmum tíma glæsilegan leikvang í
Santiago, þar sem aðalleikir keppninn-
ar fóru svo fram.
Sjaldan hafa menn verið eins sam-
mála er þeir hafa spáð um líklegan sig-
urvegara í heimsmeistarakeppninni og
HM í knattspyrnu
áður en slagurinn í Chile hófst. Brasi-
líumenn tefldu fram nær óbreyttu liði
frá keppninni í Svíþjóð. Þeir voru með
tvo nýja bakverði, það var allt og sumt.
Hetjur keppninnar í Svíþjóð, Garr-
incha, Zagalo, Didi og Pele voru nú á
hátindi frægðar sinnar, og ólíklegt að
nokkur gæti staðizt þeim snúning.
Auk Brasilíumanna og Chile-búa
tóku eftirtalin lið þátt í lokakeppninni í
Chile sem stóð frá 30. maí til 17. júní
1962: Sovétríkin, Júgóslavía, Ung-
verjaland, Kolombía, Þýzkaland, Italía,
Sviss, Brasilía, Tékkóslóvakía, Mexikó,
Spánn, Uruguay, Argentína og Búl-
garía.
Þegar á hólminn var komið kom
fljótlega í ljós að lið Brasilíumanna
myndi tæpast hafa þá yfirburði sem
búizt hafði verið við. Þeir sigruðu
Mexikana 2—0 í fyrsta leik sínum, en
máttu svo teljast heppnir að ná jafntefli
í næsta leik sem var við Tékka. í þeim
leik varð Pele fyrir það alvarlegum
meiðslum að hann gat ekki tekið þátt í
fleiri leikjum í keppninni, og virtist
fjarvera hans hafa mikil áhrif á brasi-
líska liðið, sem lækkaði flugið og varð
að breyta leikaðferð sinni. Það sigraði
þó í sínum riðli og mætti síðan Eng-
lendingum í átta-liða úrslitunum. Fyrir
þann leik var mikill hugur í Englend-
ingum, sem töldu að nú loksins væri
þeirra tími kominn. En annað kom svo í
ljós — þeir urðu enn að bíða. Brasilíu-
mennirnir með Garrincha í broddi
Frakkinn Just Fontaine. t úrslitakeppninni
1958 skoraði hann 13 mörk og hefur það met
enn ekki verið slegið.
fylkingar sigruðu 3—1 og voru þar með
komnir í undanúrslitin, þar sem þeir
sigruðu C’nile. í átta-liða úrslitunum
voru Ungverjar, sem áttu þarna geysi-
lega gott lið, einnig slegnir út. Þeir áttu
áttatíu af níutíu mínútum í leik sínum
við Tékka. Skot þeirra höfnuðu ýmist í
þverslá eða stöngum, en aldrei í mark-
inu. Hins vegar bar ein af sárafáum
sóknum Tékkanna árangur og þeir
gengu með sigur af hólmi, 1—0.
Úrslitaleikurinn milli Brasilíumanna
og Tékka þótti heldur bragðdaufur, en
þar fóru leikar svo að Brasilía sigraði
3—1 og hélt þar með heimsmeistaratitl-
inum, þó ekki með sama glæsibrag og
þeir höfðu unnið til hans fjórum árum
áður í Svíþjóð.
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT:
Júgóslavía — Þýzkaland 1-0 (0-0)
Brasilía — England 3—1 (1—1)
Chile — Sovétríkin 2-1 (2-1)
Tékkóslóvakía — Ungverjal. 1-0 (1-0)
UNDANÚRSLIT:
Brasilía — Chile 4-2 (2-1)
Tékkóslóvakía — Júgóslavía 3-1 (0-0)
ÚRSLIT:
Um 3. sætið: Chile — Júgóslavía
1-0 (0-0)
Um 1. sætið: Brasilía—Tékkósl.
3-1 (1-1)
England 1966
egar Alf Ramsey tók við stjóm
^enska landsliðsins af Walter
Winterbottom, lýsti hann því
yfir að hann myndi gera liðið að
heimsmeisturum 1966. Og hann stóð
við orð sín. Eftir að Englendingar höfðu
sigrað Þjóðverja í úrslitaleik keppninn-
ar sagði Nobby Stiles, einn af leik-
mönnum enska liðsins: „Þetta er þér að
þakka Alf. Við hefðum ekkert getað án
þín.“
Sennilega hefur aldrei verið önnur
eins stemmning kringum úrslitakeppni
heimsmeistarakeppninnar og var í
Englandi árið 1966. Nú höfðu fjöl-
miðlamir meira að segja en áður, og
höfðu gert marga knattspyrnumenn að
stjömum, og þegar þær nú leiddu sam-
an hesta sína, var sú spuming áleitin
hver væri beztur: Var það Jachin sem
enn lék í marki Sovétmanna? Var það
Uwe Seeler? Var það ungi maðurinn í
58