Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 27
titilsins „Mesti íþróttabær landsins“, og
að FH eigi ótrúlega dygga stuðnings-
menn þegar handknattleikslið félagsins
er að keppa. Má vera að Hafnfirðingar
hafi enn ekki beint áhuga sínum að
knattspymunni, eða þá að áhangendur
félagsins uni því illa að það sé ekki í
allra fremstu röð, eins og það er búið að
vera lengi í handknattleiknum.
Fram
Framliðið átti í vök að verjast í mót-
inu í fyrra, og var lengi í bullandi fall-
hættu. Nú hafa Framarar endurheimt
þann þjálfara sinn sem hvað mestum
árangri hefur jafnan náð með liðið,
Guðmund Jónsson. Guðmundur hefur
margsýnt hversu klókur og góður
þjálfari hann er, og hversu mikill
meistari hann er að skapa lið úr ein-
staklingum sem ekki þykja neitt sér-
stakir. Svo verður örugglega einnig í
sumar. Undirritaður spáir þvi að fram-
an af sumri muni Fram ekki vegna sér-
staklega vel, en sækja sig síðan þegar á
mótið líður, og Guðmundur fer að ná
betri tökum á liðinu. Framarar blanda
sér fráleitt í baráttuna á toppnum í
sumar, en þeir verða skeinuhættir
hvaða liði sem er, og ættu að geta forð-
ast fallið, verði liðið ekki fyrir óhöpp-
um, en einhvern veginn er það þannig
hjá Fram, að liðið hefur tæpast yfir
jafnmiklu mannvali ungra manna að
ráða og sum önnur félög.
Þróttur
Þróttarar hafa stundum verið kallað-
ir „jó-jó“-liðið vegna ferðalaga sinna
milli 1. og 2. deildar. Nú er liðið að
stofni til skipað mjög ungum og bráð-
efnilegum leikmönnum. Þá skortir að
visu reynslu, en þeir hafa annað í stað-
inn — mikinn baráttukjark og ákveðni.
Liðið kann að fleyta sér nokkuð langt á
slíku, a.m.k. meðan vel gengur. Takist
Þróttarliðinu að standa sig vel á fyrri
helmingi mótsins og hala inn stig, er alls
ekki fráleitt að það geti orðið um mið-
vik 1. deildarinnar þegar upp er staðið.
Þá væri líka björninn unninn fyrir fé-
lagið. Ferðalögin milli deilda hafa tví-
mælalaust niðurdrepandi áhrif á leik-
menn og félagslegt starf hjá félaginu, og
ef Þróttur heldur sér nú uppi, er mjög
líklegt að liðinu takist að festa sig í sessi
í hópi þeirra beztu.
KA
Þótt KA sé nú nýliði í 1. deildinni,
hefur liðið á að skipa nokkrum leik-
mönnum sem eru þar hagavanir. Þeirra
á meðal er Þorbergur Atlason, fyrrver-
andi landsliðsmarkvörður úr Fram,
Elmar Geirsson, fyrrverandi landsliðs-
maður og Framari, Gunnar Gunnars-
son, fyrrverandi KR-ingur og í liðinu
eru einnig allmargir leikmenn sem voru
með ÍBA-liðinu, en það lék í 1. deild á
sínum tíma.
Þegar ÍBA-liðinu var skipt og leik-
menn skipuðu sér undir merki KA og
Þórs hófu bæði félögin að leika í 3.
deild og bæði unnu þau sig strax upp i
2. deild. Þór fór síðan rakleiðis upp í 1.
deild, en KA dokaði hins vegar við og
háði raunar harða keppni við Hauka í
2. deildinni í fyrra um 1. deildar sætið.
Varla er á því vafi, að það kemur liðinu
nú til góða. Tími hefur unnist til upp-
byggingarstarfs og þess að búa liðið
„Leikum meiri sóknarleik í sumar“
Þetta verður mjög jöfn barátta og
mikið skorað af mörkum í sumar,
sagði Diðrik Ólafsson, hinn gamal-
reyndi markvörður Víkingsliðsins,
þegar íþróttablaðið ræddi við hann.
Nú er það svo að markvörðum er
jafnan ekkert um það gefið að mikið
sé skorað af mörkum, a.m.k. ekki í
þeirra eigið mark, og var því Diðrik
að því spurður, á hverju hann byggði
þá skoðun sína að það yrði „marka-
ár“.
— Framlínur flestra liðanna eru
nú miklu beyttari en þær voru, sagði
Diðrik,—og knattspyman hjá okkur
er að breytast á þann veg að meira er
lagt upp úr sóknarknattspyrnunni.
Við hjá Víking eigum t.d. mun betri
framlínu nú en við vomm með í fyrra,
og af þeim sökum hefur leikkerfi
liðsins verið breytt. í fyrra lékum við
4—4—2 leikkerfið í flestum leikja
okkar, en nú munum við örugglega
oftast leika 4—3—3. Inn í liðið hjá
okkur em að koma geysilega efni-
legir strákar eins og t.d. þeir Amór
Guðjohnsen og Heimir Karlsson
(Heimir þessi er bróðir Jóns H.
Karlssonar, fyrirliða íslenzka lands-
liðsins í handknattleik), auk þess sem
Viðar Elíasson er nú í fullu fjöri, en
hann var lengst af meiddur í fyrra.
Um tíma leit út fyrir að Víkingar
yrðu fyrir miklum skakkaföllum í
sumar, þar sem nokkrir af fasta-
mönnum í iiðinu höfðu ákveðið að
hætta, og fyrirliði þess, Eiríkur Þor-
steinsson, gerðist liðsmaður í sænsku
knattspyrnuliði. En úr þessu rættist
svo rækilega. Gunnlaugur Krist-
finnsson og Gunnar öm Kristjáns-
son, sem báðir ætluðu að hætta hafa
nú hafið æfingar að nýju, og sagði
Diðrik að æfingasókn hefði ekki
veríð í annan tíma betri hjá Víking-
um.
— Það em venjulega um 20 menn
á æfingu hjá okkur, en í fyrra var
algengt að þeir væru ekki nema
14__16. Nú verður í fyrsta sinn í
langan tíma barátta um stöður í
Víkingsliðinu, og það skapar okkur
tvimælalaust meiri möguleika.
Diðrik sagði hinsvegar að æfinga-
aðstaðan hjá Víkingum værí mjög
bágborin. Liðið verður að æfa á
grasspildunni milli Laugardalsvall-
aríns og Laugardalssundlaugarinnar.
Klæða leikmennirnir sig úr og í í fé-
lagsheimili Víkings, og aka síðan til
æfingasvæðis, langa leið. — í fyrra
höfðum við t.d. aðeins tvær æfingar
þar sem voru venjuleg mörk, sagði
Diðrik, — en vonandi stendur það til
bóta í sumar. Sjálfir eru Vikingar að
koma sér upp grasvelli, og vonast til
þess að unnt verði að æfa á honum
þegar kemur fram á keppnistímabil-
ið.
— Ég held að liðin hirði stig hvert
af öðm í sumar, sagði Diðrik Ólafs-
son að lokum. Enginn leikur verður
auðveldur. Þannig er ég t.d. viss um
að KA mun krækja í mörg stig á Ak-
ureyri, — það verður ekki auðvelt að
heimsækja þá. En ætli við segjum
ekki að baráttan í sumar komi fyrst
og fremst til með að standa milli
okkar Víkinga, Valsmanna, Akur-
nesinga og Vestmannaeyinga.
27
L