Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 93
Framhald af bls. 83
hvatning til íþróttahreyfingarinnar um
meiri og markvissari þrekþjálfun og áfram-
haldandi skipulagðar rannsóknir á þessu
sviði.
Helstu heimildir
1.
Agnevik, G.
.,Fotboll“ idrottsfysiologi, rapport nr. 7.
Trygg Förlagsverksamheten, Fack, Stock-
holm. 1970.
2.
Ástrand. P-O., Rodahl, K.
Textbook of work physiology.
McGraw-Hill Book Company, New York,
1970.
3.
Costill D.L., Thomason H., Roberts E.
Fractional utilization of the aerobic cap-
acity during distance running.
Med.Sci.Sports. Vol.5, No. 4. 1973.
4.
Hermansen, L.
Oxygen transport during exercise in human
subjects.
Acta. Physiol. Scand., Suppl. 399, 1973.
5.
Jakobsson, B.
Þolrannsóknir I.B.R., 1958-1962.
Fjölrit.
6.
Lange Andersen, K., Shepard, R.J., Deno-
lin, H„ Varnauskas, E., Masironi, R.
Fundamentals of exercise testing.
WHO, Geneva, 1971.
7.
Margaria R., Aghemo P., Pinaera Limas F.
Framhald á bls. 85
Höfðinglegar gjafir
Adidas og Björgvins
— Með þessu er ég að reyna
að gjalda svolítið af skuld þeirri
sem ég er í við íþróttahreyfinguna
á íslandi, sagði Björgvin Schram,
stórkaupmaður í kaffiboði sem
fyrirtæki hans efndi til á Hótel
Sögu 26. apríl s.l., en þar voru
afhentar stórgjafir frá fyrirtæki
Björgvins og hinu þekkta þýzka
Adidas-fyrirtæki til fjölmargra
íslenzkra íþróttamanna og í-
þróttadómara.
I ræðu sem Björgvin Schram flutti
við þetta tækifæri rifjaði hann upp, að
nú væri svo komið að íslendingar yrðu
að teljast einu sönnu áhugamennirnir
sem eftir væru í íþróttaheiminum. Eigi
að síður hefðu íslenzkir íþróttamenn
vakið mikla athygli með frækilegum
afrekum sínum, og nefndi Björgvin þar
til dæmis frammistöðu íslenzka knatt-
spyrnulandsliðsins, íslenzka hand-
knattleikslandsliðsins og síðast en ekki
sízt Evrópumeistaratitil Hreins Hall-
dórssonar í kúluvarpi. Sagði Björgvin
að stjórnendur Adidas-fyrirtækisins
hefðu veitt þessum íþróttaafrekum eft-
irtekt og fallist á tillögu sína að veita
þeim styrki í formi íþróttabúnaðar,
jafnframt því sem fyrirtæki Björgvins
gefur jafnt á móti. Er þarna um veru-
legan stuðning við íslenzkt íþróttafólk
að ræða — mun jafngilda 4,5 milljónum
króna árlega.
í umræddu kaffiboði veittu fjöl-
margir íþróttamenn og dómarar við-
töku gjöfum frá Adidan-fyrirtækinu, en
sem kunnugt er hefur það um langt
árabil verið í forystusveit þeirra fyrir-
tækja sem framleiða íþróttabúnað og
íþróttavörur. Hefur Adidas-fyrirtækið
bryddað upp á fjölmörgum nýjungum á
því sviði, og nú síðast hefur fyrirtækið
framleitt nýja gerð af knattspyrnuskóm
sem vestur-þýzku heimsmeistararnir í
knattspyrnu munu nota i keppninni í
Argentínu. Skór þessir eru til muna
léttari en venjulegir knattspyrnuskór,
og er hönnun þeirra byggð á vísinda-
legum útreikningum á hegðun knatt-
spyrnumanna á vellinum. Að auki hef-
ur Adidas svo nýlega sent á markaðinn
nýja gerð af fótknöttum, svokölluðum
Tangó-knöttum og verða þeir einnig
notaðir í heimsmeistarakeppninni í
Argentínu.
f kaffiboðinu tók Gísli Halldórsson,
forseti ÍSÍ til máls og færði Björgvin og
Adidas-fyrirtækinu þakkir fyrir velvild
og veittan stuðning. Jón Aðalsteinn
Jónsson, formaður Knattspyrnufélags-
ins Víkings tók ennfremur til máls, og
kvaðst hann vona að fleiri íþróttavöru-
framleiðendur fylgdu fordæmi Adidas
og Björgvins.
Björgvin Schram var um árabil einn
fremsti knattspyrnumaður fslendinga,
og eftir að hann lagði skóna á hilluna
tók hann mjög virkan þátt í félagsstarfi
íþróttahreyfingarinnar og var t.d. um
árabil formaður Knattspyrnusambands
íslands.
93