Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 56
Argentina '78
eftir að reynast þeim nokkuð dýr-
keyptur þar sem hetja þeirra, Puskas,
meiddist í honum og gat ekki beitt sér
verulega í leikjunum sem eftir voru.
Hann var t.d. ekki með í leik Ung-
verjalands og Uruguay og aðeins skuggi
af sjálfum sér í úrslitaleiknum við
Þjóðverja. í þeim leik skoraði hann
samt mark og dreif félaga sína áfram og
hvatti þá. Úrslitaleikurinn þótti sérlega
vel leikinn af hálfu beggja liðanna, en
Þjóðverjarnir voru þó greinilega betri
og sigur þeirra verðskuldaður.
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT:
Þýzkaland — Júgóslavía 2-0 (1-0)
Ungverjaland — Brasilía 4-2 (2-1)
Austurríki — Sviss 7-5 (2-4)
Uruguay - England 4-2 (2-1)
UNDANÚRSLIT:
Þýzkaland — Austurríki 6-1 (1-0)
Ungverjaland — Uruguay 4-2 (1-0)
ÚRSLIT:
Um 3. sætið: Austurr,—Uruguay
3-1 (1-1)
Um 1. sætið: Þýzkal.-Ungverjal.
3-2 (2-2)
Svíþjóð 1958
Ilokakeppni heimsmeistarakeppn-
innar sem fram fór í Svíþjóð kom
fram á sjónarsviðið sá knatt-
spyrnumaður sem vafalaust hefur orðið
öðrum knattspyrnumönnum frægari,
fyrr og síðar. Það var brasilíski leik-
maðurinn Pele, sem var þá aðeins 17
ára að aldri. Eftir þessa keppni var nafn
hans á vörum alls knattspyrnuheimsins,
sem dáðist að hæfni hans og stórkost-
legum mörkum sem hann skoraði í
keppninni.
Ungverjinn Puskas vann hug og hjörtu allra
í heimsmeistarakeppninni 1954. Þama er
hann, með númer 10 á bakinu, að ræða við
Jules Rimet, forseta FIFA, sem manna mest
átti þátt í að koma heimsmeistarakeppninni
á.
HM í knattspyrnu
Liðin sem komust í úrslitakeppnina í
Svíþjóð voru auk heimamanna, Þýzka-
land, Norður-frland, Argentína, Frakk-
land, Júgóslavía, Paraguay, Skotland,
Ungverjaland, Wales, Mexikó, Brasilía,
Tékkóslóvakía, England og Austurríki.
Eitt þessara liða tók nú í fyrsta sinn þátt
í heimsmeistarakeppninni — lið Sovét-
manna, og var það fyrirfram talið lík-
legt að blanda sér í baráttuna um verð-
launasæti. Höfðu Sovétmenn orðið
Olympíumeistarar á leikunum í Mel-
bourne tveimur árum áður, og þá teflt
fram mjög góðu knattspyrnuliði.
Þetta var líka í fyrsta sinn í sögu
keppninnar sem fjögur lið frá Bret-
landseyjum tóku þátt í lokakeppninni,
og var því að vonum að fjölmargir
Bretar lögðu leið sína til Svíþjóðar
meðan á keppninni stóð, og sérstaklega
voru Skotar þar atkvæðamiklir, eins og
þeir eru oftast þegar þeir fylgja sínum
mönnum til knattspyrnuleikja. Brezku
liðunum gekk bærilega fyrsta leikdag-
inn, en þá vann Norður-írland 1—0
sigur yfir Tékkóslóvakíu, Skotland
gerði jafntefli við Júgóslavíu 1—1,
Walesbúar náðu jafntefli 1—1 í leik
sínum við silfurliðið frá síðustu heims-
meistarakeppni, Ungverjar og Eng-
lendingar gerðu 2-2 jafntefli við
Sovétmenn.
Fyrsta leikdaginn bar það einnig til
tíðinda að tíu mörk voru skoruð í einum
leikjanna, en svo há markatala er jafn-
an heldur óvenjuleg í lokakeppni
heimsmeistarakeppninnar. Þetta var í
leik Frakklands og Paraguay, sem þeir
fyrmefndu unnu 7—3. í þeim leik skor-
aði Juste Fontaine þrjú mörk, en í
keppninni skoraði hann alls 13 mörk
sem er met í lokakeppni heimsmeist-
arakeppninnar sem erfitt verður að slá.
Það var mikið um dýrðir í Svíþjóð
meðan á keppninni stóð, ekki sízt vegna
velgengni sænska liðsins. Segja þeir
sem fylgzt hafa lengi með knattspyrnu
að aldrei hafi þeir heyrt jafn áköf
hvatningaróp áhorfenda og er Svíar
mættu Þjóðverjum í undanúrslitum
keppninnar. Fáir höfðu átt von á því að
þeir næðu svo langt, en í leik þessum
sýndu heimamenn að það var engin
tilviljun að svo vel hafði gengið. Lið
þeirra sýndi afbragðsknattspymu og
sigraði heimsmeistarana 3—1 og var þar
með komið í úrslit á móti Pele og Co.
Úrslitaleikurinn fór fram í Stokk-
hólmi 29. júní. Gerðar höfðu verið sér-