Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 26
hafnaði um miðja 1. deildina. í sumar
verður það spurningin hvort piltunum
tekst að fylgja hinni góðu byrjun sinni
eftir. Það verður erfitt, en ugglaust
hægt. Reyndar veltur það örugglega á
miklu fyrir liðið í hvernig formi Gísli
Torfason verður í sumar, en í fyrra átti
hann stærstan þáttinn í hve vel gekk hjá
Keflavíkurliðinu — sennilega stærri
þátt en flestir komu auga á. Það var
hann sem dreif strákana áfram með
krafti sínum, dugnaði og stjórnsemi.
Ekki er ósennilegt að Keflavíkurliðið
verði um miðja deild í ár, eins og í fyrra.
Enn þurfa sennilega piltarnir tíma til
þess að mótast og er slíkt alls ekki ó-
eðlilegt. Hitt gæti líka komið fyrir, sér-
staklega ef illa gengur í byrjun, að liðið
næði ekki saman og yrði í fallhættu
þegar á mótið liði.
Breiðablik
Hjá engu félagi hérlendis hefur verið
eins mikil knattspyrnugróska á undan-
förnum árum og hjá Kópavogsfélaginu
Breiðabliki. Þegar úrslit hafa ráðist í
yngri flokkunum hafa Breiðabliks-
menn komið þar mjög svo við sögu, og
oft hirt þar marga meistaratitla. Þessi
þáttur starfsins á örugglega eftir að
skila ríkulegum ávöxtum hjá félaginu,
og má raunar þegar sjá þess merki.
Tími ungu piltanna, sem verið hafa að
vinna sigra í yngri flokkunum undan-
farin ár, er raunar ekki kominn enn, og
þess vegna má ætla að Blikarnir verði í
einskonar biðstöðu í sumar. í meistara-
flokksliðinu eru margir ágætir leik-
menn, en til þessa hafa þeir verið of
misjafnir, eða átt of misjafna leiki til
þess að verulegur árangur næðist. Vel
má vera að hinn tékkneski þjálfari liðs-
ins nái að bera í þá bresti sem verið hafa
á leik liðsins, en slíkt mætti þó fremur
flokka undir kraftaverk en hitt ef
Breiðablik yrði með í baráttunni um
íslandsmeistaratitilinn í ár. En þess tími
mun koma — sennilega fyrr en síðar.
FH
Sennilega verður þetta mjög erfitt
sumar hjá FH-ingum. í fyrra átti liðið
afskaplega misjafna leiki. Þegar bezt lét
lék það öllu skemmtilegri knattspyrnu
en tíðast mátti sjá á knattspyrnuvöll-
unum, en þess á milli datt það jafnvel
niður fyrir meðalmennskuna, og svo
virtist sem leikmenn þess hefðu ekki
mikla ánægju af leikjunum. Forystu-
menn FH-liðsins hafa sýnt mikinn
stórhug með áformum sínum að taka
upp greiðslur til leikmannanna fyrir
vinnutap vegna æfinganna, og verður
fróðlegt að sjá hvernig það kemur út.
Undirritaður er þeirrar skoðunar að
það muni ekki hafa mikil áhrif á knatt-
spyrnu FH-liðsins, a.m.k. ekki í sumar,
og það er einnig skoðun undirritaðs að
FH-liðið muni verða mjög svipað í
sumar og í fyrra. Taka góða spretti, en
detta síðan niður í áhugaleysi þess á
milli.
Annað sem vakið hefur töluverða
athygli í sambandi við FH-liðið, er
hversu lítinn stuðning félagið hefur af
því að leika á heimavelli sínum í
Kaplakrika. Feikir félagsins hafa
venjulega verið mjög illa sóttir, — á-
horfendatalan sjaldan meira en nokkur
hundruð. Og þetta skeður þótt Hafn-
firðingar geti með réttu gert tilkall til
26