Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 71
Argentina'78
wich Albion. Johnstone er ef til vill
ekki í röðum frægustu skozku knatt-
spymumannanna, en hann þykir gíf-
urlega traustur og harður í hom að
taka. — Stundum reyndar of harður,
þar sem það hefur oft hent að hann
hefur fengið að sjá rauða spjaldið í
kappleikjum sínum, og raunar einu
sinni verið dæmdur í níu vikna
keppnisbann fyrir ruddaskap. Þá lék
hann með Glasgow Rangers, og
meðan hann var í banninu notaði
W.B.A. tækifærið og keypti hann fyrir
fremur lága upphæð — 140.000 pund.
í undankeppninni gengdi Johnstone
veigamiklu hlutverki í skozka lands-
liðinu, og átti mikinn þátt í því að
Skotar náðu þessu takmarki sínu.
Dino Zoff (ítalíu)
Einn af „gömlu“ mönnunum í
heimsmeistarakeppninni verður
markvörður ítalska landsliðsins, Dino
Zoff, sem verður nær 36 ára að aldri
þegar slagurinn hefst. Segist hann
ætla að leika knattspymu þangað til
hann komist á fimmtugsaldurinn, eða
jafnvel vel það. Hróður Zoff hefur
borist víða um lönd, og þegar hann
kom til Þýzkalands með ítalska
landsliðinu til heimsmeistarakeppn-
innar 1974, hafði hann staðið í mark-
inu 1.143 mínútur án þess að fá á sig
mark. í þeirri keppni vegnaði ítölum
hins vegar ekki vel, vörn liðsins þótti
opin og Zoff mátti ekki við margnum.
Þegar ítalska liðið var valið fyrir
keppnina í Argentínu, sætti það
nokkurri gagnrýni að Zoff skyldi val-
inn. Menn töldu hann vera orðinn of
gamlan. Þeirri gagnrýni svaraði hann
með því að verja tvívegis vítaspyrnu í
leik með liði sínu gegn hollenzka lið-
inu Ajax í Evrópubikarkeppni meist-
araliða í vetur, og víst er að síðan
hefur ekki verið um það talað að
honum sé ofaukið í ítalska landslið-
inu. Sjálfur segist Zoff vera farinn að
tapa snerpu, en mikil reynsla komi
aftur á móti, og hún sé ekki síður
mikilvæg.
Hassan Rowshan (íran)
Einn bezti knattspymumaðurinn
sem íranir tefla fram í heimsmeist-
arakeppninni í Argentínu er hinn 23
ára Hassan Rowshan, sem hefur um
árabil verið fastur maður í landsliði
íran, og jafnan mjög markheppinn.
Það var t.d. hann sem skoraði eina
mark leiksins er Iran og ísrael kepptu
til úrslita í knattspyrnukeppni Asíu-
leikanna 1974, og í undankeppninni
nú var hann mjög atkvæðamikill,
einkum í þeim leikjum sem voru mest
áríðandi fyrir lið hans. Þannig skoraði
hann t.d. tvö mörk í leik íran við
Ástralíu í undankeppninni. Að und-
anfömu hefur Rowshan átt við
meiðsli að stríða, en eftir skurðaðgerð
sem gerð var á honum í Vestur—
Þýzkalandi, er líklegt að hann geti
leikið með liði sínu í Argentínu.
Rowshan er áhugamaður eins og fé-
lagar hans í íranska landsliðinu, og
æfir hann að jafnaði 2—3 klukku-
stundir í viku, sem ekki þykir mikið,
ekki einu sinni hérlendis.
Victor Rangel (Mexikó)
Yngsti leikmaður mexikanska liðs-
íns í Argentínu verður Victor Rangel,
sem nú er rúmlega tvítugur. Binda
Mexikanar miklar vonir við hann í
keppninni, enda hefur Rangel þegar
sýnt það að mikils má af honum
vænta. Það var hann sem færði
Mexikó Mið-Ameríkutitilinn í knatt-
spymu árið 1975, og á Olympíuleik-
unum í Montreal þótti hann standa
sig frábærlega vel, og skapaði hann
oft usla í vöm andstæðinganna með
ótrúlegum hraða sínum. Fyrsti leikur
Rangel í heimsmeistarakeppninni var
er Mexikó mætti Haiti í undan-
keppninni og skoraði hann þrennu í
þeim leik. Þrátt fyrir ungan aldur á
Rangel nú um 50 landsleiki að baki
og hefur hann skorað rösklega 40
mörk í þeim, og ætlar sér að bæta
verulega í safnið í keppninni í
Argentínu.
71