Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 49
engan til að keppa við. Árangurinn var
5,82 metrar, og segir það sína sögu um
það algjöra áhugaleysi sem var ríkjandi
um frjálsar íþróttir á þessum árum, að
ég skyldi vera eini keppandinn í lang-
stökki á þjóðhátíðarmótinu.
Friðrik Þór segir að nú séu orðnar
mjög miklar breytingar í þessari í-
þróttagrein hérlendis. Fjöldi þátttak-
enda hafi aukist verulega, og það sé
orðinn stór hópur sem æfir mjög vel og
reglulega og ætlar sér að ná langt. —
Fólk leggur ótrúlega mikið á sig til þess
að geta þjálfað, sagði Friðrik Þór, — og
má t.d. geta þess að í sumar verður
hálfgerð íslendinganýlenda í Þýzka-
landi. Þeir sem þar munu dvelja við
æfingar og keppni fara á eigin vegum
og þurfa að leggja fram verulegt fjár-
magn. Ætli það sé ekki óhætt að full-
yrða að þar fari allt sem fólk hefur get-
að sparað saman með mikilli vinnu yfir
vetrarmánuðina. En þeir sem í þetta
fara eru áhugasamir og gera sér grein
fyrir því að til þess að ná þeim árangri
sem þarf til þess að geta keppt við þá
beztu þarf að leggja allt í sölurnar.
Sjálfur er Friðrik Þór einn þeirra sem
ætlar að dvelja við æfingar ytra í sumar
og til þess verður hann að taka sér
launalaust leyfi. Hann er nefnilega bú-
inn að taka sumarleyfið sitt — tók það í
marz þegar hann fór í æfingabúðir á
Ítalíu í fjórar vikur.
— Við vorum fjögur í þessum æf-
ingabúðum sem voru í Formia, 150
kílómetrum sunnan við Róm. Auk mín
voru þarna Erlendur Valdimarsson,
Jón Sævar Þórðarson og Ingunn Ein-
arsdóttir. Forsaga þess að við fórum
þangað var sú að Örn Eiðsson, for-
maður Frjálsíþróttasambandsins fékk
vitneskju um þessar æfingabúðir á
þingi sem hann sat erlendis og gat
komið málum þannig fyrir að ítalir
buðu okkur dvöl í æfingabúðunum,
okkur að kostnaðarlausu. Þarna var
frábær aðstaða til æfinga. Ég æfði
þarna a.m.k. tvisvar á dag, og tel mig
hafa náð mér mjög vel upp. Síðan ég
kom heim hef ég svo reynt að æfa vel,
og tapa a.m.k. ekki því niður sem ég
vann upp þarna.
Friðrik Þór sagði að bærileg aðstaða
væri til þess að æfa langstökk hér á
veturna, en hins vegar ekki hægt að æfa
þrístökk, og raunar væri heldur ekki
aðstaða til þess að keppa í því, eða æfa
það yfir sumarmánuðina, þar sem at-
rennubrautin á Laugardalsvellinum
væri það hörð, að hún væri eins og
steypa. — Þetta stendur til bóta þegar
búið verður að leggja gerfiefnið á hinn
völlinn í Laugardalnum, sagði Friðrik
Þór, — og ég verð að viðurkenna að ég
hlakka ósegjanlega til þess að sá völlur
komist í gagnið.
- Það sem er einna erfiðast fyrir mig
við æfingarnar, sagði Friðrik Þór, - er
það að ég er aleinn í þessu. Einhvern
veginn er það þannig að ef efnilegir
strákar koma fram í þessum stökk-
greinum, þá endast þeir ekki í þeim,
heldur fara yfir í aðrar greinar frjálsra
íþrótta og þá helzt í tugþrautina. Hún
virðist heilla afskaplega margar frjáls-
íþróttamenn hérlendis.
Friðrik Þór var spurður að hverju
hann stefndi núna?
— Ég stefni að því að ná íslandsmet-
inu í langstökki í sumar og helzt að
komast á Evrópumeistaramótið í Prag.
Ég neita þvíækki að ég er að gæla við þá
hugmynd að komast á Olympíuleikana
í Moskvu 1980, en til þess að svo megi
verða verð ég að leggja enn harðar að
mér við æfingar - fórna enn meiri tíma
í íþróttirnar en ég hef gert til þessa. Ég
var í unglingabúðum í Múnchen þegar
leikamir voru haldnir þar 1972, og ég
neita því ekki, að þar fékk ég í mig
mikinn fiðring - langar til að vera
meðal keppenda á leikunum. Ég stefndi
reyndar að því að komast til Montreal
og æfði sérlega vel þann vetur. Þá um
vorið var ég að stökkva um 15,80 metra
í þrístökki á æfingum, en á Reykjavík-
urleikunum sem haldnir voru 20. júní
varð ég fyrir því óhappi að rífa sinar í
öklanum og þar með var Olympíu-
draumurinn úti. Ég var frá æfingum í
sex vikur og gat lítið farið að stökkva
fyrr en um haustið.
— Er tíminn og allt það sem fer í
íþróttirnar þess virði?
— Það finnst mér a.m.k., sagði Frið-
rik Þór, — í íþróttunum hef ég eignast
hóp af sérstaklega góðum og skemmti-
legum félögum, fólki sem ég hefði ekki
viljað missa af og kynnast. Þá hafa
íþróttirnar einnig gefið mér möguleika
til þess að ferðast víða um lönd og víkka
þannig sjóndeildarhringinn og kynnast
ýmsu nýju, sem kemur mér svo til góða.
Friðrik Þór Óskarsson er forritari að
mennt og starfar nú sem slíkur hjá
Flugleiðum. Sem fyrr greinir er bezti
árangur hans í langstökki 7,41 metri, -
bezti löglegi árangur hans í þrístökki er
15,17 metrar, en auk þess hefur hann
náð ágætum árangri í öðrum greinum
frjálsra íþrótta og má þar nefna að hann
hefur stokkið 1,90 metra í hástökki,
hlaupið 100 metra hlaup á 11,1 sek., 200
metra hlaup á 23,7 sek. og hlotið 5.993
stig í tugþraut.
49