Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 60
Argentina '78
þýzka liðinu sem svo mikið hafði verið
talað um, Franz Beckenbauer eða var
það Tostao í brasilíska liðinu. Sagt var
einnig að Portúgalir hefðu frábæran
leikmann í sínu liði, sem hét Eusebio.
Verst var að Pele skyldi ekki vera í
hópnum, en hann missti af þessari
keppni vegna meiðsla.
í Englandi léku eftirtalin lið í loka-
keppninni: England, Efruguay, Mexikó
og Frakkland í E riðli, V-Þýzkaland,
Argentína, Sviss og Spánn í 2. riðli,
Brasilía, Búlgaría, Ungverjaland og
Portúgal í 3. riðli og í 4. riðli voru Italía,
Sovétríkin, Chile og Norður-Kórea.
Margt sögulegt gerðist þegar í riðla-
keppninni. Brasilíumenn töpuðu þar
sínum fyrsta leik í heimsmeistara-
keppninni frá árinu 1954, er Portúgalir
sigruðu þá með þremur mörkum gegn
einu og í 4. riðlinum komu hinir smá-
vöxnu Norður-Kóreumenn andstæð-
ingum sínum í opna skjöldu. Gerðu
þeir fyrst jafntefli við Chile, og lögðu
síðan knattspyrnurisann Ítalíu af velli.
Þegar riðlakeppninni var lokið stóðu
eftir: V-Þýzkaland, Uruguay, England,
Argentína, Portúgal, Norður-Kórea,
Ungverjaland og Sovétríkin. Á einum
leikjanna i átta-liða úrslitunum var
langmestur áhugi, leik Argentínu og
Englands sem fram fór á Wembley—
leikvanginum í Lundúnum. Þess voru
jafnvel dæmi að menn buðu fram al-
eigu sína til þess að fá aðgöngumiða á
þennan leik. Voru Englendingar nokk-
uð kvíðnir fyrir leikinn, ekki sízt vegna
þess að ein aðalhetja liðs þeirra, Jimmy
Greaves hafði meiðzt, og gat ekki verið
með. í hans stað tefldi Alf Ramsey fram
Geoff Hurst, leikreyndum landsliðs-
manni, sem hafði þó algjörlega brugð-
izt í leik Englendinga við Danmörku
skömmu fyrir heimsmeistarakeppnina.
Leikur þessi verður eftirminnilegur
öllum þeim er á horfðu. Leikmenn
misstu algjörlega stjórn á skapi sínu,
hvað eftir annað, einkum þó Argen-
tínumenn, og oft lá við að leikurinn
leystist upp í slagsmál. Aðeins eitt mark
var skorað, og það gerði Geoff Hurst.
Englendingar voru komnir í undanúr-
slitin.
Hin liðin sem komust i átta-liða úr-
slitin öfunduðu Portúgal af andstæð-
Norður-Kóreumenn komu mjög á óvart í
keppninni 1966 og komust þar í milliriðla.
Svo langt hefur „lítið“ lið ekki komist í
langan tíma.
'FFES BA5ASAS
HM í knattspyrnu
ingum sínum í þeim, en það voru
Norður-Kóreumenn. Það gat varla
verið að þeir yrðu fjötur um fót, jafnvel
þótt svo einkennilega hefði viljað til að
þeir sigruðu ítali. Leikurinn fór fram í
Liverpool. Strax á fyrstu mínútunni
skoraði Norður-Kórea mark og eftir
stutta stund var staðan 3—0 þeim í vil.
En þá tók Eusebio, hetja þessarar
heimsmeistarakeppni, til sinna ráða og
í leiknum skoraði hann þrjú mörk, og
Portúgalirnir unnu 5—3.
Til úrslita léku svo Englendingar og
Vestur-Þjóðverjar. Loftið var rafmagn-
að á Wembley er dómarinn blés í flautu
sína og leikurinn hófst. Leikur sem
lengi verður í minnum hafður, og ekki
sízt vegna frábærrar frammistöðu ljóta
andarungans í enska liðinu, Geoff
Hurst. í hálfleik var staðan 1—1, og að
venjulegum leiktíma loknum var enn
jafnt 2—2. I framlengingunni bættu
Englendingar við tveimur mörkum,
öðru mjög umdeildu, og það kom í hlut
Bobby Moore, fyrirliða liðsins, að taka
við heimsbikamum úr hendi Elísabetar
Englandsdrottningar. Langþráður
draumur Englendinga hafði rætzt. Og
öll enska þjóðin fagnaði, og fannst það
sízt of mikið þótt titillinn bættist fyrir
framan nafn Álf Ramsey.
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT:
England — Argentína 1-0 (0-0)
V-Þýzkaland — Umguay 4-0 (1-0)
Portúgal — Norður-Kórea 5-3 (2-3)
Sovétríkin — Ungverjaland 2-1 (1-0)
UND ANÚRSLIT:
V-Þýzkaland - Sovétríkin 2-1 (1-0)
England — Portúgal 2-1 (1-0)
ÚRSLIT:
Um 3. sætið: Portúgal-Sovétr.
2-1 (1-1)
Um 1. sætið: England—V.-Þýzkal.
4-2 (1-1)
b
T*1
MeXIKO 1970
að var með hálfum huga sem
'l FIFA ákvað að þiggja boð
_ Mexikana um að heims-
meistarakeppnin 1970 færi fram í landi
þeirra. Reynsla sú sem fengizt hafði á
Ólympíuleikunum þar tveimur árum
áður benti til þess að mjög erfitt væri
fyrir óvana að leika erfiða leiki í fjalla-
loftinu og hitasvækjunni sem er í land-