Íþróttablaðið - 01.05.1978, Blaðsíða 88
Enska
knaítspyrnan
Myndin
Bikarmeistarar Ipswich Town
1978. Efsta röð frá vinstri: Tre-
vor Whymark, George Burrey,
Robin Turner, John Wark, Kevin
Beattie. Miðröð frá vinstri: Cyril
Lea, Leslie Tibbott, Dale Ro-
berts, Paul Cooper, Laurie Sov-
ell, Paul Mariner, Keith Bert-
schin (nú með Birmingham),
Bobby Robson. Fremsta röð frá
vinstri: Mick Lambert, Roger
Osbome, Clive Woods, Mick
Milis, Brian Talbott, Eric Gates,
Colin Harper.
Fyrsti sigur Ipswic
Kenny Burns — Brían Clough gerði góð
kaup er hann keypti hann frá Birmingham.
að eru gömul sannindi og ný að
allt getur gerst í knattspymu.
Það kom enn einu sinni á dag-
inn er lið Ipswich Town og
Arsenal leiddu saman hesta sína í úr-
slitaleik ensku bikarkeppninnar á dög-
unum. Fyrir þann leik stóðu veðmálin
10—1 fyrir Arsenal, og að dómi aðdá-
enda Lundúnaliðsins var það nánast
formsatriði að leikurinn færi fram, svo
miklu betri áttu þeirra menn að vera.
En Ipswich Town sigraði í leiknum
1—0, og var svo vel að þeim sigri komið,
að jafnvel áköfustu fylgjendur Arse-
nalliðsins urðu að viðurkenna að Ips-
wich hefði verðskuldað sigurinn. Var
þetta jafnframt fyrsti sigur Ipswichs í
sögu ensku bikarkeppninnar, en mót-
herjinn í úrslitaleiknum hafði sigrað í
bikarkeppninni eigi sjaldnar en fjórum
sinnum.
Þegar keppnistímabilið 1977—1978
hófst var nafn Ipswich oft nefnt þegar
menn voru að geta sér til um hvaða lið
yrðu í toppbaráttunni í vetur. Það hafði
staðið sig mjög vel árið áður og þá orðið
í þriðja sæti í deildinni. En einhvem
veginn var það svo í vetur að liðið náði
sér aldrei verulega á strik, og var fjarri
því að blanda sér í baráttuna. Það var
þó að mestu skipað hinum sömu leik-
mönnum og árið áður.
Ipswich Town á sér nokkuð sérstæða
sögu í ensku knattspyrnunni þar sem
liðið var fyrst gert að atvinnumannaliði
árið 1936, eða mun seinna en flest
önnur ensk lið. Leið ekki á löngu að það
88