Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 8

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 8
Útilíf — ferðalög Hólminum.“ í Setbergsannál frá 1702 segir að tveir þjófar hafi verið hengdir í Gullbringusýslu og í Mælifellsannál frá sama ári er frá því greint að þrír þjófar hafi verið hengdir á Suðurnesjum. Skarðsannáll frá 1635 greinir frá því að 2 menn hafi verið hengdir í Gull- bringusýslu. „voru það þjófar“ og Kjósarannáll frá 1634 greinir frá því að þjófur hafi verið hengdur að Bessa- stöðum. Hafa verið færð fyrir því rök að allir þessir menn hafi verið teknir af lífi í Gálgaklettum. I klettagjótu austan í Gálgaklettum eru miklar grjóthrúgur og er talið að þar muni sakamennirnir hafa verið dysjaðir. Er sagt, að þar hafi lengi sézt á mannabein, en ekki mun það hafa verið kannað hvort þarna er raunverulega um dys að ræða. Hefur staðurinn breytzt nokkuð á undanförnum ára- tugum, og því óvíst hvort nokkuð finndist þótt leitað væri. í Arnarnesinu, fyrir sunnan voginn voru einnig dysjar og er sagt að þar hafi verið dysjaður maður sá er síðar gekk aftur og varð kunnur draugur á Álfta- nesi. Var draugur þessi heitinn eftir Þorgarði þeim er varð Þorleifi jarla- skáldi að bana á Þingvöllum, af því að hann þótti álíka illur andi. Voru dysj- arnar í Arnarnesi oft kallaðar Þor- garðs-dysjar. Þótt Gálgahraunið hafi að geyma heldur ömurlegan þátt í íslandssög- unni, er víst, að fá svæði innan Reykja- vikursvæðisins bjóða upp á eins mikla og sérstæða náttúrufegurð og þetta svæði. Svæði þetta er þó fáum kunnugt, og má vera að það ráðist af því hversu ógreitt það er yfirferðar. Skammt frá Gálgahrauninu hefur þjóðleiðin út á Álftanes legið, og er hún mörkuð á landabréf Björns Gunnlaugssonar. Hefur leið þessi legið meðfram Arnar- nesvoginum að sunnan, og hefur verið mjög fjölfarin, þar sem margir áttu leið út á Álftanesið, ekki sízt til þess að sækja þangað skreið. Ekki er langt síðan að menn höfðu ýmsar nytjar af Gálgahrauni og svæð- inu kringum það. í hrauninu er mikill gróður og meðan búskapur var stund- aður að ráði í Garðahreppi og Hafnar- firði þótti beit þar góð, einkum í þeim hluta hraunsins sem kallaður eru Klettar. Gat fé gengið þar að mestu sjálfala, þar sem fjörubeit var einnig mikil. Þangnytjar voru einnig miklar á þessu svæði, allt fram á þessa öld. Mikinn marhálm rak þarna á land, aðallega úr Lambúsafjöru og var hann þurrkaður og síðan notaður sem ein- angrun í hús. Stunduðu bændur það sem hlunnindi að safna marhálmi og selja hann til Hafnarfjarðar og Reykja- víkur. Var hálmurinn fluttur þangað á hestum í svo stórum sátum að þær huldu að mestu hestana, enda hálmur- inn mjög léttur í sér. Á öðrum áratug þessarar aldar var hálmvinnsla þessi aflögð, bæði af því að þá voru komin á markaðinn önnur einangrunarefni, og eins vegna þess að hálmreki minnkaði til mikilla muna. Milli Arnarnesvogs og Lambhúsa- tjarnar skerst lítið nes fram. Heitir það Eskineseyri. Má þar sjá merki fram- kvæmda, litla hlaðna tóft. Á tóft þessi sér þá sögu að séra Þórarinn Böðvars- son að Görðum hafði ætlað sér að koma upp æðarvarpi á Eskineseyrum, en þarna skammt frá var mikið æðar- varp í Bessastaðalandi. Lét hann byggja kofa þarna og fluttust þangað karl og kona, sem áttu að hafa umsjón með æðarvarpinu. Höfðu þau með sér nokkur hænsni sem áttu að lokka æðarfuglinn að. Þessi tilraun séra Þór- arins mun lítinn árangur borið og mannabyggð í nágrenni gálgahrauns því aðeins staðið í stuttan tíma. FRJÁLS Vettvangur viðskipta VERZLUN og athafnalíís. 8

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.