Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 19

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 19
Útilíf — ferðalög Einblínt á of fáa staði í landkynningunni — segir Arnfinnur Arnfinnsson hótelstjóri á Akureyri að er farið að verða þannig með erlenda ferðamannastrauminn hér, að menn koma hér með flugvél að morgni, eru þá drifnir inn í rútu og ekið með þá beint í Mý- vatnssveitina. Þeir hafa varla tíma til að kaupa filmu, hvað þá skoða sig um í Eyjafirðinum. Þannig fórust Arnfinni Arnfinnssyni, hótelstjóra á Varðborg á Akureyri orð, þegar íþróttablaðið ræddi við hann. Og Arnfinnur hélt áfram. — Þetta er skipulagt svona fyrir þessa ferðalanga og að mínu mati farið allt of hratt yfir. Eyjafjörðurinn finnst mér fegurst sveita á íslandi og vel þess virði að eyða einhverjum tíma í að skoða sig um hér. — Það sem einkum veldur þessu, sagði Arnfinnur, er að það hefur verið einblínt of mikið á fáa staði í land- kynningunni. Ferðamennirnir halda því að fátt annað sé að sjá hér nyrðra en Mývatnssveitin. Ég held að það sé of lítið gert til að laða ferðamenn til Ak- ureyrar. Við erum sem sagt of hlédrægir í þessum bransa. Það er ekki sjálfsagður hlutur að fólk leggi leið sína hingað, heldur þarf að rækta þetta upp. Hér mætti t.d. koma á bátsferðum með ferðafólk um fjörðinn, sem ég held að yrðu mjög skemmtilegar. Þá þarf að koma upp fleiri sjónskífum og auðvelda aðkomu að góðum útsýnisstöðum. Hérna kemur líka fólk, sem ekki hefur fylgd fararstjóra og þarf að auðvelda því fólki að finna það markverðasta. — Það hefur stundum verið nefnt, að ekki sé nægilegt hótelpláss á Akureyri, sagði Arnfinnur. — Á sumrin hefur þó verið hægt að taka við öllum sem óskað hafa eftir gistingu í bænum, en þá hefur starfað hér Eddu hótel. Og það er hægt að taka við fleira fólki. Vandalaust er að koma upp sumarhóteli að Hrafna- gili. Við notuðum skólann þar í 2 sumur 1973—1974 meðan Útsýn stoppaði hér með erlenda ferðamenn yfir tvær nætur og sýndi þeim Eyjafjörð. Fólk var þá ánægt með að vera þar, fannst rólegt og notalegt. Aðstaðan er enn að batna þarna, t.d. er verið að koma þar upp 19

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.