Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 45

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Page 45
endur Vestmannaeyinga og Akurnes- inga. FH-liðið byggir alltof mikið upp á þremur leikmönnum, þeim Viðari Halldórssyni, Janusi Guðlaugssyni og Ólafi Danivalssyni. Ef þeir eiga gott sumar í sumar, þá á FH líka gott sumar, og svo öfugt. Það sýndi sig í fyrra að þegar FH tekst upp þá leikur liðið af- bragðsgóða knattspyrnu, en síðan dett- ur það gjörsamlega niður á milli. Framarar hafa nú endurheimt Guð- mund Jónsson, Mumma, sem þjálfara, og verða sennilega um miðja deild. Vandamál þeirra er það, að þeir hafa orðið að yngja lið sitt alltof snögglega upp. Ungu mennirnir sem eru að koma inn í liðið eru allir mjög efnilegir, en þeir þurfa 2—4 ár, til þess að öðlast þann þroska og þá reynslu sem þarf í 1. deildar keppninni. Inntakið hjá Þrótturum að þessu sinni verður að halda sér í deildinni, og takist það, er ekki ólíklegt að liðið festi þar rætur. Þróttur nýtur þess núna að hafa þann þjálfara sem ég tel einn fremsta íslenzka þjálfarann, Þorstein Friðþjófsson. Ég held, að ef honum tekst ekki að halda liðinu í deildinni, þá hefði engum öðrum tekist það. Sama og hjá Þrótturum verður uppi á teningnum hjá KA, markmiðið verður að hreiðra um sig. KA byggir meira á eldri mönnum en Þróttur. Það kann að verða þeim notadrjúgt í sumar, en sú hætta skapast einnig að yngja þurfi lið- ið of snögglega upp. Heimavöllurinn hefur mikið að segja fyrir Akureyrar- liðið, og þar mun það taka meginhluta þeirra stiga sem það fær i deildinni í sumar. Ég minntist áðan á áhorfendur, sagði, að Breiðablik hefði ekki jafn hressa áhorfendur og sum hinna utan- bæjarfélaganna. íslenzkir knattspyrnu- áhorfendur eru ótrúlega mismunandi. í Vestmannaeyjum og á Akranesi eru menn mjög svo áhugasamir um gengi sinna manna, þar hitnar oft í kolunum. Mér finnst oft sem áhorfendur séu of daufir, en hef þó fundið að stemmingin er á uppleið. Kringum Valsliðið er til að mynda mjög svo skemmtilegur kjarni „Stuðmenn Vals“, en sá klúbbur var stofnaður án nokkurrar íhlutunar fé- lagsins, og tel ég til fyrirmyndar, þegar áhugasamur hópur kemur þannig sam- an og heldur saman. Ekkert örvar leik- menn meira en jákvæm hvatning áhorfenda og áhorfendur mega heldur ekki gleyma því að sjálfir fá þeir miklu meira út úr leiknum, ef þeir taka þátt í honum af lífi og sál — styðja ákveðið við bakið á sínum mönnum. Að lokum langar mig til þess að nota þetta tækifæri til þess að minnast lítil- lega á drengjaknattspyrnuna, en af henni hef ég haft nokkur afskipti hjá Val. Áhuginn hjá drengjunum er hreint ótrúlega mikill og það er vissulega skylda félaganna að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hlúa að drengjunum og leiða þá fyrstu sporin í þessari skemmtilegu íþrótt. Hér í Reykjavík búa hins vegar öll félögin við aðstöðuleysi á þessum vett- vangi. Það er ekki óalgengt að þau þurfi að taka á móti allt að 100 drengjum á æfingar, sérstaklega í yngstu flokkun- um. Þetta þýðir að einn völlur er ekki nógur, það þarf marga knetti og 3-4 þjálfara, ef sinna á hópnum sem skyldi. Flest hafa félögin 2 þjálfara fyrir yngstu drengina, sem þýðir að unnt er að sinna 40 drengjum sæmilega, en hinir sitja á hakanum, sem er mjög slæmt. Verkefnin fyrir þessa drengi eru heldur ekki nógu mikil. í Reykjavíkur- mótinu er reyndar keppt í Á-B- og C-flokkum, en það er bara A-liðið sem fær að taka þátt í íslandsmótinu. Drengirnir lifa hins vegar fyrir að fá að keppa við önnur félög. Það er þeim ævintýri. Þeir sem ekki komast í Á-lið- ið, eða bezta flokkinn, verða hinsvegar útundan og yfir sumarmánuðina líða 3—4 mánuðir sem þeir fá engin tæki- færi. Reykjavíkurmótið er leikið aðeins á vorin og haustin, og um eina helgi er haldið svonefnt miðsumarmót. Það þarf að sjá drengjunum fyrir nægjan- legum verkefnum, og markmiðum að stefna að, ekki bara þeim beztu, heldur og hinum. Mér er alveg sama hvað svona mót heitir, en ég veit það að fjöldi drengja heltist úr lestinni og missir af þeirri skemmtun og unaði sem íþróttin getur veitt, eingöngu vegna þess að þeir fá ekki verkefni við sitt hæfi, né heldur nægjanlega góða aðstöðu og þjálfun. Hver tekur við bikarnum í mótslok? 45

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.