Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 66

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 66
Argentina'78 Teofilio Cubillas (Perú) Aðalstjama liðs Perú í heimsmeist- arakeppninni í Argentínu er tví- mælalaust hinn 27 ára Teofilo Cubillas. Hann lék með Perú-búum í keppninni 1970 og átti þá mestan þátt í því að þeir komust í átta liða úrslit keppninnar. Sagt var að andstæðing- ar Perú í þeirri keppni hefðu van- metið liðið, en víst er að svo verður ekki að þessu sinni. I keppninni 1970 skoraði Cubillas stórkostlegt mark í fyrsta leik Perúbúa sem var við lið Búlgaríu, síðan gerði hann tvö mörk í leik liðs síns við Marokkó og eitt mark er Perú tapaði naumlega fyrir Brasilíu í átta-liða úrslitunum. I keppninni meiddist Cubillas og hefur hann æ síðan átt við þau meiðsli að stríða. 1973 flutti hann til Evrópu og gerðist atvinnumaður með liði Basel í Sviss, en þar kunni hann ekki við sig og flutti til Portúgal, þar sem hann hóf að leika með liði Porto. 1976 hætti hann svo atvinnumennsku í Evrópu og flutti til heimalands síns, gagngert til þess að aðstoða þjálfara landsliðs Perú við undirbúninginn fyrir heims- meistarakeppnina. Andras Torocsik (Ungverja- landi) Daginn sem ungverska landsliðið átti að leggja af stað til Argentínu hélt Andras Torocsik upp á 23. afmælis- daginn sinn, og sagði hann þá, að bezta hugsanlega afmælisgjöfin sín væri sú, að Ungverjar næðu langt í heimsmeistarakeppninni að þessu sinni. Torocsik hefur allan sinn feril leikið með einu bezta knattspymuliði Ungverjalands, Ujpest Dozsa, en það lið er frægt fyrir hversu góða mið- vallarleikmenn það hefur átt í langan tíma. Segist Torocsik hafa notið góðs af reynslu og þekkingu þeirra, og það sé fremur þeim að þakka en sér hversu góður knattspyrnumaður hann er orðinn. Bætti hann síðan við að hann vonaðist eftir því að miðju- tríóið í ungverska liðinu léti ekki merkið niður falla í Argentínu, en auk hans eru í því, tveir frábærir leik- menn: Tibor Nyilasi og Bela Varadi. Ronnie Hellström (Svíþjóð) Ronnie Hellström var talinn einn af beztu markvörðunum í heims- meistarakeppninni 1974, og var hon- um öðrum fremur þakkað hvað Svíar náðu þar góðum árangri. Eftir keppnina gerðist hann atvinnumaður með vestur-þýzka liðinu Kaiserslaut- ern og hefur leikið með því æ síðan. Fyrir keppnina 1974 lék Hellström með 1. deildarliðinu Hammarby í Svíþjóð, og vann jafnframt í fata- verzlun. Hann var hins vegar mjög metnaðargjam og hafði lengi beðið eftir tækifæri að gerast atvinnumaður þegar það loks bauðst. Hellström hefur staðið sig mjög vel í hinum harða heimi atvinnuknattspyrnunnar í Vestur-Þýzkalandi, og nær jafnan sínum beztu leikjum, þegar mest við liggur. Segja þeir sem með honum hafa fylgst að hann sé nú enn öruggari og betri markvörður en hann var 1974, og því er spáð að erfitt verði að skora hjá honum í keppninni í Argentínu. Roberto Rivelino (Brasilíu) Rivelino sem nú er 32 ára að aldri, verður væntanlega fyrirliði brasilíska landsliðsins í keppninni í Argentínu. Hann hefur gífurlega reynslu og hef- ur leikið 109 landsleiki, samkvæmt tölum Brasilíumanna. Hann var í landsliði Brasilíumanna sem vann heimsmeistaratitilinn 1970, og einnig með í keppninni 1974. Upphaflega lék hann á vinstri kanti hjá Brasilíu- mönnunum, en hefur nú fært sig aftur og leikur tengilið. Frægur er Rivelino fyrir að hafa skorað mark 3 sekúnd- um eftir að leikur hófst. Það gerðist í leik félagsliða og skoraði Rivelino úr upphafsspymu leiksins, beint frá miðju, þar sem markvörður andstæð- inganna hafði hætt sér langt út í víta- teiginn og var þar að leggja samherja sínum lífsreglurnar. Rivelino hefur lengst af leikið með brasilíska liðinu Sao Paolo, en eftir heimsmeistara- keppnina nú mun hann ganga til liðs við Fluminense of Rio. Kaus hann það heldur en að taka tilboði sem bandaríska liðið New York Cosmos hafði gert honum, sem var þó langt- um hærra. 66

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.