Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 79

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Side 79
Þrekmælingar á íþrótta- fólki Hæfni hjarta og blóðrásarkerfis til að flytja súrefni til vöðva, ásamt getu vöðv- anna til að nýta það, er snar þáttur í þreki hvers einstaklings. Þrek manna má því meta með því að mæla viðbrögð þessara líkams- kerfa við stigvaxandi áreynslu. Slíkar þrek- mælingar, jafnt á heilbrigðum sem sjúkum eru hinar gagnlegustu enda hafa þær verið gerðar um áratugaskeið í nágrannalöndum okkar. Hér á landi hefir hins vegar verið fátt um rannsóknir af þessu tægi, þar til á síð- ustu árum að Rannsóknarstofa Háskólans í lífeðlisfræði hóf slíkar athuganir. Þó gerði Benedikt Jakobsson, íþróttakennari Há- skólans, þrekmælingar á íþróttamönnum í nokkrum mæli á árunum 1958-1962. Þær athuganir munu, eftir því sem okkur er kunnugt, vera þær einu, sem birtar hafa verið hér á landi til þessa. Til þrekmælinga má beita ólíkum tækj- um og aðferðum, (2, 6,10) eftir aðstæðum þeirra sem mælingarnar eru gerðar á. Tæki til álags eru þó einkum tvenns konar, þrek- mælingar eða hjól (ergometer) og hlaupa- reim(treadmill). Mest eru notaðar tvær að- ferðir. Beita má svokallaðri óbeinni mæl- ingu, þar sem hjartsláttarhraðinn við stíg- andi álag er einn mældur. Aðferð þessi er fremur ónákvæm til mats á þjálfunarstigi hjarta og blóðrásarkerfis vegna þess hve hjartsláttarhraði við áreynslu er einstakl- ingsbundinn. Svonefnd bein mæling er ná- kvæmari. Þá er mæld súrefnisneysla ein- staklings við mesta þolanlegt álag. Slíkar mælingar hafa nú verið notaðar til könn- unar á þrekþjálfun íþróttamanna. Hér á eftir verður gerð grein fyrir þeim þrekmæl- ingum, er fram hafa farið á íslenskum íþróttamönnum á Rannsóknastofu Háskól- ans í lífeðlisfræði. Þessar athuganir voru flestar gerðar á árunum 1975-1976. Þrek var reiknað út frá súrefnisneyslu við mesta þol- anlegt álag fyrir hvern og einn. Þessari að- ferð hefur ekki verið beitt áður hér á landi. Rannsóknaraðferð Sérsmíðaður þrekmælir (ergometer) var notaður til rannsóknanna, útbúinn með þeim hætti, að auðvelt var að ná mesta Ungir íþróttamenn með eftirvæntingu í svip. Til þess að verða afreksmenn þurfa þeir að leggja gífurlega á sig við æfingar. álagsþoli einstaklingsins. Hver einstakling- ur var látinn erfiða við þrjú álagsstig. Álagsstigin voru þannig valin að 1. stig væri nærri 50% og miðstig nærri 75% af mesta áætlaða álagsþoli viðkomandi. Lokastig næst með því að auka enn viðnám hjólsins, auk þess sem einstaklingurinn er hvattur til að auka stighraðann sem mest hann má þar til hann er að lotum kominn. Súrefnisneysla var mæld með því að safna útöndunarlofti í ákveðinn tíma í lok hvers álagsstigs í svo- kallaða Douglaspoka. Magn þess var mælt með sérstökum loftmæli (blautmæli) og remma súrefnis- og koltvísýrings í útönd- unarloftinu greind með Scholander-aðferð. Fyrir áreynslu var tekið hjartarit og mældur blóðþrýstingur hjá þeim einstaklingum er voru yfir tvítugt. Meðan á áreynslu stóð var hraði hjartsláttar mældur með siritun hjartarits og fylgst með því hvort hjartarits- 79

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.