Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1978, Síða 83

Íþróttablaðið - 01.05.1978, Síða 83
neyslu súrefnis (V02 1/min) og sem neyslu á hverja einingu líkamsþunga (V02 ml/kgxmin) við mesta álag. Verður sú stærð hér eftir nefnd þrektala. Af töflunni má sjá. að þrektala er ail- breytileg innan hvers aldursflokks. Þetta kemur aðeins ljósar fram í yngri aldurs- flokkunum, sem bendir til þess, að þar sé meiri munur á þjálfunarstigi manna. Handknattleiks- og knattspyrnumennirnir eru ekki aðskildar í töflu 3, en sé þrektala hvors hóps reiknuð sérstaklega, kemur í ljós að knattspyrnumennirnir hafa meðalþrek- töluna 57.0 ml/kgxmin. og handknattleiks- mennirnir 53,2 ml/kgxmin. Eins og áður er getið, hefur sams konar aðferð ekki verið beitt áður við þrekmæl- ingar hér á landi. Verður af þeim sökum fátt til viðmiðunar, en benda má á að í greinar- gerð um þrekrannsóknir Í.B.R. 1958-1962 eftir Benedikt Jakobsson (5) er að finna þrektöluna 48,1 að meðaltali fyrir 91 knatt- spyrnumann á aldrinum 16-30 ára og 51 fyrir 94 handknattleiksmenn á aldrinum 15-30 ára. Sú tala, 57,0 ml/kgxmin, sem áður var gefin upp fyrir knattspyrnumenn, nær yfir aldursbilið 11-31 árs. Sé hins vegar miðað við samsvarandi aldurshóp og í skýrslu Í.B.R., þ.e. 16-30 ára, fæst meðaltalið 53,9. Benedikt Jakobsson mældi ekki súrefnis- notkun heldur var hún áætluð í mælingum hans. Þrektala einstaklings var reiknuð út frá álagi þrekmælis, aldri og hjartsláttar- hraða við mesta álag. Athuganir (per-Olaf Ástrand og Káre Rodahl (2)) benda til þess, að þrektölur, sem þannig eru fundnar, séu yfirleitt 10-15% lægri en við beina mæl- ingu. Séu þessi atriði tekin með í reikning- inn, verður tæpast neinn greinilegur munur á niðurstöðum þessara rannsókna. Enda T A f l í 2 ÞynRÚ hmö FVC Karlar sptPCthlauitar.ir í 60-400 m) n,5 76,5 178,5 4,95 520 18,3 75,0 187,0 5.55 570 19,9 73.5 184,0 5,10 605 20,9 72.5 181,5 4,90 555 mill i vtíRaÍengöahl auparar ( 400-1100 mj 12,6 72,5 162,0 4,70 555 19,6 85,0 191,5 6 05 575 19,8 69.5 179,0 6,00 : 525 20.6 81,0 -94,5 6,40 695 20,9 63.0 171.5 5,05 545 21,5 61.0 171,5 4,20 460 liiii li lanp.hUupatar ( 800 - 3000 tn * 16.2 69,5 183.0 5,35 525 20,4 59.0 170,5 4.25 600 laneMauparar ( 1500 - 10.000 m 18,6 70,0 177.0 4,45 600 ! 8,9 68.0 176,5 4.80 '■K' 32,0 76,0 176,5 4,35 570 Imnur S|>retthláuparar ( 60-400 m) 12,2 80,0 173,0 4,00 415 20,6 62,0 172,5 4,20 665 miltihla>opari ( 400 - 1500 m) 18,4 »1.5 174,0 3,75 515 þótt ekki sé leyfilegt að draga af þessum samanburði ákveðnar ályktanir, þar sem ekki er um sambærilegar aðferðir að ræða, þá bendir hann frekar til þess, að umræddir hópar íþróttafólks séu ekki þrekmeiri nú en fyrir einum og hálfum áratug, og það út af fyrir sig umhugsunarvert. Aðrir höfundar (Rowell og fleiri 1964 (8)) hafa þó fundið enn meiri mismun á þessum tveimur aðferðum, eða allt upp í 30%. Meðalþrektölur þessara hópa íþrótta- manna má hins vegar bera saman við nið- urstöður erlendis frá, þar sem sömu rann- sóknaraðferðum hefur verið beitt. Norskar rannsóknir á 13 handknattleiksmönnum eftir Lars Hermansen (4) frá 1973 gáfu meðalþrektölu 60 og sænskar rannsóknir á 52 knattspyrnumönnum úr 1. deild eftir G. Agnevik (1) frá 1970 gáfu meðalþrektölu 58,6. í báðum tilfellum er samanburðurinn íslendingum óhagstæður, þótt munurinn sé ekki mikill. Hæsta þrektala, sem mældist hjá knatt- spyrnumönnunum var 79,4 hjá 15 ára dreng. Þetta er jafnframt hæsta þrektala, sem mæld hefur verið í þessum rannsókn- um, og er einnig meðal þess besta sem mælst hefur til þessa í erlendum athugun- um. Hæsta þrektala, sem mældist hjá hand- knattleiksmanni var 62,3 hjá 18 ára pilti. Niðurstöður um hlaupara eru birtar í töflu 4. Á sama hátt og í töflu 3 er birtur hjart- sláttarhraði þeirra við mesta álag. Séu þær niðurstöður bornar saman við töflu 3, kem- ur í ljós, að mesti hjartsláttarhraði hlaupar- anna er áþekkur minnsta hjartsláttarhraða hjá hinum íþróttamönnunum. Stafarþetta væntanlega af betri þrekþjálfun hlaupar- anna, fremur en því að þeir hafi ekki lagt jafn mikið að sér og hinir íþróttamennirnir, en vitað er að mesti hjartsláttarhraði er lægri hjá vel þjálfuðum mönnum en hjá lítt þjálfuðum. Súrefnisneysla hlauparanna er einnig sýnd í töflu 4, bæði sem heildarneysla (V02 1/min) og sem neysla á hverja einingu lík- amsþunga (V02 ml/kgxmin). Meðalþrek- tölur spretthlauparanna eru 56,8, milli- hlauparanna 63,9, hjá millilanghlaupurun- um 63,0 og langhlaupurunum 64,1. Af þessu sést að hæstu gildin mælast hjá lang- hlaupurum. Erlendar niðurstöður hafa einnig sýnt þennan mun. T.d. koma eftir- farandi gildi fram í grein eftir Bengt Saltin og Per-Olof Ástrand (9) frá 1967 fyrir hlaupara: Karlar 1/min ml/kgxmin 3000 m,8 ca.79 800-1500 m,4 ca.75 400 m,9 ca.68 Konur 400-800 m,l ca.56 TAFU :> alitur fjöioi \ M" V m/l/kr X rán :■ °2 '•■■-.•'■.;:':Kf.:;i . ^ • u 8 '2,2 ( 1,8-2,7) 56,7 ( 50,6-66,1.) 196,5.( 192-200; 12 ■; 9 2.4 ( 1,8-2,8) :.: 57,5 ( 39,8-68,3) 201,7 .( 192-207- 13 6 2,6 ( 1,9-3,8) 56,2 ( 44,4-66,0) 198,3 ( 11)2-705.) 14 5 3,2 ( 2,5-3,6) 59,5 ( 52,8-65,9) 190.4 ( 184-200, . 15 6 3.5 ( 2.5-4,0) 59,5 ( 47,9-79,4) 196.4 < 197.700.: 1 <> 4 4.1 ( 3,4-5,0) ' 55,5 ( 41,4-65,5) 197.5 ( 182-200) 17 10 3,9 (2.9-4,8) 55.5 ( 45,7-66,0) 190,1 (. 176-205; 18 8 4,0 ( 3,3-4.7) V 58,5 ( 54.9-62,31 .194,5 ( 188-200) : M9 • 5 3.9 ( 3,5-4,4 ) 56,3 ( 50,4-62.2) 190.9 ( 184-200! 20 6 3.9 ( 3,6-4,81 52.7 (44.1-60,61 184,3 ( 184-196) ?1 '• 11 «,3 ( 3,0-4.9) 56,1 ( 42,5-67.9, 184,8 t 176-200) /? 9 4,3(4,0-4,81 56,3 ( 51,0-65,4) 191,4 ( 173-200) 7 3 7 4,0 ( 3,6-4 ,4) 50,9 ( 44.0-58,6, 187,7 ( 180-194 : 24 12 4,3 ( 3.6-5.4; ■ 57,4 < 50,2-62,6) :. 187,8 ( 175-205:. !; . 3 4,2 ( 3,9-4,5: 51,3(48,2-56,6) 188.3 ( 1.80-205. -'/'26"'. 4 4,3 ( 4.1-4.5, 52,7 i 49,9 - 55,3 187.4 i 176-1*2 "• 27 l 4,1 47,5 192,0 f 78 ■: 2 : 4,1 (4.0-4,2, : 53,0 ( 67^,-58,5.;.: .189,0 1.186-192, 30 1 4,0 . . .'50,6. '■ 173,0 •f'i-ai". ’ 4.1 ( 4.3-4.4. 51,8 i 51,4-52,21 181,0 ( 178-184/; Má af þessum tölum sjá, að íslensku hlaupararnir hafa allmiklu lægri rneðal- þrektölu en þeir sænsku hlauparar, sem at- hugaðir voru fyrir um það bil áratug. Aðeins 2 hlauparar hafa hærri þrektölu en 70. Annar þeirra er millihlaupari með þrektölu 74.9, sem er hæsta þrektala, sem mældist í þessum hópi og samsvarar vel því meðalgildi, sem Saltin og Ástrand fengu. Hinn er ianghlaupari, með þrektöluna 71,7, en það er töluvert lægra en það meðalgildi, sem Saltin og Ástrand mældu hjá sænskum langhlaupurum. í grein eftir Margaria og fl. (7) frá 1975, er sýnt fram á samsvörun milli þrektölu og árangurs í hlaupum. Þar segir að t.d. hlauparar með þrektöluna 50 geti ekki vænst þess að hlaupa 10000 m á skemmri tíma en 44 mínútum. Vilji hlauparar hins vegar spreyta sig á heimsmetum frá 1969 í 10000 m (28 min 3 sek), 5000 m (13 min 29 sek) eða 1500 m hlaupum (3 min 37 sek) þurfi þrektalan a.m.k. að ná 74 fyrir 1000 m hlaupið, 75 fyrir 5000 m hlaupið og 70 fyrir 1500 m hlaupið. Rétt er þó að geta þess, að góð þrektala táknar ekki endilega góðan árangur, þar sem tækni í hlaupum. betri útbúnaður og betri keppnisbrautir hafa einnig verulega mikið að segja (Saltin og Ástrand 1967 (9), Costill og fl. 1973 (3)). Lokaorð Hér að framan hefir verið gerð grein fyrir þrekmælingum er ná til 137 íþróttamanna úr þremur íþróttagreinum og samanburður gerður við tiltækar sambærilegar athuganir t nágrannalöndum okkar. Þær niðurstöður sem hér birtast benda til þess að nokkuð skorti á að þrekþjálfun íþróttafólksins, er athugað var, sé í því horfi, sem æskilegt væri. Einnig sýnir saman- burður við erlendar rannsóknir. að við stöndum höllum fæti gagnvart nágrönnum okkar. Þessar niðurstöður ættu því að verða Framhald á bls. 93 83
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.